Fleiri fréttir

Tíu töff gististaðir í Reykjavík

Ferðasíðan The Global grasshopper birti í dag samantekt á tíu töff og óvenjulegum hótelum og gistiheimilum í Reykjavíkurborg.

Fiskveiðar smábáta lamast vegna mikillar ýsu

Mikil ýsugengd samfara niðurskurði ýsukvóta er farin að lama fiskveiðar smærri skipa og báta um vestan- og norðanvert landið. Útgerðir segjast ekki geta veitt aðrar fisktegundir þar sem allt sé vaðandi í ýsu og grípa til þess ráðs að leggja bátunum. Ýsukvótinn hefur verið að trappast niður og er núna aðeins þriðjungur af því sem var fyrir fimm árum. Á Drangsnesi kvartan menn sáran undan skorti á ýsukvóta, eins og sjá mátti í viðtölum í fréttum Stöðvar 2, þar sem sjómenn lýsa miklum ýsuafla um allan Húnaflóa. Útgerðir segja ýsukvóta ekki fást á markaði. Óskar Torfason, framkvæmastjóri Fiskvinnslunnar Drangs, segir ástandið orðið alvarlegt og bátar hafi hætt veiðum vegna hás hlutfalls ýsu í aflanum. Aðrir reyna að forðast ýsuna með því að róa lengra út á haf. Hjá Landssambandi smábátaeigenda segir Örn Pálsson að svona sé ástandið nánast hringinn í kringum landið en verst bitni það á línuútgerðum á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi.

Þotukaupin réðust að morgni eftir næturfund

Airbus-verksmiðjurnar voru hársbreidd frá því að ná samningunum um endurnýjun flugflota Icelandair og voru inni í myndinni allt fram á miðvikudagsmorgun þegar næturlöngum samningafundum lauk með því að Icelandair-menn völdu Boeing. Það var í hádeginu í gær sem ráðamenn Icelandair kynntu þá ákvörðun sína að velja Boeing 737 MAX sem framtíðarvél félagsins, með því að panta tólf slíkar þotur og festa sér kauprétt að öðrum tólf til viðbótar.

Framtakssjóðurinn selur 10% hlut í Vodafone til viðbótar

Umframeftirspurn var eftir bréfum í Fjarskipti, móðurfélag Vodafone, í opna hluta hlutafjárútboðs, en því lauk í gær. 10% hlutur í félaginu var til sölu í opna útboðinu. Lokaða hluta útboðsins lauk þann 3. desember og var einnig umframeftirspurn þar.

Klifraði niður stigann úr brennandi húsi

Það verður að teljast mikil mildi að maður hafi sloppið heill út úr brennandi húsi að Laugavegi 51 í dag. Húsið var orðið fullt af reyk þegar slökkviliðið setti stiga upp að glugga svo maðurinn kæmist út um hann. Að auki var kona föst á svölum hússins og var henni líka bjargað. Umtalsverðar skemmdir urðu á húsinu af völdum vatns og reyks.

Hótaði að drepa eiginkonu sína með hnífi

Karlmaður á sextugsaldri var dæmdur í þriggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að hóta eiginkonu sinni með hnífi í júlí síðastliðnum. Maðurinn hótaði að hann skyldi drepa hana og á sama tíma ógnaði hann henni með hnífi. Konan skarst á fingrum hægri og vinstri handar þegar hún reyndi að ná hnífnum af honum. Maðurinn játaði sök en hann hefur áður verið dæmdur í fangelsi fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum.

Aftur ekið á gangandi vegfaranda á Nýbýlavegi

Ekið var á gangandi vegfaranda á Nýbýlavegi um tvöleytið í dag. Það var sextán ára gamall unglingur sem varð fyrir bílnum, en hann slapp lítt meiddur. Mest fann hann fyrir eymslum í baki, samkvæmt upplýsingum frá sjúkraflutningamönnum.

"Ekki bara glæpamenn í höfuðborginni“

„Það er nú bara þannig að glæpamenn búa ekki bara á höfuðborgarsvæðinu," segir Úlfar Lúðvíksson, sýslumaður á Ísafirði. Nýlega funduðu tveir lögreglumenn af höfuðborgarsvæðinu - sem hafa hvað mest unnið að rannsóknum mála er varða skipulögð glæpasamtök - með lögreglumönnum á Vestfjörðum.

Mega nefna soninn Lárent

Mannanafnanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að eiginnafnið Lárent tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Lárents og uppfyllir að öðru leyti ákvæði um mannanöfn. Nafnið hefur því verið fært á mannanafnaskrá.

Er þetta gott eða vont? - Gangnam Style í jólabúningi

Vinsælasta lag Youtube.com frá upphafi, Gangnam Style, er nú komið í jólabúning því plötusnúðurinn Peolo Monti hefur sett lagið saman við hið vinsæla lag Last Christmas, sem George Michael gerði vinsælt árið 1984. Útkoman er í meira lagi sérstök, en lagið hefur vakið töluverða athygli víðsvegar um heim.

Segir vegið að starfsheiðri sálfræðinga

Formaður Sálfræðingafélags Íslands segir Ólínu Þorvarðardóttur, þingmann og flutningsmann tillögu um heildrænar meðferðir græðara, hafa vegið að starfsheiðri sálfræðinga með ummælum sínum um að ekki væri hægt að sanna að samtalsmeðferð þeirra virki.

