Innlent

Ráðist á starfsmann lögmannsstofu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ráðist var inn á lögfræðistofu í miðbæ Reykjavíkur um hálfþrjúleytið í dag. Tveir menn voru að verki og réðust þeir á starfsmann stofunnar. Þá höfðu þeir brotið og bramlað muni í stofunni. Á meðan á þessu stóð höfðu þeir í hótunum við starfsmanninn en voru farnir af staðnum þegar lögreglan kom. Ekki urðu meiðsl á fólki. Lögreglan veit hverjir voru að verki.

Einungis rétt liðlega tveir mánuðir eru liðnir síðan ráðist var inn á lögmannsstofuna Lagastoð og framkvæmdastjóra hennar veittir lífshættulegir áverkar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×