Fleiri fréttir

Sársaukinn orðinn viðráðanlegur eftir miklar kvalir
Guðmundur Felix Guðmundsson, sem fékk handleggi grædda á sig í janúar, segir sársaukann sem fylgt hefur aðgerðinni nú vera orðinn viðráðanlegan. Sársaukinn hafi hins vegar verið rosalegur fyrstu vikurnar.

Svandís ræddi tillögur Þórólfs
Ráðherrar í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sitja nú á reglulegum föstudagsfundi í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu þar sem tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra eru meðal annars á dagskrá.

Einn greindist innanlands og fimm á landamærum
Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Sá sem greindist var í sóttkví. Fimm greindust á landamærum.

Kvikmyndagerðarmennirnir vilja fá þrjár milljónir króna frá hinum reiða föður
Fyrsta fyrirtaka í máli Antons Mána Svanssonar framleiðanda og Guðmundar Arnar Guðmundssonar leikstjóra gegn Guðmundi Þór Kárasyni verður í næstu viku. Anton Máni og Guðmundur Andri telja ekki hægt að sitja undir því að vegið sé svo harkalega starfsheiðri þeirra og æru og raun ber vitni.

Svandís fór með tillögur Þórólfs á ríkisstjórnarfundinn
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir skilaði Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra minnisblaði seint í gærkvöldi með tillögum sínum um næstu skref í aðgerðum hér á landi vegna kórónuveirufaraldursins. Þetta staðfestir Iðunn Garðarsdóttir aðstoðarmaður ráðherra í samtali við Vísi.

Bein útsending: Fyrsta framkvæmdalota Borgarlínu kynnt
Frumdrög að fyrstu framkvæmdalotu Borgarlínunnar eru komin út þar sem kynntar eru fyrstu heildstæðu tillögur að útfærslu borgarlínuframkvæmda, frá Ártúnshöfða að Hamraborg, sem er fyrsta framkvæmdalota Borgarlínunnar.

Varaformaðurinn sagður nú sækjast eftir sæti á lista
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfrulltrúi og varaformaður Samfylkingar, er sögð hafa látið þau boð berast til uppstillingarnefndar Samfylkingarinnar í Reykjavík að hún sé reiðubúin taka sæti á lista flokksins fyrir komandi þingkosningar.

Ísland enn eina græna landið í Evrópu
Líkt og í liðinni viku er Ísland eina landið sem merkt er með grænum lit á litakóðunarkorti Sóttvarnastofnunar Evrópu vegna kórónuveirufaraldursins.

Vefverslun með áfengi ekki leyfð samkvæmt nýju frumvarpi dómsmálaráðherra
Frumvarp Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra um breytingar á áfengislögum, var lagt fram á Alþingi í gær.

Í haldi lögreglu vegna líkamsárásar
Laust fyrir klukkan miðnætti í gær handtók lögreglan á höfuðborgarsvæðinu manns í Árbænum sem grunaður er um líkamsárás og brot á vopnalögum.

Bruni í kjallara húsnæðis Sjúkratrygginga Íslands
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út upp úr klukkan hálftólf í gærkvöldi vegna elds sem kom upp í kjallara Vínlandsleiðar 16. Sjúkratryggingar Íslands eru þar til húsa auk tannlæknastofu.

John Snorri lagður af stað á toppinn
John Snorri Sigurjónsson hefur lagt af stað á toppinn á fjallinu K2 ásamt föruneyti sínu, feðgunum Ali og Sajid. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Johns Snorra í kvöld.

Óttast skriður úr hlíðum sem áður töldust öruggar vegna hlýnunar
Vísindamenn óttast að skriðuföll úr hlíðum hér á landi sem áður töldust öruggar vegna hlýnandi veðurfars. Stórauka þurfi rannsóknir á sífrerum til fjalla og verði fólk vart við breytingar í hlíðum í sínu umhverfi ætti að láta umsvifalaust vita.

Kjaradeila framhaldsskólakennara til sáttasemjara
Félag framhaldsskólakennara og Félag stjórnenda í framhaldsskóla hafa vísað kjaradeilu sinni við ríkið til ríkissáttasemjara.

Andlega veikum þolanda mansals vísað úr landi: „Þetta er óforsvaranlegt og rangt mat“
Kærunefnd Útlendingamála hefur synjað andlega veikum þolanda mansals um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Lögmaður mannsins segir málið eitt margra mála þar sem fórnarlömbum mansals og kynferðisofbeldis er synjað um vernd hér á landi.

„Nú er búið að skoða þetta nóg“
Borgarstjóri segir að göng fyrir Sundabraut séu enn raunhæfur kostur en samgönguráðherra sló þann kost nánast út af borðinu í gær. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík telur að málið hafi verið skoðað nógu vel, nú þurfi að framkvæma.

