Bein útsending - Dagur rauða nefsins 7. desember 2012 10:30
Í dag heldur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, upp á dag rauða nefsins. Hápunktur dagsins er metnaðarfullur skemmti- og söfnunarþáttur í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld og er streymdur samtímis hér á Vísi. Dagskráin hefst klukkan 19:30 og lýkur um miðnætti. Hér er um langstærsta viðburð ársins að ræða hjá UNICEF á Íslandi og sem fyrr er markmiðið að nota grín og spé til að safna fé og bjóða fólki á Íslandi að gerast heimsforeldrar. Þeir styðja þannig lífsnauðsynleg verkefni UNICEF með mánaðarlegum framlögum. UNICEF reiðir sig alfarið á frjáls framlög og því skiptir allur stuðningur miklu máli og segja aðstandendur að íslenskir heimsforeldrar hafi þegar bjargað lífi ótal barna um heim allan. Þátturinn í kvöld hefst kl 19:30 og er sem fyrr sneisafullur af skemmtun, glensi og gríni en einnig er varpað ljósi á starf UNICEF um víða veröld og þau vandamál sem steðja að milljónum barna um allan heim. Allir sem koma fram í þættinum gera það í sjálfboðavinnu. Í símaveri Vodafone munu einnig um eitt hundrað sjálfboðaliðar svara í símann meðan á þættinum stendur.Meðal atriða í þættinum í kvöld eru: • Dýfingakeppni í Sundhöll Reykjavíkur þar sem Sveppi, Þórunn Antonía, María Birta og Friðrik Dór eru á meðal keppenda. Kynnir er Logi Bergmann og dómarar eru Ilmur Kristjánsdóttir, Gunna Dís og Jónas Kristjánsson sem er alþjóðlegur dýfingadómari. Keppendur leggja allt undir og sýna óvænt tilþrif á brettinu. • Nýtt efni frá Steinda Jr. sem hann gerði sérstaklega fyrir þáttinn. • Lífskúnstnerinn Frímann Gunnarsson sem fjölmmargir þekkja úr Sigtinu var nýverið á ferð í Afríku og kynnti sér menningu og aðstæður í álfunni. Við fylgjumst í þættinum með því hvernig gekk. • Grínatriði og uppistand í tonnavís þar sem Ari Eldjárn, Bergur Ebbi, Ugla Egilsdóttir, Saga Garðarsdóttir og Dóri DNA fara á kostum, ásamt Gunnari Hrafni Jónssyni, nýkrýndum fyndnasta manni Íslands. • Innslög frá heimsókn Gunnars Hanssonar leikara til eins fátækasta lands í heimi, Búrkína Fasó, þar sem hann skoðaði aðstæður barna og verkefni UNICEF.Meðal atriða í þættinum í kvöld eru: • Ný innslög Spaugstofunnar sem liðsmenn hennar tóku sérstaklega upp fyrir UNICEF. • Bónus brestur í dans! Venjulegur verslunarleiðangur í Bónus á Korputorgi leystist upp í heilmikla danssýningu nú á dögunum og verður uppákoman sýnd í heild sinni í þættinum. • Páll Óskar Hjálmtýsson og Monika Abendroth flytja tónlistaratriði. • Hundur í óskilum mætir á svæðið! • Sigurjón Kjartansson sýnir á sér óvænta hlið. • Hjálparsveitin treður upp en í henni eru meðal annars Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Brynhildur Guðjónsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Víkingur Kristjánsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Edda Þórarinsdóttir, Þorsteinn Bachman og Vignir Rafn Valþórsson. Kórstjórinn Knútur stjórnar síðan öllu saman.Aðalkynnar kvöldsins eru þau Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir og Þorsteinn Guðmundsson en í símaveri standa vaktina Friðrika Hjördís Geirsdóttir, Kolbrún Björnsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson. Loks hefur Anna Svava Knútsdóttir umsjón með æsispennandi sms-leik. Eins og fyrr segir er þátturinn í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld og verður hann sýndur samtímis hér á Vísi. Í kjölfarið verða síðan atriði úr þættinum aðgengileg hér á Vísi.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira