"Handbolti er grundvöllur að tilveru Íslendinga" BBI skrifar 8. ágúst 2012 19:34 Ólafur er sagður einn besti handknattleiksmaður sögunnar. Mynd/Valgarður
Útlendingar virðast standa í þeirri trú að handbolti sé það eina sem getur mögulega gefið Íslendingum einhverja ástæðu til að vera til, ef marka má grein sem birtist í Financial Times í dag undir fyrirsögninni „Handball gives Iceland key to existence" sem á Íslensku mætti útleggjast „Handbolti er grundvöllur að tilveru Íslendinga". Í greininni tekur blaðamaður púlsinn á ýmsum aðilum sem hafa eitthvað með silfurdrengi Íslands að gera, hvort sem það eru fræðimenn, þjálfarar eða leikmennirnir sjálfir. Þar er Ólafi Stefánssyni hampað sérstaklega og hann sagður „einn besti handboltaleikmaður allra tíma". Einnig er þar rifjað upp þegar handboltaliðið vann silfur á Ólympíuleikunum í Bejing árið 2008, hvernig þjóðarstoltið blómstraði og hvernig kreppan kaffærði landið í kjölfarið. „Mér fannst þetta næstum því vera mér að kenna," segir Ólafur Stefánsson við blaðamann um fjármálakreppuna sem skall á stuttu eftir að liðið vann silfur. „Fannst eins og fólk hefði ekki verið á varðbergi út af okkur." Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari minnist í greininni á að Íslendingar hafi engan þjóðarher. „Svo að með handbolta berjumst við fyrir viðurkenningu," segir hann. Í dag biðu sigurvonir Íslendinga skipbrot þegar liðið tapaði gegn Ungverjalandi með eins marks mun. Það er miður enda segir stjórnmálafræðingurinn Eiríkur Bergmann í umræddri grein „Þegar handboltaliðinu gengur vel er það hluti af endurvakningu þjóðarsálarinnar." Þjóðarsálin verður því að finna sér ný meðul eftir daginn.
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Sjá meira