Fleiri
Þingmenn lofa að vinda ofan af niðurskurðinum 8.10.2010 06:00 Eftirlýstir af Interpol fyrir glæpi hérlendis Fjórir erlendir karlmenn eru eftirlýstir af alþjóðalögreglunni Interpol fyrir alvarleg brot sem þeir hafa framið hér á landi. Hinn fimmti, sem eftirlýstur var til skamms tíma, hefur nú verið handtekinn og situr í fangelsi í Líbanon. 8.10.2010 05:30 Sjálfseignarkerfið að komast á endastöð Á síðustu árum og húsnæðisverðiáratugum hafa langflestar fjölskyldur keypt sitt eigið húsnæði, enda fáir aðrir kostir í boði. Þeir sem hafa þurft eða kosið að fara út á leigumarkaðinn hafa oft á tíðum mátt búa við mikla óvissu. Stjórnvöld telja að breyta þurfi húsnæðiskerfinu og gefa fólki aðra valkosti en eigið húsnæði. 8.10.2010 05:30 Fjöldi ófeðraðra mynda enn á huldu „Þeir eru búnir að viðurkenna þessi mistök og málið er úr sögunni af minni hálfu,“ segir Eygló Sigurðardóttir, sem á fjórar ljósmyndir í 35 mynda verki Ólafs Elíassonar. 8.10.2010 05:00 Bíður tillagna forstöðumanna „Það eru sívaxandi kröfur um ákveðna tækni og ákveðna færni og kunnáttu í læknisþjónustu en það er ekki hægt að dreifa þessu um allt land heldur verður að koma henni fyrir á fáum stöðum, til dæmis höfuðborgarsvæðinu og Akureyri,“ segir Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra. 8.10.2010 05:00 Gat ekki fallist á ályktunina Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vildi ekki standa að ályktun sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins, sem hélt sinn fyrsta fund á þriðjudag. 8.10.2010 04:30 Svandís áfrýjar dómi vegna óskýrra laga Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem synjun hennar á þeim hluta aðalskipulags Flóahrepps er varðar Urriðafossvirkjun var ógilt. Hún segir ástæðuna vera þá að hún vilji skýrari leiðsögn um það hver megi koma að kostnaði við skipulagsgerð. 8.10.2010 04:15 Mikill vilji hjá skipulagsráði Mikill vilji er hjá skipulagsráði Reykjavíkur að ganga frá úthlutun lóðar undir mosku og menningarsetur Félags íslenskra múslima. Það segir Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs, í samtali við Fréttablaðið. 8.10.2010 04:00 Sjá næstu 50 fréttir
Fjárhagsvandanum ekki reddað með tattúi og bleikum jakkafötum Reykjavíkurborg þarf að greiða tvö hundruð milljónum króna meira á ári í rafmagn og hita vegna gjaldskrárhækkana Orkuveitunnar. Þetta jafngildir rekstri tveggja meðalstórra leikskóla í Reykjavík. Borgarfulltrúi segir að vandi borgarsjóðs verði ekki leystur með bleikum jakkafötum og tattúum. 8.10.2010 18:23
Tjarnarbíó opnað að nýju Nærri hundrað ára gamalt hús í hjarta Reykjavíkur, sem til stóð að loka fyrir fimm árum, var í dag opnað með pompi og pragt eftir gagngerar endurbætur. Tjarnarbíó er húsið og það var borgarstjóri Reykjavíkur sem opnaði það formlega í viðeigandi skærbleikum jakkafötum á þessum baráttudegi gegn krabbameini kvenna. Sirkus Íslands og Margrét Eir skemmtu fólki við opnunina. 8.10.2010 19:36
Söfnunin fyrir Ragnar Emil gengur afar vel Fjölskylda Ragnars Emilssonar, sem er þriggja ára gamall og á við erfiðan hrörnurnarsjúkdóm að stríða, á ekki orð til að lýsa viðbrögðum við söfnun sem nú stendur yfir í Hafnarfirði. Meira en ein og hálf milljón hefur þegar safnast sem gerir það verkum að lífsgæði Ragnars aukast til muna. 8.10.2010 19:21
