Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kolmunnastofninn er loksins að braggast Loksins eru komnar fram vísbendingar um að kolmunnastofninn sé að braggast suður af landinu. Þetta er ein af niðurstöðunum úr árlegum rannsóknarleiðangri Árna Friðrikssonar til að kanna ástand kolmunnans og norsk-íslenska síldarstofnsins. 6.6.2012 10:51
Veiðar dótturfyrirtækja vottaðar Dótturfyrirtæki Samherja í Englandi (UK Fisheries Ltd) og í Þýskalandi (DFFU) hafa fengið vottun samkvæmt MSC-staðlinum um sjálfbærar og umhverfisvænar veiðar á þorski, ýsu og ufsa, að því er segir í fréttatilkynningu frá MSC. 6.6.2012 09:30
Esjan gránaði í nótt Esjan gránaði í nótt og veittu vegfarendur því athygli þegar þeir fóru framhjá í morgun að snjólínan liggur niðri í um 600 metra hæð, eða þar sem svokallaður Steinn er. Það er vinsæll áfangastaður þeirra sem ganga á Esjuna. 6.6.2012 09:01
Tvöfalda má framleiðslu úr lífmassa Eitt aðalumfjöllunarefni norræna samstarfsverkefnisins „CO2 Electrofuels“ er hvernig nýta má raforku á sem hagkvæmastan hátt til að tvöfalda magn eldsneytis sem framleiða má úr lífmassa. Þá snýr verkefnið að því að draga úr raforkunotkun þegar eldsneyti er framleitt úr kolsýru. 6.6.2012 09:00
Nær 2.000 íbúðir í eigu ÍLS Um 800 einstaklingar og fjölskyldur leigja hjá Íbúðalánasjóði. Leigjendum hefur fjölgað hratt. Leigutekjur sjóðsins á árinu eru áætlaðar um 1.050 milljónir. Sjóðurinn verður bráðlega með um 400 eignir á sölu. 6.6.2012 08:30
Náði 2. sæti í svifflugskeppni Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands og núverandi Íslandsmeistari í svifflugi, endaði í öðru sæti á opna norska meistaramótinu í svifflugi sem haldið var í Elverum í Noregi 27. maí til 2. júní. 6.6.2012 08:00
Kæra ógildingu framboðsins Fimm einstaklingar hafa kært ógildingu forsetaframboðs Ástþórs Magnússonar til stjórnsýslunnar, Hæstaréttar og Umboðsmanns Alþingis. 6.6.2012 08:00
Stöðva sölu á humarhölum Stöðvuð hefur verið sala á Blámar-humarhölum og varan kölluð af markaði, að því er fram kemur í tilkynningu Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. 6.6.2012 07:45
Gránaði í fjöll fyrir norðan í nótt Það gránaði í fjöll víða á Norðausturlandi í nótt. Á Akureyri gránaði í öll fjöll, og meira að segja efst í Vaðlaheiði. 6.6.2012 07:04
Þyrla sótti alvarlega veika konu á Snæfellsnesi Kona veiktist alvarlega vestur á Snæfellsnesi í nótt og þurfti að komast á sjúkrahús hið bráðasta. 6.6.2012 07:01
Íslendingar gætu náð 500.000 Íslendingar gætu orðið allt að 498 þúsund talsins árið 2061 ef mannfjöldaspá Hagstofu gengur eftir. 6.6.2012 07:00
Umræða um veiðigjöld stóð til miðnættis á Alþingi Önnur umræða um veiðigjöld stóð framundir miðnætti á Alþingi í gær, þriðja daginn í röð, og var henni frestað. Umræðunni verður fram haldið á þingfundi, sem hefst klukkan hálf ellefu. 6.6.2012 06:59
Fjöldi fólks fylgdist með Venus ganga þvert fyrir sólu Fjöldi fólks safnaðist saman við Perluna í Reykjavík í gærkvöldi til þess að fylgjast þegar Venus gengi þvert fyrir sólu og voru skilyrði ákjósanleg. 6.6.2012 06:35
Líkamsárás í Kópavogi Karlmaður réðst á konu í Kópavogi á tólfta tímanum í gærkvöldi og veitti henni talsverða áverka í andliti. 6.6.2012 06:31
Lið Hemma rassskellti fangana á nýjum velli Hemmi Gunn stýrði úrvalsliði fótboltamanna til sigurs gegn liði fanga í fyrsta leik á nýjum fótboltavelli við fangelsið á Litla-Hrauni. Nýi völlurinn var vígður við mikla athöfn á mánudag. Þetta var alveg stórkostlegur dagur, segir Hemmi. 6.6.2012 06:30
