Fleiri fréttir

Maður getur tjáð næstum allt gegnum fiðluna

Fjórtán ára fiðluleikari segir einstakt hvernig hægt er að tjá tilfinningar sínar með fiðlunni. Hún hefur tekið þátt í Tónlistarhátíð unga fólksins frá upphafi, en hátíðin var sett í þriðja sinn í dag.

Vill senda sundlaugarverði á námskeið

Gæsla á sundstöðum þarf að miðast við fjölda gesta en ekki stærð lauganna. Þetta segir Herdís Storgaard, forvarnarfulltrúi barna. Hún vill að sundlaugarverðir fái menntun og þurfi að sækja sérstakt námskeið til að verða sundlaugarverðir.

Slæmt ástand vega býður hættunni heim

Vegaöryggi og viðhald vega hefur verið vanræktur málaflokkur eftir hrun að mati forstjóra Umferðarstofu. Hún segir slysahætturnar stóraukast með lélegri vegum og brýnt sé að bregðast við því sem fyrst áður en illa fer.

Aflahæstu strandveiðibátarnir með tugi tonna

Aflahæstu strandveiðibátar landsins hafa landað um og yfir 30 tonnum af fiski í sumar. Meðalafli þeirra í róðri er talsvert misjafn, en hjá 20 efstu bátunum er hann frá 650 kílóum upp í 886 kíló af óslægðum afla, þ.e. þegar ekki er búið að hreinsa innyflin innan úr fiskunum.

Hvítabjörnum stafar ógn af hnattrænni hlýnun

Ný rannsókn sýnir að hvítabirnir eru eldri tegund en áður var talið en hún hefur reglulega blandast brúnbjörnum gegnum aldirnar. Rannsóknin leiðir einnig í ljós að stofnstærð hvítabjarna hefur breyst í takt við loftslagsbreytingar og þróun jökla.

"Handbolti er grundvöllur að tilveru Íslendinga"

Útlendingar virðast standa í þeirri trú að handbolti sé það eina sem getur mögulega gefið Íslendingum einhverja ástæðu til að vera til, ef marka má grein sem birtist í Financial Times í dag undir fyrirsögninni "Handball gives Iceland key to existence" sem á Íslensku mætti útleggjast "Handbolti er grundvöllur að tilveru Íslendinga".

Þyrlan lögð af stað

Þyrla Landhelgisgæslunnar er lögð af stað til Laugardals í Ísafjarðardjúpi til að aðstoða í glímunni við sinuelda sem logað hafa síðan á föstudag. Þyrlan komst ekki af stað fyrr en síðdegis þar sem þyrluflugmenn urðu að fá lögboðna hvíld eftir fyrra útkall áður en flogið var af stað að Ísafjarðardjúpi.

Bændur ánægðir með uppskeru þrátt fyrir þurrka

Grænmetisbændur í uppsveitum Árnessýslu eru sammála um að þrátt fyrir mikinn þurrk í nánast allt sumar stefni engu að síður í góða uppskeru. Þetta kemur fram í Bændablaðinu sem kemur út á morgun.

Löggan komin á Instagram

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynnti í dag að hér eftir yrðu þeir virkir á Instagram, sem er ljósmyndaforrit sem notað er á snjallsímum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var í ár tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna fyrir notkun á samfélagsmiðlum og með innreið sinni á Instagram bætir hún enn í vopnabúr sitt á þeim vígvelli.

Ögmundur afhjúpar nýtt minnismerki um Hrafna-Flóka

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, mun á laugardaginn vígja nýjan minnisvarða um Hrafna Flóka sem nam land á milli Reykjarhóls og Flókadalsár í Fljótum. Minnisvarðinn stendur á mótum Siglufjarðarvegar og Flókadalsvegar vestari. Það er hópur áhugamanna um uppbyggingu í Fljótum sem stendur að gerð minnisvarðans um þennan fræga landnámsmann sem gaf landinu nafnið Ísland. Hönnuður minnisvarðans er Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson.

