Innlent

Sælir krakkar sóttu einkunnir sínar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þegar myndatökumaður Stöðvar 2 og Vísis heimsótti Hlíðaskóla í dag var 3 BB að sækja einkunnir sínar.
Þegar myndatökumaður Stöðvar 2 og Vísis heimsótti Hlíðaskóla í dag var 3 BB að sækja einkunnir sínar.
Þau voru glöð krakkarnir í Hlíðaskóla þegar skólanum var slitið í dag. Framundan er sumarfrí með fjölmörgum ævintýrum, eins og vera ber. „Þau voru mjög spennt og þetta fór allt mjög vel fram," segir Kristrún Guðmundsdóttir skólastjóri. Hún segir að tveir árgangar hafi komið saman inni á sal skólans í einu og tekið á móti einkunnarspjöldum.

„Við erum búin að gera þetta í nokkur ár að hitta þau á sal með foreldrum sínum," segir Kristrún, sem segir að þetta fyrirkomulag hafi gefist mjög vel. Tíundi bekkur mun svo koma saman klukkan hálfsex og kveðja skólann sinn í síðasta sinn.

Flestir skólar landsins eru að slíta starfinu þessa dagana en börnin mæta svo aftur seinni partinn í ágúst, reynslunni ríkari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×