Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ráðuneytisstjóri stýrir makrílviðræðum Sjávarútvegsráðherra hefur falið Sigurgeir Þorgeirssyni ráðuneytisstjóra í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu að leiða viðræðunefnd Íslands um skiptingu makrílstofnsins. Að viðræðunum koma auk Íslands hin strandríkin Færeyjar, Noregur, Evrópusambandið og Rússland sem veiðir sinn makríl á úthafinu. Viðræðunefndina munu einnig skipa fulltrúar frá utanríkisráðuneytinu, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu og frá útvegsmönnum, auk þess sem sérfræðingar frá Hafrannsóknarstofnuninni verða til ráðgjafar. Tómas Heiðar fór áður fyrir samninganefnd Íslands, en hann var kallaður til annarra starfa fyrir utanríkisráðuneytið. 7.6.2012 10:21
Vertinn á Kaffivagninum: Aldrei séð jafn mikið af skipum hérna "Ég hef aldrei séð svona mikið af skipum hérna,“ segir Stefán Kristjánsson eigandi Kaffivagnsins en það var rólegt að gera hjá honum þrátt fyrir að svo mörg skip væru komin til hafnar. 7.6.2012 10:06
Vill eftirlit eftir afplánun Ögmundur Jónasson segir í aðsendri grein til DV að eftirlit með dæmdum mönnum geti verið nauðsynlegt eftir afplánun. Hann stefnir á að leggja fram frumvarp um málið á haustþingi. 7.6.2012 10:00
Björn Valur sakaði þingmann um að vera drukkinn í þingsal Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður VG, sakaði samþingmann sinn um að vera undir áhrifum áfengis í þingsal þegar þingfundur stóð yfir rétt eftir klukkan eitt í nótt. Verið var að ræða frumvarp um veiðigjöld. "Sýnist mér einn þeirra þingmanna sem hér fer mikinn í þingsal í kvöld vera undir áhrifum áfengis og myndi vilja að forseti þingsins kannaði það frekar,“ sagði Björn Valur. Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins fullyrti þá að Björn Valur hefði átt vð sig. 7.6.2012 09:35
Neyðaraðstoð Íslendinga í Gambíu Rauði krossinn á Íslandi hefur nú í júní dreifingu á matvælum og útsæði til þeirra 50.000 manna sem verst þjást af matarskorti í Gambíu, einu fátækasta ríki heims. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í landinu í kjölfar meiriháttar uppskerubrests. Uppskerubrestur og matvælaskortur í líkingu við ástandið nú hefur ekki verið í Gambíu í um 15 ár. Síðasta hrísgrjónauppskera, aðalfæða landsmanna, hrundi um nær 80% og aðaltekjulindin, jarðhneturækt, um nær 70%. 7.6.2012 09:27
Þriðjungur of feitur í Fellaskóla Mikill munur er á fjölda barna í ofþyngd eftir hverfum á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt könnun sem gerð var fyrir nokkrum árum á sextán þúsund börnum á grunnskólaaldri. Þetta kom fram í þætti Ingu Lindar Karlsdóttur, Stóru þjóðinni, á Stöð 2 í gærkvöldi. 7.6.2012 09:15
Fundu sprautur í nágrenni leikskóla Notaðar sprautunálar fundust við göngustíg í Hafnarfirði í gær. Í næsta nágrenni við fundarstaðinn eru leikskólinn Arnarberg, Iðnskólinn í Hafnarfirði og íþróttamiðstöðin Björk. 7.6.2012 09:00
Sagnfræðirannsóknir í brennidepli Íslenska söguþingið verður sett í kvöld og mun standa fram á sunnudag í húsakynnum Háskóla Íslands. 7.6.2012 08:45