Svæfingalæknir falsaði reikninga Efnahagsbrotadeild hefur ákært svæfingalækni fyrir að blekkja Tryggingastofnun ríkisins til að ofgreiða sér tæpar fimm milljónir króna á tveggja ára tímabili. Læknirinn framvísaði 265 röngum reikningum til stofnunarinnar. Brotin varða allt að sex ára fangelsi. 8.10.2010 19:00
Niðurskurði harðlega mótmælt Mótmælaalda ríður nú yfir vegna boðaðs niðurskurðar í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Mikill uggur er meðal íbúa og óttast fólk um framtíð sveitarfélaganna. Mörg þúsund manns mótmæltu í gær og í dag og hafa fleiri mótmælafundir verið boðaðir á næstu dögum. 8.10.2010 18:57
Mótmæltu í Eyjum Fjölmargir Vestmannaeyingar komu saman á útifundi á Stakkagerðistúni seinnipartinn í dag. Þar var niðurskurður í heilbrigðiskerfinu ræddur. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár munu Vestmannaeyingar verða fyrir barðinu á niðurskurði, eins og svo mörg önnur sveitarfélög. 8.10.2010 18:04
Svandís svarar Samtökum atvinnulífsins fullum hálsi Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, gefur lítið fyrir bréf Vilmundar Jósefssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins til forsætisráðherra. Hún segir að Vilmundur verði að sætta sig við að hér sitji lýðræðislega kjörinn þingmeirhluti. Svandís segir þörf á meira skapandi mönnum í forystu Samtaka atvinnulífsins. 8.10.2010 17:29
Rúmlega 50% vilja að kosið verði innan 6 mánaða Rúmlega 50% svarenda í skoðanakönnun MMR vilja að kosið verði til Alþingis innan 6 mánaða, en rúm 30,7% vilja að kosið verði í lok kjörtímabilsins. Könnunin var gerð dagana 5. - 8. október síðastliðinn. 8.10.2010 17:14
Næstum 70% andvígir því að fyrirtæki styrki stjórnmálamenn Um 68% Íslendinga eru andvígir því að íslenskum stjórnmálamönnum og stjórnmálasamtökum sé heimilt að taka á mótum fjárframlögum frá fyrirtækjum. Um 15% eru því hlynntir en 17% eru hvorki hlynntir né andvígir því. Þetta sýna niðurstöður könnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir Hreyfinguna í september. 8.10.2010 16:20
Ágóði af bolasölu fer í menningarsjóð Lennon 66°norður styrkir menningarsjóðinn Imagine Peace - Reykjavík Culture Fund með því að selja boli og plaköt. Ágóði af sölunni rennur í sjóðinn. Sjóðurinn verður formlega stofnaður á morgun þegar kveikt verður á Friðarsúlunn í Viðey. Reykjavíkurborg stofnar hann í samvinnu við Yoko Ono í tilefni af 70 ára fæðingarafmæli John Lennon. 8.10.2010 15:53
SA: Svandís hefur stórskaðað endurreisn íslensks atvinnulífs Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka Atvinnulífsins hefur sent Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra bréf þar sem skorað er á hana að sjá til þess að ríkislögmaður falli þegar frá áfrýjun vegna ógildingar héraðsdóms á ákvörðun umhverfisráðherra að synja aðalskipulagi Flóahrepps staðfestingar. Han segir að Svandís Svavarsdóttir hafi með ákvörðun sinni stórskaðað endurreisn íslensks atvinnulífs. 8.10.2010 15:30
Forseti Alþingis ræddi við mótmælendur - aftur mótmælt Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, boðaði fimm konur sem stóðu að baki mótmælunum við setningu Alþingis og við stefnuræðu forsætisráðherra á fund til sín í morgun. 8.10.2010 15:29