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu
Í kvöldfréttum fjöllum við um rannsókn dönsku lögreglunnar á morðinu á Freyju Egilsdóttur. Tvö ung börn hennar eru komin í skjól hjá fjölskyldumeðlimum.

Breytingar á sóttvarnalögum samþykktar
Frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingar á sóttvarnalögum var samþykkt á fimmta tímanum í dag með fjörutíu og sjö samhljóða atkvæðum.

Ákærður fyrir kynferðislega áreitni og brot gegn börnum í Austurbæjarskóla
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni og brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa mánudaginn 2. september 2019 farið í heimildarleysi inn í Austurbæjarskóla í Reykjavík og brotið gegn þremur nemendum skólans. Málið var þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur eftir hádegið í dag. Þinghald í málinu er lokað.

Nýr kjarasamningur undirritaður hjá Alcoa á Reyðarfirði
Starfsfólk Alcoa á Reyðarfirði er komið með nýjan kjarasamning við fyrirtækið til næstu þriggja ára. Samningurinn var undirritaður á Reyðarfirði í dag á milli Alcoa Fjarðaáls og starfsmanna fyrirtækisins sem tilheyra Afli stéttarfélagi og Rafiðnaðarsambandi Íslands. Samningurinn er afturvirkukr frá 1. mars 2020.

Segir börn Freyju í öruggum höndum hjá ættingjum
Freyja Egilsdóttir og fyrrverandi sambýlismaður hennar, sem hefur játað á sig morðið, áttu saman tvö ung börn.

Harmi slegið samstarfsfólk Freyju fær áfallahjálp
Anni Andersen forstöðukona þjónustukjarnans Stenslundcentret í Odder, þar sem Freyja Egilsdóttir vann, kallaði nánasta samstarfsfólk Freyju til fundar í hádeginu í dag til að veita því stuðning og sálræna aðstoð. Tveir sálfræðingar voru kallaðir til.

Barnaherbergi komið á Alþingi
Barnaherbergi með skiptiaðstöðu hefur verið útbúið á fyrstu hæð þinghússins. Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis, segir þetta gott skref í átt að því að gera Alþingi að fjölskylduvænni vinnustað.

Þrettán sóttu um stöðu skrifstofustjóra í heilbrigðisráðuneytinu
Alls bárust þrettán umsóknir um embætti skrifstofustjóra skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu í heilbrigðisráðuneytinu en umsóknarfrestur rann út 1. febrúar síðastliðinn.

Borgarstjóri ekki sannfærður um Sundabrú
Borgarstjóri er ekki sannfærður um að brú sé rétta lausnin fyrir Sundabraut og segir að jarðgöng séu einnig raunhæfur kostur samkæmt nýrri skýrslu.

Dæmi um að veist sé að starfsfólki verslana með ofbeldi vegna grímunotkunar
Dæmi eru um að viðskiptavinir sem ekki hafa verið með grímu í verslunum hafi veist að starfsfólki með ofbeldi þegar þeim hafi verið bent á að setja upp grímuna, en eins og allir ættu að vita er skylda að vera með andlitsgrímu inni í búðum.

Átta með svartar húfur en 23 appelsínugular
31 kona afhentu aðstoðarmanni heilbrigðisráðherra rúmlega 37 þúsund undirskriftir fyrir utan heilbrigðisráðuneytið í Skógarhlíð í morgun. Um táknræna tölu er að ræða varðandi krabbamein en um er að ræða mótmæli við breytingum vegna brjóstaskimana hér á landi.

Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum okkar heyrum við í Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni sem sagði á upplýsingafundi nú fyrir hádegið að vægar tilslakanir innanlands komi til greina á næstu dögum. Engin innanlandssmit greindust í gær, annan daginn í röð.

„Vægar“ tilslakanir innanlands en hertar aðgerðir á landamærunum í skoðun
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er með í smíðum tillögur að „vægum“ tilslökunum á sóttvarnaaðgerðum. Mun hann skila þeim til ráðherra öðru hvoru megin við helgina en vildi ekki tjá sig frekar um þær á upplýsingafundi nú í þessu.

Bóluefni AstraZeneca gefið fólki yngra en 65 ára hér á landi
Bóluefni AstraZeneca gegn Covid-19 verður gefið fólki yngra en 65 ára hér á landi, líkt og gert verður í Þýskalandi, Svíþjóð, Frakklandi og Noregi.

Ekkert innanlandssmit í gær
Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Það er annan daginn í röð sem enginn greinist innalands.

Guðni og Eliza til Egilsstaða og Seyðisfjarðar
Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú halda til Egilsstaða síðar í dag og heimsækja svo Seyðisfjörð á morgun.

Svona var 159. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til reglulegs upplýsingafundar á fimmtudegi klukkan 11.