Fjárveitingar duga ekki fyrir viðhaldi Bjarni Stefánsson hjá Vegagerðinni segir fjárveitingar í endurnýjun vegakerfisins ekki nægilegar til að sinna brýnum verkefnum. Vegagerðin eyðir rúmlega 600 milljónum í endurnýjun vega. Reykjavíkurborg eyðir 300 milljónum í götur. 7.6.2012 08:00
Kvótafrumvarp gæti eyðilagt fiskmarkaðina Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda, sem sækja hráefni sitt að verulegu leiti á fiskmarkaði, óttast að ef frumvarp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða verði að lögum, muni fiskmarkaðir leggist af. 7.6.2012 07:16
Tveir ölvaðir stungu af frá ógreiddum reikningi á veitingahúsi Tveir ölvaðir karlmenn fóru mikinn í miðborginni í gærkvöldi og byrjuðu á að stinga af frá ógreiddum reikningi á veitingahúsi. 7.6.2012 07:00
Falun Gong í Kongens Have Forseti Kína, Hu Jintao, mun heimsækja Danmörku í næstu viku. Meðlimir Falun Gong eru nú þegar byrjaðir að skipuleggja mótmæli í Kaupmannahöfn, nánar tiltekið í Kongens Have. Frá þessu er greint á vef danska dagblaðsins Politiken. 7.6.2012 07:00
Örtröð í Reykjavíkurhöfn, mörg skip bíða eftir viðleguplássi Örtröð er nú í gömlu Vesturhöfninni í Reykjavík og bíða mörg skip þess úti á sundum að komast inn. 7.6.2012 06:56
Umræða um veiðigjald hefur staðið í fjóra daga 16 voru enn á mælendaskrá þegar umræðu veiðigjald var frestað á Alþingi um klukkan hálf tvö í nótt. Umræðan hefur nú staðið í fjóra daga. 7.6.2012 06:54
Eldur í litlum handfærabát norður af Húsavík í nótt Eldur kviknaði í vélarhúsi lítils handfærabáts norður af Húsavík um miðnætti. 7.6.2012 06:50
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins komið til Akureyrar Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Akureyrar á sjöunda tímanum í morgun. Það heitir Arion og er fyrst margra slíkra skipa sem væntanleg eru til Akureyrar í sumar. 7.6.2012 06:45
Rjúpu hefur fækkar um fjórðung milli ára Rjúpu fækkar um nær allt land að því er fram kemur í talningu Náttúrufræðistofnunar Íslands í vor. 7.6.2012 06:45
Fundu fíkniefni, landa, stera, rafbyssu og lifandi snáka Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann á heimili hans í austurborginni í gærkvöldi vegna gruns um að hann stundaði fíkniefnasölu. 7.6.2012 06:38
Ferðamönnum fjölgar áfram Ríflega 45 þúsund ferðamenn fóru frá Íslandi um Leifsstöð í maímánuði, um átta þúsundum fleiri en í maí 2011 sem þó var metmánuður. Samkvæmt tölum Ferðamálastofu hefur ferðamönnum um Leifsstöð fjölgað um 20,7 prósent frá áramótum miðað við sama tíma í fyrra. 7.6.2012 06:30
Segja fleiri dæmi um leyndarhjúp Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í minnihluta borgarstjórnar vilja að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) geri opinberar fjárhæðir allra fjárfestinga, fjárframlaga og lána fyrirtækisins til Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. og Línu.nets hf. Bókun þar að lútandi var lögð fram á síðasta fundi borgarstjórnar. 7.6.2012 06:15
Cothran á batavegi Keith Cothran, sem lék með Stjörnunni í körfuknattleik í vetur, er á batavegi eftir að hafa verið skotinn í höfuðið í síðustu viku. Hann er nú farinn að standa upp úr rúmi sínu og gengur um á spítalanum sem hann dvelur á. Læknar eru vongóðir um að hann nái sér að fullu. 6.6.2012 21:20
