Innlent

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins komið til Akureyrar

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Akureyrar á sjöunda tímanum í morgun. Það heitir Arion og er fyrst margra slíkra skipa sem væntanleg eru til Akureyrar í sumar.

Algengt er að gestirnir fari í rútuferð að Goðafossi og í Mývatnssveit, en það færist í vöxt að farþegar eyði deginum í bænum, og nýti sér jafnvel að það er frítt í strætó á Akureyri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×