Fleiri fréttir

Bændur áminntir fyrir sóðaskap

Umgengni á bænum Ytri-Knarrartungu á Snæfellsnesi er lýti á fallegu umhverfi, segir forstöðumaður tæknideildar Snæfellsbæjar. Ábúendur verða ekki við óskum bæjarins um bætta umgengni. Heilbrigðisyfirvöld ætla að skoða málið.

Dæmdur níðingur aftur í haldi fyrir kynferðisbrot

Maður á fimmtugsaldri er talinn hafa brotist inn á sex stöðum og í tvígang haft uppi kynferðislega tilburði. Hann hefur áður verið dæmdur fyrir svipað atferli og er nýkominn úr afplánun.

Umhverfisvernd ekki einkamál vinstri manna

Umhverfisvernd er ekki einkamál vinstri manna og hægri menn ættu að átta sig á þeim verðmætum sem geta falist í henni. Þetta segir annar forsvarsmanna nýrra samtaka sem bera heitið Sjálfstæðir umhverfis-verndarsinnar.

Stofna minningarsjóð um Hemma

Til stendur að stofna minningarsjóð um Hemma Gunn. Þetta verður gert til að standa styðja við þau málefni sem voru honum kærust.

Óvissa með framtíð unglingaheimilis

Íbúar í nágrenni húss við Fjóluhvamm í Hafnarfirði kvörtuðu til bæjaryfirvalda yfir atvinnustarfsemi í húsinu, en það er nú leigt til Vinakots fyrir vistun unglinga með hegðunarvanda. Skipulagsfulltrúi Hafnarfjarðar telur starfsemina í ósamræmi við aðalskipulag.

Þörf fyrir hagsmunagæslumann barna?

Áhersla á sjálfstæðan rétt barna eykst stöðugt og lögfræðingur Barnaverndarstofu telur að Íslendingar ættu að taka upp hagsmunagæslumann í ákveðnum barnaverndarmálum, að finnskri fyrirmynd.

"Þetta er vandamál í okkar fámenna samfélagi“

Mikil samþjöppun á íslenskum fjölmiðlamarkaði ógnar fjölbreytni í efnisframboði, að mati Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Stofnunin telur í nýrri skýrslu að stjórnvöld eigi að íhuga frekari ráðstafanir til að takmarka samþjöppun og koma í veg fyrir einokun og hagsmunaárekstra.

Gunnar Bragi fundaði með kollega sínum í Berlín

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, fundaði með Guido Westerwelle utanríkisráðherra Þýskalands í Berlín í dag. Ráðherrarnir ræddu meðal annars þá ákvörðun íslenskra stjórnvalda að gera hlé á aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Á sameiginlegum blaðamannafundi ráðherranna lýsti Westerwelle yfir fullum skilningi á afstöðu íslenskra stjórnvalda en ítrekaði að Þjóðverjar hefðu alla tíð stutt aðildarumsókn Íslands.

Rannsókn á barnaníði lýkur á næstu dögum

Í dag fer lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fram á að karlmaður á fertugsaldri, sem grunaður er um að hafa rænt stúlku á ellefta ári og brotið gegn kynferðislega, sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi.

Búið að opna Skeiðarárbrú

Umferðaróhapp varð fyrir stundu á Skeiðarárbrú, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Kirkjubæjarklaustri. Brúin er lokuð sem stendur og vill lögregla biðla til ökumanna að sýna þolinmæði. Bifreið er föst þversum á brúnni, en eftir því sem fréttastofa kemst næst urðu engin slys á fólki.

Maðurinn réðst á annan farþega

Íslenskur farþegi, Jónas Már Torfason, var um borð í vélinni og segir manninn sem var vísað úr vél Icelandair hafa ráðist á annan farþega.

Ríkisstjórnarflokkarnir missa fylgi

Stuðningur við ríkisstjórnina hefur dregist saman samkvæmt nýrri könnun MMR. Stuðningurinn mælist nú 55,8 prósent miðað við 59,8 prósent í þeirri síðustu.

Erlendir ferðamenn 673 þúsund í fyrra

Erlendir ferðamenn voru um 673 þúsund árið 2012. Um er að ræða 18,9 prósenta fjölgun frá 2011 en þá voru erlendir ferðamenn um 565 þúsund talsins.

Skammbyssa, hnífar og hnúajárn fundust í fjölbýlishúsi

Skotvopn og fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í austurborginni í gær. Um var að ræða haglabyssu, lofthaglabyssu, skammbyssu og rafbyssu, en í íbúðinni var einnig að finna skotfæri í áðurnefnd vopn.

Íslendingar gætu misst atkvæðarétt fyrir að virða ekki kynjakvóta

Í morgun var tillaga þingsskapa og stofnananefndar Evrópuráðsþingsins, um refsiaðgerðir vegna samsetningu íslandsdeildarinnar, kynnt. Íslenska nefndin var við upphaf þingsins áminnt fyrir brot á kynjakvóta. Til greina kemur að taka atkvæðisrétt af íslendingum á næsta þingi.

