Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rannsaka grun um barnavændi Lögregla rannsakar nú hvort karlmaður á sextugsaldri, sem á sunnudagskvöld var rændur af pilti og stúlku undir tvítugu, hafi falast eftir því að kaupa vændi af stúlkunni. Hún er einungis sextán ára. Maðurinn tilkynnti um ránið til lögreglu á sunnudagskvöld. Hann hafði boðið stúlkunni í heimsókn en þegar hann hleypti henni inn ruddist inn með henni piltur vopnaður hnífi. 2.2.2012 07:30
Tvær konur teknar við að pissa á almannafæri Tvær konur um tvítugt voru handteknar á Skólavörðustíg um hálf tvö leitið í nótt og kærðar fyrir brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkur. 2.2.2012 07:28
Varðskipið Þór sent til Bergen til viðgerða Nýja varðskipinu Þór verður siglt til Bergen í Noregi til viðgerða vegna alvarlegra galla, og gætu þær tekið nokkrar vikur, að minnsta kosti. 2.2.2012 07:20
Bílnúmerið ógreinilegt á upptökunni Lögreglu hafði í gærkvöldi enn ekki tekist að hafa hendur í hári þess sem talinn er hafa sprengt heimatilbúna sprengju á Hverfisgötu snemma á miðvikudagsmorgun. Vitni hefur greint frá því að skömmu eftir að sprengjan sprakk hafi það séð lágvaxinn, feitlaginn mann á miðjum aldri hlaupa af vettvangi og aka brott á litlum, hvítum sendiferðabíl. 2.2.2012 07:00
Hægt að hylja mynd af Agli Já hefur látið hanna og framleiða límmiða til að líma á forsíðu símaskrár síðasta árs. Á forsíðunni er mynd af Agli Einarssyni og fimleikastúlkum í Gerplu. Tilgangur límmiðanna er að gera fólki kleift að líma yfir Egil Einarsson. "Við höfum útbúið tvær tegundir af límmiðum fyrir þá sem þess óska,“ staðfestir Guðrún María Guðmundsdóttir, ritstjóri og sviðsstjóri hjá Já.Egill hefur verið kærður í tvígang fyrir kynferðisbrot á síðustu mánuðum en niðurstaða í málunum liggur ekki fyrir. 2.2.2012 07:00
Fjórir af sex liðum standa enn þá eftir Mál á hendur Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra, hefur verið mikið í umræðunni. Tillaga Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að draga ákæruna á hendur honum til baka hefur valdið titringi innan þingsins og skipt stjórnarliðum í tvo hópa. Mikið hefur verið rætt um að tillagan sé ekki pólitísk en engum blöðum er um það að fletta að hún hefur haft pólitískar afleiðingar. Fréttablaðið beinir nú sjónum að ákærunni sjálfri og rifjar upp fyrir hvað Geir er ákærður. Líkt og áður segir standa fjórir liðir ákærunnar eftir. 2.2.2012 05:00
Fer líklega utan til viðgerðar Ekki hefur gengið að laga óeðlilegan titring í vél varðskipsins Þórs þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir sérfræðinga frá Rolls Royce verksmiðjunum. Líklegt er að skipið þurfi að fara til Noregs til viðgerðar, að því er segir á vef Landhelgisgæslu Íslands. 2.2.2012 04:00
Starfa í Eyjum Hjallastefnan átti lægsta tilboð í rekstur leikskólans Sóla í Vestmannaeyjum. Stýrihópur á vegum bæjarins leggur til að gengið verði til samninga við Hjallastefnuna. Þrjú tilboð bárust og uppfylltu tvö sett skilyrði sem sett voru. Hjallastefnan bauð dvalargildi á 11.905 krónur, en önnur tilboð hljóðuðu upp á 12.449 krónur og 14.440 2.2.2012 04:00
Barnabækur rannsakaðar Barnabókasetur, rannsóknarsetur um barnabókmenntir og lestur barna, verður opnað við Háskólann á Akureyri á laugardag. Markmiðið með setrinu er að stunda rannsóknir og fræðslu um barnabókmenntir og lestur á Íslandi og að vinna að framgangi 2.2.2012 03:30
Ekki hægt að fylgjast með sprengjusmiðum Lögregla hefur ekki heimildir til að fylgjast með því hvort menn séu að sanka að sér efnivið í sprengju, svo sem áburði eða eldsneyti. Til þess að unnt sé að kanna slíkt þarf ábending að berast um grunsamlegt athæfi. 2.2.2012 00:01
