Nýmæli í mannréttindakaflanum tilviljanakennd BBI skrifar 7. desember 2012 20:13 Björg Thorarensen.
Þessa dagana eru umsagnir ýmissa sérfræðinga að skila sér til Alþingis um frumvarpið til nýrrar stjórnarskrár. Frumvarpið byggir á tillögum stjórnlagaráðs en umsagnaraðilum var gefinn frestur til 13. desember næstkomandi. Meðal þeirra sem skila inn umsögn er Björg Thorarensen, lagaprófessor, sem var einkum beðin um að veita álit á ákveðnum greinum í mannréttindakaflanum. Hún taldi þó nauðsynlegt að setja fyrst fram nokkrar almennar athugasemdir varðandi mannréttindakaflann og frumvarpið í heild. Þar bendir Björg á að stjórnlagaráð hafi einhliða gert grundvallarbreytingu á eigin verksviði þegar það ákvað að eitt meginverkefna þess væri að endurskoða mannréttindakaflann. Það hafi ekki verið eitt af þeim meginverkefnum sem Alþingi fól því. Björg telur hvergi hafa komið fram hvort nauðsynlegt sé í raun að breyta mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar yfir höfuð. Hún mælist eindregið til þess að Alþingi meti hvort tilefni sé til slíkra breytinga og hvert markmið þeirra eigi að vera. Björg segir að nýmæli í mannréttindakaflanum séu mörg tilviljanakennd og einkennist af málefnum dagsins með ofuráherslu á upplýsingafrelsi og náttúru. Hún leyfir sér að efast um að breytingarnar tryggi betur rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum og telur þær opna víðtækari heimildir til að takmarka mannréttindi. Björg bendir einnig á að greinargerðin með frumvarpinu sé í heild sinni 210 blaðsíðna löng og hluti hennar hefði með réttu átt heima í sérstakri skýrslu um vinnuna. Lengd greinargerðarinnar þykir varhugaverð þar sem vilji löggjafans verður nokkuð torráðinn vegna hennar.Hér má nálgast fleiri umsagnir um frumvarpið en þar er meðal annars umsögn frá Sigurði Líndal, prófessor, Pawel Bartoszek, Gunnari Helga Kristinssyni, Öryrkjabandalaginu og fleirum
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Sjö ára dómur Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira