Innlent

Vertinn á Kaffivagninum: Aldrei séð jafn mikið af skipum hérna

VG skrifar
Kaffivagninn. Stefán segist aldrei hafa séð jafn mörg skip í höfninni.
Kaffivagninn. Stefán segist aldrei hafa séð jafn mörg skip í höfninni. MYND/GVA
„Ég hef aldrei séð svona mikið af skipum hérna," segir Stefán Kristjánsson eigandi Kaffivagnsins en það var rólegt að gera hjá honum þrátt fyrir að svo mörg skip væru komin til hafnar.

Eins fyrr hefur verið greint frá þá verða mótmæli á Austurvelli klukkan fjögur þar sem útgerðarmenn og sjómenn mótmæla fyrirhuguðum kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar. Minnst 40 togarar munu koma til Reykjavíkur í dag auk fjölda minni báta.

Stefán hefur rekið Kaffivagninn á Grandagarði síðan árið 1975 og á þeim ferli hefur hann aldrei séð annan eins fjölda af skipum í höfninni. Enda er hún smekkfull líkt kom fram í viðtali við starfsmenn hafnsöguvaktarinnar í morgun.

Stefán segir áhafnir skipanna ekki vera komna á kreik enn sem komið er, enda skipin nýlögst að bryggju. Aðspurður hvernig hljóðið sé hjá gestum Kaffivagnsins varðandi kvótafrumvörpin svarar Stefán því til að það sé allt rætt á staðnum.

„Og það eru svo sem ekki allir sáttir við útgerðamennina, en mennirnir hafa jafn margar skoðanir og þeir eru," segir Stefán sem á að líkindum annríkan dag í vændum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×