Innlent

Um einn ferkílómetri brann í Heiðmörk

BBI skrifar
Slökkvistörfum í Heiðmörk lauk fyrir stuttu. Slökkviliðsmenn eru enn á svæðinu við frágang og fylgjast um leið með því hvort eldurinn taki sig upp aftur.

Slökkviliðið var kallað út þegar tilkynnt var um mikla gróðurelda í Heiðmörk í dag. Svæðið sem um ræddi var um einn ferkílómetri að umfangi. Um 15 manns frá slökkviliðinu voru á staðnum en auk þess voru 15 manns frá björgunarveitunum og einhver liðskapur frá skógræktinni.

Á tímabili var útlit fyrir að kalla þyrfti út þyrlu til slökkvistarfanna. Ekki reyndist þörf á því og slökkvistörf gengu eins og í sögu.

Í Heiðmörk er mikill mosagróður og langvarandi þurrkar síðustu daga skapa hættu á gróðureldum.

Slökkviliðið segir óvenjulítið um sinubruna í ár miðað við tíðarfarið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×