Á annan veg endurgerð í Bandaríkjunum - Hollywood-stjarna í aðalhlutverki "Það er búið að skjóta myndina en við getum ekki tjáð okkur um þetta fyrr en við fáum grænt ljós frá þeim í Bandaríkjunum," segir Davíð Óskar Ólafsson, einn af framleiðendum íslensku gamanmyndarinnar Á annan veg. 6.6.2012 20:29
Þrýst á sjómenn að taka þátt í mótmælaaðgerðum Útvegsmenn beita sjómönnum fyrir sig í kvótadeilunni og þrýst er á suma þeirra að taka þátt í mótmælaaðgerðum. Þetta segir formaður Sjómannasambands Íslands. Útgerðarmenn hafna þessu. 6.6.2012 19:46
Að minnsta kosti einn hælisleitandi eldri en 18 ára Niðurstöður úr aldursgreiningu á fimm hælisleitendum liggja nú fyrir. Lögmaður eins þeirra íhugar að kæra niðurstöðuna. 6.6.2012 19:42
Vill gefa forsetaframbjóðendum frið Í tæpa hálfa öld hefur Alþingi ávallt lokið störfum að minnsta kosti fjórum vikum fyrir forsetakosningar og stundum mun fyrr. Í dag eru hinsvegar tuttugu og fjórir dagar í forsetakjör og ekkert útlit fyrir að þingmenn komist að samkomulagi. 6.6.2012 19:15
Hefur hótað lögmanninum áður Tveir menn réðust inn á lögmannsskrifstofu við Lækjartorg í dag og veittust að eiganda hennar. Ofbeldismennirnir höfðu áður haft í hótunum við starfsfólkið. 6.6.2012 18:37
Dani og Finnar skipta með sér 103 milljónum Enginn Íslendingur var með 1. vinning í Víkingalottóinu í kvöld heldur skipta tveir Finnar og einn dani með sér um 103 milljónum króna. Einn Íslendingur var þó með fimm jókertölur í réttri röð og fær hann tvær milljónir í sinn hlut. Fimm voru með fjórar í réttri röð og fá þeir 100 þúsund krónur. 6.6.2012 18:29
Guðbjartur deilir áhyggjum af svartri atvinnustarfsemi Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, deilir áhyggjum vinnumálastofnunar af svartri atvinnustarfsemi. Hann tekur undir athugasemdir Vinnumálastofnunar um að efla beri eftirlit og endurskoða löggjöf og segist munu fylgja þeim tillögum eftir. 6.6.2012 17:12
Um einn ferkílómetri brann í Heiðmörk Slökkvistörfum í Heiðmörk lauk fyrir stuttu. Slökkviliðsmenn eru enn á svæðinu við frágang og fylgjast um leið með því hvort eldurinn taki sig upp aftur. 6.6.2012 16:53
Stal fötum fyrir hálfa milljón Karlmaður um þrítugt var dæmdur í átta mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað og skjalafals í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann var m.a. fundinn sekur um ítrekaðan þjófnað úr matvöruverslunum og að framvísa fölsuðum lyfseðli í lyfjaverslun. Í eitt skipti hafði hann svo tekið föt fyrir næstum hálfa milljón króna í fangið og hlaupið með út úr fatabúð. Það brot flokkaðist undir gripdeild sem þýðir að stela hlutum fyrir allra augum án þess að reyna að leyna afbrotinu. 6.6.2012 16:25
Ráðist á starfsmann lögmannsstofu Ráðist var inn á lögfræðistofu í Miðbæ Reykjavíkur um hálfþrjúleytið í dag. Tveir menn voru að verki og réðust þeir á starfsmann stofunnar. Þá höfðu þeir brotið og bramlað muni í stofunni. Á meðan á þessu stóð höfðu þeir í hótunum við starfsmanninn en voru farnir af staðnum þegar lögreglan kom. Ekki urðu meiðsl á fólki. Lögreglan veit hverjir voru að verki. 6.6.2012 16:21