Skip LÍÚ bundin við bryggju út vikuna Útvegsmenn munu halda skipum við bryggju út vikuna. Boðað er til allsherjarsamstöðufundar útvegsmanna og starfsfólks í sjávarútvegi á morgun. Forstjóri Brims og sjávarútvegsráðherra skiptust á skoðunum á fundi í Reykjavík í gær. 6.6.2012 05:15
Fangelsið á beinu brautina Arkís arkitektar urðu hlutskarpastir í samkeppni um hönnun á nýju fangelsi á Hólmsheiði. Taka á nýtt fangelsi í notkun árið 2015. Hætt verður að nota Kópavogsfangelsi og Hegningarhúsið við Skólavörðustíg. 6.6.2012 03:00
Íhugar málsókn vegna viðtals í Mannlífi Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra, íhugar að stefna rithöfundinum Einari Kárasyni og Jóhannesi Jónssyni, oft kenndan við Bónus, vegna viðtals sem Einar tók við Jóhannes í tímaritinu Mannlíf fyrir skömmu. 5.6.2012 23:05
Borgarfulltrúi: Alls ekki við hæfi að þiggja boðsferðina "Einar Örn hefur eitthvað misskilið það hvernig fara eigi með siðareglur ef hann heldur að hann geti túlkað þær með þessum hætti," segir Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. 5.6.2012 21:17
Rafbíll tekinn á 124 km hraða "Ég gleymdi mér í góða veðrinu," segir Gísli Gíslason, forstjóri Northern Light Energy. Hann var í gær fyrstur allra til að vera tekinn fyrir of hraðan akstur á rafbíl á Íslandi. Gísli gerir ekki lítið úr alvarleika atviksins og hvetur aðra ökumenn til að fara varlega í umferðinni. Gísli ekur á sportlegum Tesla Roadster-rafbíl og segir hann lögreglumennina hafa verið hissa á því að bíll knúinn áfram af íslenskri orku skyldi ná þessum hraða. Þeir mældu hann á 124 km hraða á Reykjanesbrautinni. 5.6.2012 21:00
Laxveiðin fer mjög vel af stað Sautján laxar komu á land í Norðurá og Blöndu í morgun en laxveiðitímabilið hófst formlega í dag með opnun þessarra tveggja áa. Fyrsta lax dagsins var landað í Norðurá klukkan 7.22 eða þegar rétt um 22 mínútur voru liðnar af laxveiðisumrinu. Það var Bjarni Júlíusson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, sem landaði þá um 10 punda, grálúsugri hrygnu. Þegar laxalús er á fiski gefur það til kynna að hann sé nýgenginn úr sjó því lúsin lifir aðeins í saltvatni og drepst því fljótlega eftir að lax gengur upp í ár. 5.6.2012 20:30
Einar Örn: Borgaði 5.900 krónur fyrir sætið "Ég tel mig ekki hafa verið að brjóta siðreglurnar, mér var ekki boðið sem borgarfulltrúa,“ segir Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokksins og formaður menningar- og ferðmálanefndar Reykjavíkurborgar. 5.6.2012 19:17
Öryggisvörðurinn sér mikið eftir árásinni Sláandi myndir náðust af því þegar öryggisvörður á Hlemmi gekk í skrokk á manni sem þar hafðist við. Starfsmanninum hefur verið vikið frá störfum og forstjóri Strætó segir koma til greina að endurskoða öryggismálin. 5.6.2012 18:39
Vill samráðs við stéttina til að leysa vandann Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu virðist á góðri leið með að ganga af heimilislækningum dauðum. Þetta segir formaður félags íslenskra heimilislækna sem krefst samráðs við stéttina svo hægt sé að leysa vandann. 5.6.2012 19:59
Gerist næst árið 2247 - einstakt tækifæri að sjá Venus í kvöld "Næst þegar þetta gerist þá verður árið 2247 - þannig þetta er einstakt tækifæri fyrir okkur Íslendinga,“ segir Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Klukkan korter yfir tíu í kvöld mun plánetan Venus ganga á milli sólarinnar og jarðarinnar - og eru Íslendingar í bestu stöðu í heiminum til að sjá það gerist. 5.6.2012 19:45
