Innlent

Tveir ölvaðir stungu af frá ógreiddum reikningi á veitingahúsi

Tveir ölvaðir karlmenn fóru mikinn í miðborginni í gærkvöldi og byrjuðu á að stinga af frá ógreiddum reikningi á veitingahúsi.

Því næst réðust þeir að starfsfólki á öðru veitingahúsi og brutu þar rúðu, en þá skarst lögreglan í leikinn og handtók þá. Þeir sofa nú úr sér ölvímuna í fangaklefum, líklega á sama gangi og ölvaði erlendi sjómaðurinn sem var handtekinn á lokuðu hafnarsvæði í gærvöldi.

Sjómaðurinn hafði klifrað yfir girðingu að svæðinu og ætlaði til skips, en það var bara vitlaust skip, því skipið hans lá við allt aðra bryggju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×