Innlent

Björn Valur sakaði þingmann um að vera drukkinn í þingsal

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður VG, sakaði samþingmann sinn um að vera undir áhrifum áfengis í þingsal þegar þingfundur stóð yfir rétt eftir klukkan eitt í nótt. Verið var að ræða frumvarp um veiðigjöld. „Sýnist mér einn þeirra þingmanna sem hér fer mikinn í þingsal í kvöld vera undir áhrifum áfengis og myndi vilja að forseti þingsins kannaði það frekar," sagði Björn Valur. Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins fullyrti þá að Björn Valur hefði átt vð sig.

Hann sór fyrir það að hafa bragðað áfengi. „Það er málefnaþurrð og lágkúra í vinnubrögðum meirihluta þingmanna hér þegar komið er fram með þessum hætti. Og ég geri kröfu á það að forsætisnefnd verði kölluð til fundar og ummæli þingmannsins fái viðeigandi meðferð hjá hæstvirtri forsætisnefnd," sagði Jón Gunnarsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×