Innlent

Versta fjöldamorð norðurlanda á okkar tímum

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Fjöldamorðin í stjórnarráðshverfinu í Ósló og Útey eru þau versta á norðurlöndum á okkar tímum. Ljóst er að voðaverkin eru afrakstur margra ára undirbúnings Anders Behring Breivik. Afleiðinga þeirra verður þó fundið um ókominn ár.

Fyrstu fregnir af voðaverkunum í Noregi voru óljósar. Mikil ringulreið myndaðist Ósló í kjölfar sprengjutilræðisins. Yfirvöld og fjölmiðlar einblíndu á höfuðborgina á meðan Breivik ók í átt að Útey. Átta létust í sprengingunni í stjórnarráðshverfinu og hátt í 200 særðust, þar af margir alvarlega.

Nú er orðið ljóst að Breivik notaðist við áburð og brennsluolíu þegar hann bjó til sprengjuna. Hann lagði síðan bíl fyrir utan skrifstofur Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs. Eins og sjá má þessum myndum var sprenging afar öflug og eyðilegging mikil. En á meðan óðagotið stóð yfir í Osló fékk Breivik tækifæri til að athafna sig í Útey. Lögregluyfirvöld komust þó fljótt á snoðirnar um atburðina í Útey en heildarmynd hryllingsins var þó enn á huldu.

Sextíu og níu manns létust í Útey en rúmlega fimm hundruð og tuttugu ungmenni og skipuleggjendur voru á eyjunni. Hundrað og tíu særðust. Skotárásin stóð yfir í rúma eina og hálfa klukkustund. Nokkrir reyndu að synda í land í ísköldu vatninu á meðan aðrir leituðu skjóls við strendur eyjunnar. Það var síðan sérsveit norsku lögreglunnar sem handsamaði loks Breivik. Björgunarmenn og sjúkraliðar gátu þá hafið björgunarstörf. Sögur þeirra sem komust lífs af eru martröð líkastar. Breivik er sagður hafa verið yfirvegaður og skipulagður.

Það var síðan sextánda apríl síðastliðinn þegar Breivik var fluttur frá Ila öryggisfangelsinu til héraðsdómshússins í Osló. Breivik heilsaði að hætti fasista þegar hann var leiddur inn í dómssalinn. Breivik hefur gengist við sakargiftum en réttlætir verkanaðinn með því að vísa í neyðarvarnarsjónarmið. Fjöldamorðin hafi verið viðbragð við fjölmenningarstefnu norskra yfirvalda sem hann telur að hafi stofnað heill þjóðarinnar í hættu.

Talið er að dómur í máli Breiviks verði kveðinn seint í næsta mánuði. Verði hann fundinn sakhæfur á hann yfir höfði sér tuttugu og eins árs hámarksrefsingu. Ef hann verður úrskurðaður geðveikur verður hann að öllum líkindum dæmdur til vistunar á viðeigandi stofnun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×