Síminn bjargaði hjónum í sjálfheldu "Það var nú eiginlega bara heppni að ég við vorum með síma,“ segir Elísabet Ósk Vigfúsdóttir, sem var bjargað ásamt manni sínum úr sjálfheldu á Helgafelli í gær. Um 20 björgunarsveitarmenn tóku þátt í að bjarga þeim. 5.6.2012 17:33
Helmingurinn fær sumarstarf hjá borginni Rúmlega 50% þeirra ungmenna sem sóttu um sumarstarf hjá Reykjavíkurborg fá vinnu í ár. Þetta segir Hulda Gunnarsdóttir, sérfræðingur upplýsingamála hjá borginni. Áætlað er að ráða um 1400 starfsmenn í sumar-og afleysingastörf hjá borginni 2012. Rúmlega 4000 umsóknir hafa borist. 5.6.2012 17:30
Ferðamaðurinn á leið til Reykjavíkur Erlendi ferðamaðurinn sem sendi neyðarboð frá Skeiðarárjökli fyrr í dag er nú á leið með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Ekki er vitað um ástand mannsins en hann er ekki talinn vera mikið slasaður. 5.6.2012 17:12
SÞ ætla ekki að aðhafast í máli íslenskra sjómanna gegn ríkinu Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna sem hefur fjallað um mál Erlings Sveins Haraldssonar og Arnar Snævars Sveinssonar gegn íslenskum stjórnvöldum hefur ákveðið að loka málinu þar sem stjórnvöld hafi brugðist, "með ásættanlegum hætti að hluta til" við tilmælum nefndarinnar. Stjórnvöldum barst tilkynning um þetta í gær. 5.6.2012 16:59
"Niðurstaðan kemur ekki á óvart" Páll Magnússon, útvarpsstjóri, fagnar niðurstöðu álitsgerðar sem unnin var um hæfi RÚV til að fjalla um forsetakosningarnar í ár. "Niðurstaðan kemur ekki á óvart,“ segir Páll. "En við töldum rétt að útkljá þessi mál.“ 5.6.2012 16:57
Klámmyndaleikarinnar framseldur til Kanada Klámmyndaleikarinnar Luka Rocco verður að öllum líkindum framseldur til Kanada á næstu vikum. Luka var handekinn á kaffihúsi í Berlín í gær eftir að hafa verið eftirlýstur af Interpol. 5.6.2012 16:36
Tvo þarf til að rjúfa þing Hvorki forseti né forsætisráðherra fara einir með þingrofsrétt. Þetta segir Ragnhildur Helgadóttir, prófessor í stjórnskipunarrétti við Háskólann í Reykjavík. 5.6.2012 16:08
71 milljón úthlutað úr Pokasjóði Úthlutað var úr Pokasjóði verslunarinnar við athöfn í Salnum í Kópavogi í dag. Tæplega 71 milljón króna var úthlutað til 82 verkefna á sviði umhverfismála, menningar, mannúðar, íþrótta og útivistar um allt land. 5.6.2012 15:53
Fangelsið á Hólmsheiði - Arkís sigraði Arkitektastofan Arkís sigraði í samkeppni um hönnun fangelsis á Hólmsheiði. Alls bárust átján tillögur og voru veitt verðlaun fyrir þær þrjár sem þóttu bera af. 5.6.2012 15:52
Aðstoðarmönnum dómara falið ríkara hlutverk Aðstoðarmönnum dómara verður, lögum samkvæmt, falið mun ríkara hlutverk í héraðsdómstólum samkvæmt nýju frumvarpi um dómstóla sem er í þinginu. Samkvæmt frumvarpinu munu aðstoðarmenn geta setið þingfestingar og fyrirtökur fyrir dómara og tekið á móti skjölum sem dómari tekur nú við. Þá munu aðstoðarmenn geta tekið ákvarðanir í málum þar sem sakborningur eða stefndi grípur ekki til varnar. 5.6.2012 15:07
Fíkniefni fundust í húsleitum Töluvert magn fíkniefna fannst í húsleitum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þá var karl á þrítugsaldri handtekinn í íbúð í Breiðholti en grunur lék á að kannabisefni væru seld þaðan. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni lagði mikla kannabislykt frá íbúðinni en í henni fundust um 170 grömm af af marijúana í söluumbúðum. 5.6.2012 14:33
Björgunarsveitamenn og þyrla kölluð á Skeiðarárjökul Neyðarsendir á Skeiðarárjökli fór í gang nú fyrir stundu og hefur þyrla Landhelgisgæslunnar verið kölluð út vegna þessa. Undanfarar frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg munu fljúga með þyrlunni. Á þessari stundu er ekki vitað hvers vegna neyðarsendirinn fór í gang, en málið verður kannað. 5.6.2012 14:33