Segist munu slökkva ljós á Vatnsendavegi "Okkur er algerlega misboðið," segir Guðríður Arnardóttir, formaður framkvæmdaráðs Kópavogs, sem í gær mótmælti ákvörðun Vegagerðinnar um að hætta að kosta rekstur og viðhald á Vatnsendavegi. Orkuveitan hyggst slökkva á götulýsingunni því enginn vill borga rafmagnsreikninginn. 2.2.2012 00:01
Allt í hnút í Kópavogi Það er allt í hnút í bæjarstjórn Kópavogs eftir að meirihlutaviðræður Samfylkingarinnar við Sjálfstæðismenn slitnuðu í dag. Stjórnarkreppa ríkir þar og hefur bærinn verið án starfandi meirihluta í tvær vikur. Samfylkingin mun nú reyna að mynda meirihluta með Kópavogslistanum og Framsóknarflokknum. 1.2.2012 21:27
Hélt alltaf í vonina „Þegar maður getur ekki einu sinni brosað þá reynir maður það samt," segir Eiríkur Ingi Jóhannsson sem komst einn lífs af þegar togarinn Hallgrímur sökk við Noregsstrendur í síðustu viku. Þrír menn fórust í slysinu. Eiríkur var í ítarlegu viðtali við Kastljósið á RÚV um lífsreynslu sína í kvöld. Þar sagði hann að börnin hefðu verið honum ofarlega í huga þegar hann áttaði sig á því að hann væri í lífshættu. 1.2.2012 21:16
Vill lyftu á Fríkirkjuvegi 11 til að auðvelda aðgengi fatlaðra Ásgeir Ásgeirsson, arkitektinn sem teiknaði breytingarnar á Fríkirkjuvegi 11 sem Húsfriðunarnefnd hefur nú lagst gegn, segir að gert sé ráð fyrir lyftu í nýjum teikningum, m.a til að auðvelda aðgengi fatlaðra. Hann segir að húsið sé með B-friðun sem þýðir að núverandi eigandi getur ráðist í breytingar án afskipta nefndarinnar. 1.2.2012 18:30
Tilraun til ráns í miðbæ Reykjavíkur Ránstilraun átti sér stað í versluninni Yggdrasill í miðbæ Reykjavíkur síðdegis í dag. Einn maður var að verki og ógnaði hann afgreiðslustúlku með oddhvössum hlut. 1.2.2012 21:53
Þurfa að farga 500 kindum Riðuveiki fannst í kind sem slátrað var í haust frá bænum Merki í Jökuldal. Þetta sýna niðurstöður tilraunastöðvar Háskólans í meinafræði. 1.2.2012 20:09
Auglýst eftir manni og bíl í tengslum við sprengjuna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að karlmanni og hvítri sendibifreið í tengslum við sprengju sem fannst skammt frá Stjórnarráðshúsinu í gærmorgun. Maðurinn er talinn hafa komið með sprengjuna í umræddum bíl, sem er af gerðinni Renault Kangó. Lögregla hefur í dag farið yfir upptökur úr eftirlitsmyndavélum en fjölmargar ábendingar hafa borist vegna málsins. Maður sem var á strætisvagnabiðstöð skammt frá vettvangi í gær, og lýst var eftir, hefur gefið sig fram við lögreglu. Allir þeir sem veitt geta upplýsingar um málið eru beðnir að hafa samband við lögreglu. 1.2.2012 18:48
Stöðvuðu ökumenn með fíkniefni Lögreglan stöðvaði ökumann bíls á gatnamótum Kringlumýrabrautar og Laugavegar í dag vegna gruns um að ökumaður væri með fíkniefni meðferðis. Lítilræði af fíknefnum fundust á manninum. 1.2.2012 17:56
Kaldara á Bretlandi en Íslandi Það hefur væntanlega farið hrollur um lesendur breska blaðsins Daily Express þegar þeir sáu forsíðu blaðsins í gær. Þar var því slegið upp að kaldara yrði á Bretlandi en á Íslandi í þessari viku. Hitastigið gæti farið niður í allt að -11 gráður. Í greininni segir að rekja megi kuldann til lægðar sem leggur yfir Bretlandseyjarnar en hún kemur frá Síberíu. Búist er við því að hitinn geti náð upp í allt að 2 gráður en fer langt niður fyrir frostmark. 1.2.2012 17:32
Steingrímur setti Framadaga í HR Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, setti Framadaga háskólanna í Háskólanum í Reykjavík í dag en þetta er í fyrsta sinn sem þeir eru haldnir í HR. Í tilkynningu segir að ár taki 35 fyrirtæki þátt og hafa þau aldrei verið fleiri. Framadögum er ætlað að gefa ungum háskólaborgurum tækifæri á að finna draumastarfið, hvort heldur í sumar eða sem framtíðarstarf. 1.2.2012 16:32
