Innlent

Ferðamönnum fjölgar áfram

Erlendir ferðamenn hafa verið ríflega fimmtungi fleiri það sem af er ári en í fyrra.
Erlendir ferðamenn hafa verið ríflega fimmtungi fleiri það sem af er ári en í fyrra. Fréttablaðið/Pjetur
Ríflega 45 þúsund ferðamenn fóru frá Íslandi um Leifsstöð í maímánuði, um átta þúsundum fleiri en í maí 2011 sem þó var metmánuður. Samkvæmt tölum Ferðamálastofu hefur ferðamönnum um Leifsstöð fjölgað um 20,7 prósent frá áramótum miðað við sama tíma í fyrra.

Þá hefur Hagstofan birt tölur um gistinætur á hótelum landsins í apríl sem reyndust um 120.700 samanborið við 109.300 í apríl 2011. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins voru gistinætur ríflega 26 prósentum fleiri en í fyrra.- mþl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×