Forsetakosningar 2012: RÚV ekki vanhæft Samkvæmt niðurstöðu álitsgerðar þeirra Róbert Spanó, forseta lagadeildar Háskóla Íslands og Trausta Fannars Valssonar, lektors við lagadeild, telst Ríkisútvarpið ekki vanhæft til að fjalla um forsetakosningar 2012 - þó svo að Þóra Arnórsdóttir og eiginmaður hennar, Svavar Halldórsson, hafi starfað hjá stofnuninni um árabil og séu í launalausu leyfi. 5.6.2012 14:24
Guðmundur í Brimi þaggaði niður í þingmanni Guðmundur Kristjánsson, eigandi útgerðarfyrirtækisins Brims, þaggaði niður í Jóni Gunnarssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, á fundi Brims með sjómönnum og fiskverkafólki á Miðbakkanum í dag. Þótt Steingrími J. Sigfússyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hafi verið boðið auk þingmanna var fundurinn aðallega til upplýsinga fyrir starfsfólk Brims. 5.6.2012 14:01
Húsasmiðjan tekur áburð úr sölu Matvælastofnun hefur gert athugasemdir við sölu fyrirtækisins á áburði sem gengur undir nafninu Garðablámi. Niðurstöður efnagreininga Matvælastofnunar leiddu í ljós að kadmíuminnihald væri yfir viðmiðunarmörkum sem í gildi eru á Íslandi. Húsasmiðjan flutti inn viðkomandi áburð í góðri trú enda sýndi innihaldslýsing þýska framleiðandans að efnainnihald áburðarins samræmdist íslenskum reglugerðum og byggðist innflutningsleyfið á þeim upplýsingum sem framleiðandinn upplýsti um. Húsasmiðjan hefur nú þegar brugðist við, í ljósi tilkynningar Matvælastofnunar, og tekið áburðinn tímabundið úr sölu í verslunum félagsins. 5.6.2012 13:34
Óvíst hvenær þingstörfum lýkur Ekki liggur fyrir hvenær þingstörfum lýkur og þingmenn fara í sumarfrí. Formenn flokkanna funduðu um málið í gær. Bjarni Benediktsson sagði enga niðurstöðu hafa fengist á fundinum. "Menn voru svona að ræða stöðuna. Það gerðist nú ekki mikið," sagði Bjarni. Hann vill ekki spá fyrir um hve lengi þingið mun dragast í viðbót. Upphaflega var stefnt að því að þinglok yrðu nú um mánaðarmótin eða í byrjun júní. Ljóst er að það mun dragast um sinn enda nokkur stór mál á dagskrá alþingis. 5.6.2012 12:47
Allir fengu vinnu hjá Kópavogi Öll ungmenni sem sóttu um sumarstarf hjá Kópavogsbæ fengu vinnu. Rúmlega 1.500 ungmenni munu því starfa við margvísleg störf hjá bænum í sumar. Flest starfa ungmennin við snyrtingu og fegrun bæjarins en einnig sem stjórnendur á leikjanámskeiðum, flokksstjórar í vinnuskóla, verkamenn við íþróttavelli eða við afleysingar í sundlaugum svo dæmi séu nefnd. 5.6.2012 12:21
Einstakur stjarnfræðilegur atburður - Ísland á fremsta bekk Einstakur stjarnfræðilegur atburður mun eiga sér stað í kvöld þegar Venus gengur fyrir sólina. Það má segja að við séum á fremsta bekk en sjónarspilið mun njóta sín afar vel á hinum íslenska næturhimni. 5.6.2012 12:13
Árásin á Hlemmi átti sér aðdraganda Persónulegar illdeilur urðu til þess að öryggisvörður á Hlemmi gekk í skrokk á útigangsmanni sem þar hafðist við. Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó, segist hafa heyrt af því að árásin sem Grapevine birti á vefsíðu sinni hafi átt sér aðdraganda og mönnunum lent saman áður. 5.6.2012 11:42
Kæra ógildingu framboðs Ástþórs Fimm kjósendur hafa tekið sig saman og kært ákvörðun Innanríkisráðuneytisins að ógilda forsetaframboð Ástþórs Magnússonar. Kæran hefur borist til Hæstaréttar og Umboðsmanns Alþingis. 5.6.2012 11:32