Innlent

Að minnsta kosti einn hælisleitandi eldri en 18 ára

Niðurstöður úr aldursgreiningu á fimm hælisleitendum liggja nú fyrir. Lögmaður eins þeirra íhugar að kæra niðurstöðuna.

Aldursgreiningu átti að gera á tönnum sex erlendra drengja sem óskað höfðu eftir hæli hér á landi til að skera úr um hvort þeir væru undir átján ára aldri, og þar með börn í skilningi íslenskra laga, eða eldri.

Einn neitaði að gangast undir greininguna.

Einn þeirra glímir við undirliggjandi sjúkdóm og því er ekki hægt að meta aldur hans út frá tönnum hans.

Ekki fengust upplýsingar um aldur tveggja þeirra því lögmaður þeirra hafði ekki enn náð í skjólstæðinga sína.

Einn drengjanna er talinn vera yngri en átján ára og þar með barn en sá sjötti var greindur rúmlega nítján ára en hann hefur haldið því fram að vera fæddur árið 1995.

Lögmaður hans vildi ekki tjá sig að svo stöddu en íhugar að kæra niðurstöðuna þar sem margir óvissuþættir séu á greiningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×