Ölvaður maður sparkaði óvart í bíl

Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið kærður til lögreglunnar á Suðurnesjum fyrir að sparka í bíl og skemma hann fyrir utan skemmtistað í Reykjanesbæ. Maðurinn játaði verknaðinn fyrir lögreglu en taldi sér það til afsökunar að hann hefði ætlað að sparka í dekk bílsins en sökum ölvunar hefði hann ekki hitt það heldur sparkað óvart í bílinn sjálfan með fyrrgreindum afleiðingum. Hann kvaðst hafa orðið pirraður á farþegum bílsins sem legið hefðu á flautunni í tíma og ótíma.

Íslendingar bera sig vel þrátt fyrir tapið

Viðbrögð Íslendinga við útslitum í átta liða úrslitum voru að sjálfsögðu vonbrigði. Eins og venja er lýstu margir þeirra hugsunum sínum á facebook- og twittersíðum sínum á meðan að á leiknum stóð og skömmu eftir hann.

Þarf að skoða þjálfun sundlaugarvarða

Herdís Storgaard verkefnastjóri barnaslysavarna segir áhyggjuefni að í langflestum tilfellum komi gestir sundlauga börnum til bjargar sem hafa nærri drukknað en ekki starfsmenn lauganna. Skoða þurfi vandlega öryggisráðstafanir sundlauga og þjálfun sundlaugarvarða.

Framsóknarmenn vilja Fréttatímann

Aðilar tengdir Framsóknarflokknum og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni hans, vilja kaupa vikublaðið Fréttatímann, að því er DV fullyrðir. Fullyrt er að menn tengdir útgáfufélagi Tímans, sem um tíma rak vefsvæðið timinn.is, hafi gert tvö tilboð í blaðið.

Slökkviliðið kallað að mannlausum fiskibát

Slökkvilið Húsavíkur var kallað út seint í gærklvöldi að mannlausum fiskibáti, sem þar var í höfn, eftir að svo virtist sem reyk legði upp af honum. Í ljós kom að slökkvikerfi þar um borð hafði farið í gang og sprautað einskonar dufti vítt og breitt, meðal annars um vélarrúmið. Svona kerfi á ekki að geta farið sjálfkrafa í gang, því duftið étur upp súrefni og getur því reynst mönnum lífshættulegt. Eigendur bátsins unnu að hreinsun um borð í alla nótt og farið verður yfir kerfið áður en haldið verður úr höfn. -

Læknir fyrstur á vettvang eftir slys á Dettifossvegi

Það var lán í óláni hjá tveimur erlendum ferðamönnum, sem kenndu sér meins eftir útafakstur af Dettifossvegi í gærkvöldi, að maður í fyrsta bíl sem bar að, var erlendur læknir. Hann hlúði þegar að fólkinu og íslendingur sem kom svo á vettvang, túlkaði allar upplýsingar hans um líðan fólksins til starfmanna Neyðarlínunnar, sem ráðfærðu sig við lækna á Húsavík. Sjúkrabíll var sendur eftir fólkinu og flutti það á sjúkrahúsið á Akureyri.

Sumarhúsin seljast vel en fá eru byggð

Velta á nýjum kaupsamningum vegna sumarhúsa er að aukast á ný en byggingarframkvæmdir vegna nýrra húsa hafa dregist saman. Ný hús eru að meðaltali tvöfalt stærri í dag en fyrir tuttugu árum. Velta vegna kaupsamninga var 2,1 milljarður í fyrra eins og árið 2006, en var 4,2 milljarðar árið 2007.

Russell Crowe hjólaði í Bláa lónið

Leikarar myndarinnar Noah eru enn staddir hér á landi. Ekki ber á öðru en að aðalleikarinn, Russell Crowe, nýti frítíma sinn vel í að halda sér í góðu líkamlegu formi. Hann greinir ítarlega frá æfingum sínum á Twittersíðu sinni. Í gær sagði hann til dæmis frá því að hann hefði hjólað 50 kílómetra þegar hann fór úr Fossvoginum í Bláa lónið. Í gær hélt hann svo æfingum áfram með lyftingum. Leikstjóri myndarinnar Darren Aronofsky er aftur á móti meira með hugann við myndina en hann hefur þegar birt nokkrar myndir úr fjörunni í Vík, þar sem tökur fóru fram í gær og í fyrradag og víðar.