Deilt um hleranir í Háskóla Reykjavíkur Málfundafélag Lögréttu í Háskóla Reykjavíkur býður til málfundar á morgun, fimmtudaginn 2. febrúar kl. 16:00, í húsnæði Háskólans í Reykjavík, stofu V101. 1.2.2012 15:56
Tugir látnir í frosthörkum í Evrópu Mikil snjókoma og frosthörkur hafa sett allt úr skorðum í Evrópu í dag. Nú er svo komið að snjór liggur yfir stórum hluta álfunnar frá Ítalíu í suðri og til Tyrklands í austri. Veðrið hefur orsakað að minnsta kosti áttatíu dauðsföll, aðallega í Úkraínu og í Póllandi. 1.2.2012 15:49
18 króna hækkun á árinu Frá áramótum hefur verð á bensíni hækkað um sem nemur 18 krónum. Hækkun undanfarinna tveggja daga er nálægt fjórum krónum. N1 reið á vaðið í fyrradag með hækkun úr 242,7 krónum á lítrann í 246,7 krónur. Í gær fylgdu svo hækkanir á öllum öðrum bensínstöðvum. 1.2.2012 03:15
Bjargsigið í útrýmingarhættu, ekki svartfuglarnir Það eru bjargsigsmennirnir og ævagamlar menningarhefðir sem eru í mestri útrýmingarhættu, en ekki svartfuglarnir, segir helsti sigmaður Vestmannaeyja, sem óttast að fimm ára veiðibann verði til þess að kunnátta og hefðir við eggjatöku glatist. 1.2.2012 19:27
Fundu vopnabúr Heilt vopnabúr virðist hafa komið í ljós þegar lögreglan fór í húsleitir á dögunum í tengslum við rannsóknir á innbrotum. Á Vísi fyrr í dag var greint frá því að þrír hafi verið handteknir vegna málsins en verulegt magn þýfis fannst, auk vopnanna sem sjá má á myndinni. Alls var leitað á fimm stöðum og hefur þýfið þegar verið tengt við muni sem stolið var í sjö til átta innbrotum í umdæminu. Lögregla segir einnig viðbúið að munir úr fleiri innbrotum eigi eftir að koma við sögu. 1.2.2012 17:10
Flúði land þrátt fyrir farbann - farið fram á alþjóðlega handtökuskipun Einn þriggja Litháa sem á dögunum voru dæmdir fyrir að koma að fíkniefnaframleiðslu í sumarbústað í Ölfusborgum í október hefur flúið land, þrátt fyrir að hafa verið úrskurðaður í farbann. Hann mun hafa farið með flugi frá Íslandi til Parísar og þaðan áfram til Ríga í Lettlandi. 1.2.2012 16:50
Myndbönd af sprengjuvettvangi enn til rannsóknar Enn er unnið úr myndböndum eftirlitsmyndavéla á Hverfisgötu og nágrenni vegna sprengju sem sprakk á Hverfisgötunni í gærmorgun. 1.2.2012 15:46
Risaslöngur ógna lífríkinu í Flórída Risastórar kyrkislöngur og snákar ógna nú lífríkinu á fenjasvæðum Flórída í Bandaríkjunum. Um er að ræða snáka og kyrkislöngur sem fólk hefur haldið sem gæludýr en að lokum sleppt lausum út í náttúruna þar sem þau hafa náð að aðlagast. 1.2.2012 14:30
Loka tímabundið fyrir umferð eftir Vesturlandsvegi Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum. Hálkublettir eða snjóþekja er nokkuð víða í uppsveitum Suðurlands samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. 1.2.2012 14:17
Hvetja foreldra til þess að hlúa vel að börnum vegna hnífamáls Skólayfirvöld í Melaskóla hafa verið upplýst foreldra og forráðamanna barna í skólanum varðandi tólf ára dreng sem ógnaði kennara sínum vopnaður hnífi. Foreldrar eru hvattir til þess að hlúa vel að börnum sínum eftir atburðinn. 1.2.2012 13:51
Ósáttir við seinagang - rannsaka ábendingar vegna sprengjumanns Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar ábendingar sem þeim hafa borist og tengjast sprengju sem sprakk á Hverfisgötunni snemma í gærmorgun. Lögreglan verst allra frétta. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins og er sprengjan enn í rannsókn. 1.2.2012 13:35