John McAfee fluttur á sjúkrahús

Auðkýfingurinn og hugbúnaðarfrumkvöðullinn John McAfee var fluttur á sjúkrahús í Guatemala í dag. McAfee, sem var eftirlýstur af Interpol vegna morðs í Belís, sótti um pólitísk hæli í Guatemala á dögunum.

Manni bjargað úr brennandi húsi

Manni var bjargað úr brennandi húsi á Laugavegi 51, úr íbúð fyrir ofan verslunina Maníu. Mikinn reyk lagði frá húsinu eftir að eldur kom upp, en lítill eldur var sjáanlegur þegar litið var á húsið frá Laugaveginum.

Eldur í húsnæði Maníu: María Birta bjargar verðmætum

Eldur kom upp í húsnæði á Laugavegi, í íbúðum fyrir ofan verslunina Maníu, og eru reykkafar á leið inn segir blaðamaður Fréttablaðsins sem er á staðnum. Eigendur verslunarinnar Maníu, en einn þeirra er María Birta Bjarndóttir, vinnur hörðum höndum að því að koma vörum út úr versluninni.

Óska eftir vitnum að slysinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysinu sem varð á Nýbýlavegi í Kópavogi á níunda tímanum í morgun. Þar varð gangandi vegfarandi fyrir strætisvagni, sem var ekið austur Nýbýlaveg á milli Túnbrekku og Þverbrekku, en tilkynnt var um slysið kl. 8.52.

Bílstjórinn í áfalli

"Maðurinn er auðvitað í áfalli. Menn fá þennan skell en sjálft sjokkið, það gæti komið nokkrum sólarhringum seinna,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs, í samtali við Vísi.

Ákærður fyrir að sparka í andlit manns á skemmtistað

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á veitingastað í miðbæ Reykjavíkur í apríl árið 2010. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, en sá ákærði var fjarverandi.

Konan varð fyrir strætisvagni

Það var strætisvagn sem ók á roskna konu í Nýbýlavegi í morgun. Konan var flutt með sjúkrabíl á slysadeild, en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var konan alvarlega slösuð.

Alvarlegt umferðarslys í Kópavogi

Kona er alvarlega slösuð eftir bílslys sem varð á Nýbýlavegi rétt austan við Þverbrekku rétt fyrir klukkan níu í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var konan að ganga yfir götu þegar hún varð fyrir bílnum, en tildrög liggja ekki fyrir að öðru leyti. Dimmt var í morgun og skyggni mjög lélegt.

Angelina Jolie hitti sýrlenska flóttamenn

Angelina Jolie, velgjörðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna og Hollywoodleikkona, fór að landamærum Jórdaníu og Sýrlands í fyrrinótt til þess að hitta stríðshrjáða sýrlenska flóttamenn sem höfðu komist yfir til Jórdaníu.

Bein útsending - Dagur rauða nefsins

Skemmti- og söfnunarþáttur í beinni á Stöð 2 og Vísi klukkan 19.30. Íslenskir heimsforeldrar hafa þegar bjargað lífi ótal barna um heim allan.

Kólumbíumartröðin á enda: "Við erum komin heim!!!!"

Hjónin Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir og Friðrik Kristinsson eru komin heim með dætur sínar tvær, Helgu Karólínu og Birnu Salóme, eftir ársdvöl í Kólumbíu. Hjónin ættleiddu stúlkurnar en það reyndist þrautin þyngri því ættleiðingarmálið fór fyrir dómstóla, þar sem það hefur verið í eitt ár. Hjónin sögðu í júní á þessu ári að baráttan við yfirvöld í landinu hafi verið martröð.

Nefnd gegn skítkasti og níði í bæjarstjórn

„Við viljum alls ekki hefta að fólk tjái sig en það voru allir sammála um að þetta væri gengið það langt að það yrði að gera breytingar,“ segir Karen E. Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi og annar tveggja meðlima nefndar sem bæta á úr ófremdarástandi í bæjarstjórninni.

Leysa á launadeilu innanhúss hjá LSH

Reynt verður að koma til móts við kröfur hjúkrunarfræðinga um úrbætur á stofnanasamningi við Landspítalann, án viðbótarfjárveitingar frá ríkinu.

Sagði af sér eftir sirkushneyksli

Marianne Jelved tók í gær við embætti menningarráðherra í Danmörku eftir að Uffe Elbæk sagði af sér í kjölfar hneykslismáls.

Efast um bakland andstæðinga

Gunnar Örn Marteinsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, var settur af á fundi sveitarstjórnar á þriðjudag. Þá samþykktu allir fundarmenn nema Gunnar vantrauststillögu á hann sem oddvita.

Leita skal álits EFTA-dómstólsins

Leita skal ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins á því hvort íslenska ríkinu er heimilt að neita liðsmönnum glæpasamtakanna Hells Angels innan evrópska efnahagssvæðisins um landvistarleyfi.

Safna fyrir bágstöddum börnum

Sameinuðu þjóðanna, heldur dag rauða nefsins hátíðlegan í dag. Í kvöld verður svo söfnunarþáttur í opinni dagskrá á Stöð 2, þar sem fólk getur lagt sitt af mörkum til Barnahjálparinnar og gerst heimsforeldrar.

Sjá næstu 50 fréttir