Þyrla mögulega kölluð til vegna jarðelda

Verið er að kanna möguleika á að senda þyrlu Landhelgisæslunnar til að taka þátt í slökkvistarfi vegna jarðelda í Laugardal í Súðavíkurhreppi við Ísafjarðardjúp.

Þó nokkur skjálftavirkni í nótt

Fjölmargir jarðskjálftar urðu í gær og í nótt víða um land, en engin mældist þó yfir þremur á Richter. Þó nokkrir urðu á Hengilssvæðinu á Suðurlandi, nokkrir í Mýrdalsjökli og aðrir í norðanverðum Vatnajökli.

Skipverji fékk hjartaáfall

Skipverji á skemmtiferðaskipinu Saga Sapphire fékk hjartaáfall þegar skipið var statt út af Langanesi í gærkvöldi á leið sinni frá Seyðisfirði til Akureyr

Hvað er tilapía?

Tilapía, sem einnig hefur verið nefndur beitifiskur eða Hekluborri, er hlýsjávarfiskur upprunninn í Afríku. Hefur hann stundum verið kallaður "kjúklingur hafsins“ þar sem kjötið minnir frekar á kjúkling en fisk. Hann er fjórði vinsælasti fiskurinn hjá neytendum í Bandaríkjunum og verður sífellt vinsælli í Evrópu. Íslensk matorka undirbýr nú umfangsmikið eldi á þessum fiski á Suðurnesjum.

Kaupfélagið sem má ekki heita Kaupfélag

„Það var bara hálfgerð sveitaballastemning við opnunina,“ segir Andrea Vigfúsdóttir en hún opnaði ásamt eiginmanni sínum, Jóni Eysteini Bjarnasyni, verslun á Óspakseyri við Bitrufjörð í síðustu viku.

Ferðalag í anda Indiana Jones

Hópurinn sem stefnir á að leggja land undir fót og ferðast frá Reykjavík til Höfðaborgar í Suður-Afríku kallar sig Vikings Across Africa.

Gistinóttum fjölgar mikið

Gistinóttum á hótelum í júní fjölgaði um 13 prósent miðað við sama tíma í fyrra. Alls voru þær 202.500 í ár, en 178.800 í fyrra, að því er kemur fram í gögnum Hagstofu Íslands. Með gistinóttum er átt við útleigu á herbergjum í eina nótt. Erlendir gestir eru 86 prósent þeirra sem gista á hótelum, en innlendum sem erlendum gestum fjölgaði um þrettán prósent.

Eftirlifandi flytur ávarp

Árleg kertafleyting íslenskra friðarsinna í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á Hírosíma og Nagasakí 6. og 9. ágúst 1945 fer fram annað kvöld í Reykjavík og á Akureyri.

Rannsakar áfram þrjár nauðganir í Eyjum

Rannsókn stendur enn yfir á þremur nauðgunum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um liðna verslunarmannahelgi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Eyjum voru brotin öll framin í Herjólfsdal. Einn var handtekinn í tengslum við eina nauðgunina en honum var sleppt að yfirheyrslum loknum.

Gönguljósin færð austar

Gangbraut yfir Hringbraut við Þjóðminjasafn Íslands verður færð nokkrum metrum austar svo hún tengist aðliggjandi gönguleiðum betur. Framkvæmdir hefjast klukkan átta í kvöld og standa fram eftir nóttu þar sem gönguljós og merkingar verða færð til.

Ferðamenn prjóna þríhyrnur

Norræn prjónaráðstefna er nú haldin í Hjálmakletti í Borgarnesi en eigendur blaðsins Lopa og bands standa að viðburðinum.