Subway opnar á Ísafirði Subway keðjan á Íslandi hefur fest kaup á húsnæði í verslunarkjarnanum Neista á Ísafirði og hyggst opna þar veitingastað í vor samkvæmt fréttavef Bæjarins besta, bb.is. Um er að ræða húsnæði sem áður hýsti Office 1 og síðar Bókahornið. 1.2.2012 13:19
Enn leitað að sprengjumanni Lögregla leitar enn að þeim sem ábyrgð ber á sprengjunni sem sprakk á Hverfisgötunni í gærmorgun. 1.2.2012 12:19
Fundu verulegt magn þýfis í fimm húsleitum Þrír menn voru handteknir þegar verulegt magn þýfis fannst við húsleitir á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Alls var leitað á fimm stöðum og hefur þýfið þegar verið tengt við muni sem stolið var í sjö til átta innbrotum í umdæminu. Lögregla segir einnig viðbúið að munir úr fleiri innbrotum eigi eftir að koma við sögu. 1.2.2012 12:10
Viðbúnaðarstig á Reykjavíkurflugvelli vegna bilunar í aðvörunarbúnaði Viðbúnaðarstigi var lýst yfir á Reykjavíkurflugvelli í morgun þegar Fokker 50 vél Flugfélags Íslands í aðflugi tilkynnti um viðvörunarljós í mælaborði. 1.2.2012 11:16
Ránið í Árbænum upplýst: Samskipti við unglingsstúlku rannsökuð frekar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst rán sem var framið í Árbæ á sunnudagskvöld og hafa tvö ungmenni, 18 ára piltur og 16 ára stúlka, játað sök í málinu. 1.2.2012 11:06
Ferðafólk sagt trufla útgerð Bæjarstjórn Norðurþings samþykkir ekki áform skipulagsnefndar um að stækka blandað svæði fyrir hafnarstarfsemi og verslun og þjónustu á kostnað hreins hafnarsvæðis á Húsavík. 1.2.2012 11:00
Fórnarlamb mansals súludansari á Goldfinger Fórnarlamb mansals hér á landi starfar sem súludansmey á nektarstaðnum Goldfinger. Þetta staðfestir Ásgeir Þór Davíðsson í samtali við blaðið DV í dag. Þar kemur fram að konan hafi yfirgefið vernd mansalsteymis hér á landi og endað á Goldfinger. 1.2.2012 10:19
Ólafur og Dorrit skoða mörgæsir Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaief eru nú stödd á Suðurskautslandinu ásamt fríðu föruneyti. Á vef forsetaembættisins hefur þessi mynd nú verið birt sem sýnir Ólaf og Dorrit ásamt fjölda mörgæsa. 1.2.2012 09:51
Stálu umferðarmerkjum fyrir tæpa milljón - lögreglan undrandi Starfsmenn Vegagerðarinnar á Ísafirði urðu heldur betur hvumsa er þeir sáu að búið var að stela 12 umferðarmerkjum úr Bolungarvíkurgöngunum og tveim umferðarmerkjum af þjóðveginum við Vatnsfjarðarháls inni í Djúpi. 1.2.2012 09:48
Umfangsmikil kannabisræktun stöðvuð í Ölfusi Lögreglan á Selfossi stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í íbúðarhúsi í Ölfusi í gærkvöldi og lagði hald á 75 plöntur á öllum stigum ræktunar. 1.2.2012 07:23
Skriðuföll loka veginum við Þvottárskriður Vegurinn um Þvottárskriður á Suðausturlandi er lokaður um óákveðinn tíma vegna skriðufalla sem rekja má til mikillar rigningar. 1.2.2012 07:16
Frekari hækkanir framundan hjá hinu opinbera Samtök verslunar og þjónustu og Samband íslenskra sveitarfélaga gagnrýna bæði frumvarp innanríkisráðherra um breytingar á lögum um þjóðskrá og almannaskráningu, sem myndi fela í sér verulegar hækkanir á þjónustu. 1.2.2012 07:13
Línur skýrast í Kópavogi í dag Það skýrist væntanlega í dag hvort Samfylkingin og Vinstri grænir annarsvegar og Sjálfstæðismenn hinsvegar, ná samkomulagi um meirihlutamyndun í bæjarstjórn Kópavogs. 1.2.2012 07:04
Umferðarskiltum stolið úr göngum Tólf umferðarmerkjum hefur verið stolið úr hinum nýju Bolungarvíkurgöngum, en ekki er vitað hvenær þjófnaðurinn átti sér stað. Þá hefur tveimur merkjum til viðbótar verið stolið af þjóðveginum í Ísafjarðardjúpi. Þetta kemur fram á bb.is. 1.2.2012 07:00