Vinnuvélarnar komnar í Kjálkafjörð Langþráð vegarlagning á sunnanverðum Vestfjörðum hófst í gær þegar Suðurverk mætti með fyrstu vinnuvélarnar í Kjálkafjörð. Þegar verkinu lýkur eftir þrjú ár styttast holóttir malarkaflar milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur úr 53 kílómetrum niður í 29 kílómetra. Þetta er langstærsta verk í vegagerð sem ráðist hefur verið í á Íslandi eftir hrun en vinnan mun standa næstu þrjú ár og kosta um þrjá milljarða króna. Vestfjarðavegur, milli Eiðis við Vattarfjörð og Þverár í Kjálkafirði, verður endurbyggður á 24 kílómetra kafla og styttur um 8 kílómetra með brúm og vegfyllingum yfir tvo firði, Kjálkafjörð og Mjóafjörð. 6.6.2012 15:30
Fyrrverandi leiðtogi Vítisengla laus úr gæsluvarðhaldi Einar "Boom“ Marteinsson var látinn laus úr gæsluvarðhaldi fyrir stundu. Hann hefur setið á Litla Hrauni síðan þrettánda janúar síðastliðinn, eða í tæpa fimm mánuði. Hann var ákærður fyrir að skipuleggja og eiga aðild að hrottalegri líkamsárás á konu um síðustu jól. Fimm aðrir voru ákærðir vegna málsins. Á meðan Einar sat í gæsluvarðhaldi hætti hann sem formaður Vítisengla. Samkvæmt skýrslu sem lögreglan vann um starfsemi Vítisengla var hann kosinn út í svokölluðu "Bad Standing“. 6.6.2012 15:21
Sælir krakkar sóttu einkunnir sínar Þau voru glöð krakkarnir í Hlíðaskóla þegar skólanum var slitið í dag. Framundan er sumarfrí með fjölmörgum ævintýrum, eins og vera ber. "Þau voru mjög spennt og þetta fór allt mjög vel fram,“ segir Kristrún Guðmundsdóttir skólastjóri. Hún segir að tveir árgangar hafi komið saman inni á sal skólans í einu og tekið á móti einkunnarspjöldum. 6.6.2012 14:56
Mæðgin tekin fyrir framleiðslu fíkniefna Kona á sextugsaldri hefur viðurkennt að hafa staðið að framleiðslu og sölu fíkniefna. Hún játaði sök við yfirheyrslu eftir að lögreglan hafði stöðvað kannabisræktun á heimili hennar í vesturbæ Reykjavíkur í síðustu viku en þar var einnig að finna talsvert af tilbúnu marijúana. Sonur konunnar var einnig yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar en hann mun hafa komið að sölu fíkniefnanna. Konan, sem upplýsti að kannabisræktunin hefði staðið yfir í nokkurn tíma, var mjög ósátt með afskipti lögreglu og taldi að laganna verðir ættu frekar að einbeita sér að þeim sem væru stórtækir við framleiðslu og sölu fíkniefna. Sjálf væri hún ekki í þeim hópi. 6.6.2012 15:46
Frábær þátttaka í ljósmyndaleik Vísis og Wow Ljósmyndakeppni Vísis og WOW air fór af stað með látum um síðustu helgi. Á örfáum dögum hafa borist mörg hunduð myndir í keppnisflokkana þrjá og eins og sjá má á heimasíðu keppninnar hér á Vísi, visir.is/wow, eru margar þeirra líklegar til að ná langt. 6.6.2012 15:00
Hraðbraut hættir starfsemi Við blasir að starfsemi Menntaskólans Hraðbrautar verður hætt nú að skólaárinu loknu, í bili að minnsta kosti. Ólafur Johnson, skólastjóri Hraðbrautar, segir að reynt verði að aðstoða nemendur á fyrra námsári til að tryggja þeim skólavist annars staðar eins farsællega og kostur er. Sama eigi við um kennara og aðra starfsmenn Hraðbrautar sem margir hafi leitað á aðrar slóðir, með góðum árangri í flestum tilvikum. 6.6.2012 14:14
