Innlent

Falun Gong í Kongens Have

Falun Gong hafa einnig mótmælt á Arnarhóli.
Falun Gong hafa einnig mótmælt á Arnarhóli.
Forseti Kína, Hu Jintao, mun heimsækja Danmörku í næstu viku. Meðlimir Falun Gong eru nú þegar byrjaðir að skipuleggja mótmæli í Kaupmannahöfn, nánar tiltekið í Kongens Have. Frá þessu er greint á vef danska dagblaðsins Politiken.

Hreyfingin heldur því fram að kínversk stjórnvöld hafi elt uppi meðlimi Falun Gong og meðal annars stolið úr þeim líffærum.

„Við viljum segja Hu Jintao frá þeim líffærastuldi og pyntingum sem hafa viðgangist í kínversku samfélagi,“ segir Karin Seeback, talsmaður Falun Gong á Fjóni, við Politiken.- ktg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×