Fylgdu burðardýri og næsta í keðjunni eftir en náðu ekki höfuðpaurum
Tveir karlmenn á sextugsaldri bíða nú dóms í máli héraðssaksóknara á hendur sér fyrir innflutning á rúmlega tveimur kílóum af kókaíni til landsins með farþegaflugi frá Barcelona. Mennirnir hafa áður hlotið dóm fyrir innflutning á kókaíni en þó eru liðin þrettán ár síðan.

Á 135 kílómetra hraða í Ártúnsbrekkunni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði bíl í Ártúnsbrekkunni eftir hraðamælingu um klukkan átta í gærkvöldi en ökumaðurinn ók bílnum á 135 kílómetra hraða á klukkustund. Leyfilegur hámarkshraði í Ártúnsbrekku er 80 kílómetrar á klukkustund.

Sextán milljónir frá sveitarfélaginu vegna árásar í vinnunni
Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt konu bætur upp á rúmlega sextán og hálfa milljón króna. Konan starfaði á vegum sveitarfélags við umönnun fatlaðs einstaklings sem réðst á hana árið 2014 og var sveitarfélagið talið bera bótaábyrgð í málinu.

„Eins og það sé verið að refsa manni fyrir að eignast barn“
„Þetta er kvennamál eins mikið og viljum og segjum að við búum í feminískri útópíu, þá er þetta kvennamál,“ segir Ásgerður Heimisdóttir, móðir og nemandi í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands. Dóttir Ásgerðar kom í heiminn í desember 2019 og ætla mætti að þá hefði Ásgerður átt rétt á fæðingarorlofsgreiðslum eða fæðingarstyrk námsmanna. Svo var hins vegar ekki. Hún féll á milli kerfa og reyndist algjörlega réttlaus.

Yfirljósmóðir gagnrýnir lélegan tækjakost á landsbyggðinni
Yfirljósmóðir á Suðurlandi gagnrýnir lélegan tækjakost á fæðingardeildum á landsbyggðinni, ekki síst þegar um rafræna vistun gagna er að ræða þegar leita þarf sérfræðiálits hjá læknum á Landsspítalanum. Þá hái léleg tæki starfsemi fæðingardeildarinnar á Selfossi á hverjum degi.

Saumar ríkislögreglustjóra, Bernie Sanders og kórónuveiruna
Brúður í formi ríkislögreglustjóra, Bernie Sanders og kórónuveirukonan eru á meðal hundraða sköpunarverka Arndísar Sigurbjörnsdóttur

Aukin útbreiðsla Covid-19 tefur efnahagsbata
Aukin útbreiðsla kórónuveirunnar í helstu viðskiptalöndum og tafir á bólusetningum dregur efnahagskreppuna á langinn og hefur áhrif á viðskiptakjör Íslands langt fram á þetta ár. Nýleg lántaka ríkisins í útlöndum stuðlar að auknu jafnvægi að mati Seðlabankans.

„Það á enginn að vera hræddur um að stíga fram ef hann telur á sér brotið”
Félagsfræðingur sem safnað hefur saman og birt nafnlausar sögur um áreitni og kynferðisofbeldi innan íþróttahreyfingarinnar segir að sögur sem bárust frá leikmönnum í körfuboltanum hafi komið henni mest á óvart. Formaður KKÍ segir að mikil vakning hafi orðið með MeToo-hreyfingunni og að enginn eigi að vera smeykur við að stíga fram og greina frá ofbeldi.

Feðgarnir fluttu fjórir saman mál fyrir Landsrétti
Bræðurnir Stefán Karl, Páll og Jón Bjarni Kristjánssynir fluttu í dag mál fyrir Landsrétti ásamt Kristjáni Stefánssyni föður þeirra. Einn bræðranna segist telja málið einsdæmi á hærra dómstigi.

Gjaldtaka fyrirhuguð á Sundabrú
Samgönguráðherra leggur til að ráðist verði í lagningu Sundabrautar með brú frá Holtagörðum yfir í Gufunes. Heildarkostnaður yrði sextíu og níu milljarðar króna og mun hagkvæmari en lagning jarðgangna á þessari leið.

„Hún var vinsæl og vinamörg, við erum í algjöru áfalli“
Vinir Freyju Egilsdóttur sem fannst látin á heimili sínu í nótt segja mikla sorg ríkja í Malling þar sem hún bjó. Þeir tóku þátt í leit að henni í gær, ásamt fjölmennu lögregluliði. Kerti og blóm hafa streymt að heimili hennar í dag.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Í kvöldfréttatíma Stöðvar 2 verður fjallað ítarlega um morðið á íslenskri konu búsettri í Danmörku. Eiginmaður konunnar hefur játað á sig glæpinn en þau höfðu slitið samvistum.