Varna því að fólk kaupi of mikið sælgæti Veggspjöld sem hjálpa neytendum við að kaupa ekki óhóflegt magn af sælgæti hafa verið sett upp í nokkrum Krónuverslunum. Fyrirtækið sýnir samfélagslega ábyrgð með verkefninu segir Steinar Aðalbjörnsson næringarfræðingur hjá Matís. 6.6.2012 14:07
Stakk pilt ítrekað með brotinni glerflösku Tveir tæplega tvítugir karlmenn voru handteknir á hátíðinni "Sjóaranum síkáta" í Grindavík um síðustu helgi, grunaðir um stórfelldar líkamsárásir í tveimur aðskildum málum. Annar þeirra var staðinn að því að berja mann á sextugsaldri með flösku. Í hinu tilvikinu stakk hinn meinti árásarmaður átján ára pilt nokkrum sinnum í handlegginn með brotinni glerflösku. Gerendurnir voru báðir fluttir á lögreglustöð þar sem skýrsla var tekin af þeim og var þeim sleppt að því loknu. 6.6.2012 13:55
Rúmenar klárir í að halda EM | Ákvörðun tekin innan tveggja vikna Evrópska handknattleikssambandið, EHF, greinir frá því að Rúmenar séu tilbúnir að halda Evrópumót kvenna í handknattleik í desember á þessu ári. Rúmenía er ellefta þjóðin að sögn EHF sem lýsir yfir áhuga sínum að halda mótið. 6.6.2012 11:15
Fylgst verður með aðsetrum dæmdra kynferðisbrotamanna Unnt verður að fylgjast með dvalarstað þeirra sem dæmdir hafa verið fyrir kynferðisbrot gegn börnum í framtíðinni. Barnaverndastofa mun sjá um eftirlitið og vinnur að verkferlum um það hvernig slíku eftirliti verður háttað. Þá stendur jafnframt til að breyta hegningarlögum þannig að unnt verði að dæma kynferðisbrotamenn til meðferðar. Barnaverndalögum var breytt í fyrra með slíka heimild í huga en Álfheiður Ingadóttir, 6.6.2012 10:40
Samfylkingin frestar flokkstjórnarfundi vegna þingstarfa Framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar ákvað á fundi sínum í gær að fresta flokksstjórnarfundi sem boðaður var á föstudag og laugardag. Ástæðan er sú að störfum Alþingis er ekki lokið. Margrét Björnsdóttir, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, segir í tölvupósti til flokkstjórnarmanna að eðlilegt sé að taka tillit til þess að þessi tuttugu manna hópur flokksstjórnarfulltrúa gæti verið við skyldustörf á sama tíma og flokksstjórnarfundur yrði haldinn. Stjórn flokksins var falið að finna nýja dagsetningu fyrir flokksstjórnarfundinn. 6.6.2012 10:13
Fórnarlambinu á Hlemmi sárnar að vera kallað utangarðsmaður Manninum sem öryggisvörður á Hlemmi gekk í skrokk á um síðustu helgi sárnar það að vera kallaður utangarðsmaður í netmiðlum. Hann ætlar að kæra öryggisvörðinn fyrir líkamsárás og fara í skaðabótamál gegn Strætó.bs. 6.6.2012 06:22
Miklir gróðureldar í Heiðmörk Miklir gróðureldar eru nú í Heiðmörk, skammt frá Maríuhellum. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir liðsinni Landhelgisgæslunnar við starfið. Í slíku starfi eru notaður vatnspoki sem hangir úr þyrlunni. 6.6.2012 15:30
Sigla til Reykjavíkur til að mótmæla Tugir fiskiskipa munu á morgun sigla af landsbyggðinni og til Reykjavíkur til að mótmæla frumvörpum stjórnvalda um veiðigjöld og stjórn fiskveiða. LÍÚ stendur fyrir samstöðufundi klukkan 16:00 á Austurvelli. 6.6.2012 14:08