Fossinn Hverfandi birtist á ný

Hálslón hefur náð yfirfallshæð og er nú 625 metrum yfir sjávarmáli. Vatn úr lóninu mun því á næstunni renna á yfirfalli niður í farveg Jökulsár á Dal. Við það myndast fossinn Hverfandi við vestari enda Kárahnjúkastíflu niður að gljúfurbarminum og steypist þar hátt í 100 metra niður í Hafrahvammagljúfur.

Iceland Express ekki til Berlínar

Iceland Express mun ekki fljúga til Berlínar allan ársins hring eins og auglýst hefur verið. Flugfélagið hefur verið í markaðsátaki í Þýskalandi í sumar en mun þó ekki fljúga til Berlínar í vetur. Flogið verður fram í október en ekkert þar til næsta vor.

Fluttu og skildu hundinn eftir

Íbúar í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði fluttu þaðan út um verslunarmannahelgina án þess að taka hundinn sinn með. Ábendingar um þetta bárust lögreglu höfuðborgarsvæðisins í fyrrakvöld.

Grunur um íkveikju í báti

Lögreglan á Selfossi hefur til rannsóknar bruna sem varð í dragnótabátnum Arnari ÁR-55 í Þorlákshöfn á mánudagsmorgun.

Brynjar er búinn undir fjaðrafok vegna umsóknarinnar

Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður, er undir það búinn að umræða blossi upp í samfélaginu um mögulega skipun hans í embætti Hæstaréttardómara. Menn muni kalla hann umdeildan og hafa áhyggjur af að með skipun hans verði traust dómstóla fyrir borð borið.

Þyrla sækir mann út í skip

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrr í kvöld vegna veikinda um borð í erlendu farþegaskipi. Skipið er staðsett út fyrir Langanesi. Samkvæmt frétt mbl.is var fékk áhafnarmeðlimur á skipinu hjartaáfall. Þyrla gæslunnar mun að öllum líkindum koma að skipinu laust fyrir miðnætti í kvöld.

Áttu flottustu innkomuna á Þjóðhátíð í fallhlíf

Menn eru misjafnlega töff á Þjóðhátíð. Flestir eru reyndar ekki sérlega töff, í asnalegum búningum eða klæddir í pollagalla. Tveir einstaklingar áttu þó óumdeilanlega vinninginn í töffarakeppni hátíðarinnar því þeir mættu á Þjóðhátíð í fallhlíf, svifu tígulega inn í Herjólfsdal.

Ætla að enda í Vík í kvöld

Hjólatúr Róberts Þórhallssonar hringinn í kringum landið fer vel af stað, sagði Baldvin Sigurðsson félagi hans í kvöld. Hjólreiðatúrinn er farinn til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Þeir Róbert og Baldvin voru búnir að vera á ferðinni í fjóra klukkutíma þegar Vísir náði tali af Baldvin og voru komnir að Markarfljóti. “Þetta gengur bara mjög vel,” sagði Baldvin

Samráðshópur ráðherra fundaði í fyrsta sinn

Fyrsti fundur samráðshóps ráðherra og ráðuneyta til að fara yfir álitamál tengd erlendri fjárfestingu á Grímsstöðum á Fjöllum fór fram í dag. Enn liggur ekki fyrir hve lengi hópurinn mun starfa.

Lyfjanotkun getur orsakað minnistap

Aukaverkanir lyfja eru ein algengasta orsökin fyrir minnistapi. Þetta segir Dr. Sigmundur Guðbjarnason hjá Saga Medica í viðtali við Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag.

Kynna bókmenntir sem tengjast samkynhneigð

Hinsegin bókmenntaganga mun fara fram föstudaginn næstkomandi. Þar munu bókmenntafræðingurinn Úlfhildur Dagsdóttir og leikarinn Darren Foreman kynna fyrir gestum og gangandi íslenskar bókmenntir sem fléttast á einhvern hátt um samkynhneigð.

Sjá næstu 50 fréttir