Ingveldur sett í embætti hæstaréttardómara BBI skrifar 7. desember 2012 17:39 Ingveldur ásamt Ögmundi Jónssyni, innanríkisráðherra. Mynd/innanrikisráðuneytið
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, hefur ákveðið að setja Ingveldi Einarsdóttur í embætti hæstaréttardómara til tveggja ára. Hún tekur þar með sæti hæstaréttardómarans Páls Hreinssonar í réttinum, en hann hefur fengið tímabundið leyfi til að sinna dómsstörfum við EFTA dómstólinn. Ingveldur hefur starfað sem dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur að undanförnu og hefur því talsverða reynslu af dómstörfum. Auk Ingveldar sóttu Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, Arnfríður Einarsdóttir, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, Ása Ólafsdóttir, dósent við Háskóla Íslands, og Þorgeir Ingi Njálsson, dómstjóri Héraðsdóms Reykjaness um embættið. Niðurstaða dómnefndar var sú að þau Ása Ólafsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir og Þorgeir Ingi Njálsson væru hæfust umsækjenda til að gegna embættinu en Ögmundur hefur nú ákveðið að skipa Ingveldi. Ingveldur og Þorgeir eiga bæði langan feril að baki sem héraðsdómarar. Ása hefur verið sjálfstætt starfandi lögfræðingur um árabil og býr yfir fjölbreyttri stjórnsýslureynslu, hefur sinnt umfangsmikilli kennslu við háskóla og ritað fræðirit og -greinar. Með vísan til þess að af þeim 12 dómurum sem nú starfa við Hæstarétt eru aðeins tvær konur var ákveðið að valið stæði milli Ásu og Ingveldar og var að lokum ákveðið að Ingveldur hlyti embættið vegna þeirrar reynslu sem hún hefur af dómstörfum. Ingveldur Einarsdóttir er sett í embætti hæstaréttardómara frá 1. janúar 2013 og gildir setning hennar til ársloka 2014.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fleiri fréttir „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Sjá meira