Innlent

Stal fötum fyrir hálfa milljón

BBI skrifar
Karlmaður um þrítugt var dæmdur í átta mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað og skjalafals í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Hann var m.a. fundinn sekur um ítrekaðan þjófnað úr matvöruverslunum og að framvísa fölsuðum lyfseðli í lyfjaverslun. Í eitt skipti hafði hann svo tekið föt fyrir næstum hálfa milljón króna í fangið og hlaupið með út úr fatabúð. Það brot flokkaðist undir gripdeild sem þýðir að stela hlutum fyrir allra augum án þess að reyna að leyna afbrotinu.

Maðurinn var talinn síbrotamaður og því ófært að skilorðsbinda refsingu hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×