Merkel lofaði árangur Íslands

Angela Merkel, kanslari Þýskalands fór lofsamlegum orðum um endurreisn íslensks efnahagslífs á fundi med Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands í morgun. Merkel lýsti yfir áhuga á að sækja Íslands heim.

Félagsmálaráðherra ræðir við umboðsmann skuldara um kröfur Dróma

Drómi, slitastjórn SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans, hefur hætt við endurútreikning lána hjá um 160 lántakendum, og mun á næstunni senda þeim kröfu upp á samanlagt einn og hálfan milljarð króna. Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra, kemur til með að ræða við umboðsmann skuldara í dag.

150.000 óleyst dómsmál bíða Róberts Spanó

Róbert Spanó, nýkjörinn dómari við Mannréttindadómstól Evrópu segir stór verkefni blasa við honum sem dómara við dómstólinn, enda liggi 150.000 óleyst mál fyrir dóminum.

Háskólar fá minna fé en grunnskólar

Ísland er eina ríki OECD sem ver hlutfallslega meiri fjármunum til grunnskóla en háskóla. Þá útskrifast Íslendingar elstir allra OECD-þjóða úr háskóla og næstelstir úr menntaskóla. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu OECD.

Mönnunum sleppt úr haldi

Tveimur mönnum, sem voru handteknir í tengslum við stungumál í Gnoðarvogi í gær, hefur verið sleppt úr haldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er rannsókn málsins enn í fullum gangi.

Fann skilaboð frá skipverja í fjörunni

Draumur ferðalangs rættist er hann gerði óvænta uppgötvun í fjöru á Vesturlandi. Þar leyndist flöskuskeyti sem gæti reynst fyrirboði, að sögn finnandans.

Matarkarfan fimmtungi dýrari en í ESB

Samkvæmt úttekt Eurostat er matarkarfan tæpum fimmtungi dýrari hér á landi en sem nemur meðaltali í ESB-ríkjunum. Einnig er áfengi meira en tvöfalt dýrara hér á landi. Þessar tölur taka þó ekki mismunandi kaupmátt með í reikninginn.

Útskrifumst úr grunnnámi á fertugsaldri

Nemendur í íslenskum háskólum útskrifast fjórum árum seinna að meðaltali úr grunnnámi en nemendur ríkja OECD. Þá verja Íslendingar einir þjóða hlutfallslega minni fjármunum til háskóla en grunnskóla.

Hættumat vantar en viðbragðsáætlun klár

Hættumat vegna jarðskjálfta í Þingeyjarsýslum hefur ekki verið unnið sérstaklega. Hins vegar er mikið af upplýsingum fyrirliggjandi og góð viðbragðsáætlun á þeim byggð, að mati Almannavarna. Iðnaðaruppbygging á Bakka áfram í sama farvegi.

Stofnanir bjartsýnar á að milljónastyrkir skili sér

Matís og Veðurstofan eiga von á hundraða milljóna fjárveitingu frá ESB í formi IPA-styrkja. Báðar stofnanir eru bjartsýnar á að verkefnin fari í gegn hjá ráðuneytinu. Ekki liggur fyrir hvenær ráðuneytið gefur grænt ljós.

Drómi innheimtir 1,6 milljarða af lántakendum

Drómi, slitastjórn SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans, hyggst á næstunni rukka um 160 lántakendur um samtals 1,6 milljarð vegna gengislána sem hætt hefur verið við að endurreikna.

Mál handaþegans leysast

Guðmundur Felix Grétarsson, sem bíður þess í Frakklandi að fá hendur, var í vandræðum; gat ekki fengið íbúð nema hafa pening og ekki pening nema hafa íbúð, vegna gjaldeyrislaga. Seðlabankinn hefur gripið inn í málið.

Guðmundur Felix á flæðiskeri staddur

Guðmundur Felix Grétarsson, sem missti báða handleggi í hörmulegu vinnuslysi fyrir fimmtán árum, er á flæðiskeri staddur í Frakklandi þar sem hann bíður eftir handaágræðslu.

Löng bið eftir meðferð við átröskunum

Átröskunarsjúklingar þurfa að bíða allt að fjórfalt lengur eftir aðstoð en á síðasta ári og nú eru 27 mál á bið hjá Hvítabandinu, sem heyrir undir geðsvið Landspítalans. Ung kona með átröskun segir úrræðið í sumum tilfellum lífsnauðsynlegt.

Vilja að Illugi skýri málið

Stjórn Vöku hefur farið þess á leit að Illugi Gunnarson, menntamálaráðherra, skýri nánar áform sín um minnkuð fjárútlát til LÍN.

Sjá næstu 50 fréttir