Jóhanna: Samráð verði haft við stofnanir um niðurskurð Jóhanna Sigurðardóttir segir að verið sé að leita samráðs við heilbrigðisstofnanir úti á landi hvort hægt sé að finna lausn á málefnum stofnananna en mikill niðurskurður er fyrirhugaður í flestum landshlutum, samvkæmt nýju fjárlagafrumvarpi. 8.10.2010 15:16
Enginn afsláttur gefinn á öryggi sjúklinga Það er algjörlega ljóst að þjónustustig hefur minnkað á spítalanum enda átti enginn von á öðru í þeim mikla niðurskurði sem verið hefur síðustu árin, segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítala Íslands, í föstudagspistli sínum. 8.10.2010 15:01
Gissur Pétursson gefur kost á sér á stjórnlagaþing Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar ætlar að gefa kost á sér til setu á stjórnlagaþingi. Þetta staðfesti Gissur í samtali við fréttastofu. Framboðsfrestur til stjórnlagaþings rennur út eftir tæpan hálfan mánuð en ekki eru tiltækar upplýsingar um hversu margir hafa þegar boðið sig fram. Jónas Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri hefur einnig lýst yfir framboði, en það gerði hann á bloggsíðu sinni í vikunni. 8.10.2010 14:33
Fljúga í Fokker frá Reykjavík til Noregs Flugfélag Íslands mun fljúga milli Íslands og Noregs um næstu jól og áramót. Flogið verður frá Reykjavíkurflugvelli til Stavanger, Bergen og Þrándheims, samkvæmt upplýsingum frá flugfélaginu. 8.10.2010 14:01
Óforsvaranlegt að bankar skili hagnaði en fjölskyldur séu bornar út Framsóknarkonur telja að það sé óforsvaranlegt að nýju bankarnir skuli krefja almenning um fulla endurgreiðslu lána sem voru keypt af gömlu bönkunum með 45% afslætti. Þetta leiði meðal annars til þess að þeir skili hagnaði á sama tíma og fjölskyldur séu bornar út af heimilum sínum. Þetta kemur fram í ályktun sem Landssamband Framsóknarkvenna sendi frá sér í gær. 8.10.2010 13:57
Bæjarráð Seyðisfjarðar: Aðför gerð að landsbyggðarfólki Bæjarráð Seyðisfjarðar hefur nú bæst í hóp fjölmargra sveitastjórna sem mótmælt hafa niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Í nýrri bókun ráðsins lýsir ráðið algjörri andúð sinni á þeirri aðför að landsbyggðinni og afkomumöguleikum fólks þar, sem birtist í framlögðum niðurskurðartillögum í Fjárlagafrumvarpi 2011 um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu á Austurlandi. 8.10.2010 13:42
Yoko býður almenningi til Viðeyjar Í tilefni af tendrun Friðarsúlunnar á 70 ára fæðingarafmæli John Lennon, býður Yoko Ono gestum í fría kvöldsiglingu til Viðeyjar á laugardags- og sunnudagskvöld. 8.10.2010 13:37
Saksóknaranefnd valin á þriðjudag Saksóknaranefnd Alþingis vegna málshöfðunar gegn Geir Haarde verður kosin á þriðjudag, strax eftir að saksóknari og varasaksóknari hafa verið kjörnir. Nefndin er kosin á grundvelli laga um landsdóm og er gert ráð fyrir að um fimm manna nefnd sé að ræða sem fylgist með málinu og sé saksóknara Alþingis til aðstoðar. 8.10.2010 13:30
Hertar aðgerðir gegn svartamarkaðsbraski Boðaðar hafa verið hertar aðgerðir gegn svartamarkaðsbraski með rjúpur, segir Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands. Verulega hefur dregið úr rjúpnaveiði á undanförnum árum enda þykir stofninn vera allt of lítill. Það breytir því ekki að margir sem hafa vanist því að borða rjúpnakjöt á jólunum eru enn sólgnir í slíkan mat. Þetta skapar forsendur fyrir svörtum markaði. 8.10.2010 12:45
Síminn vill nánari útfærslu á internetskatti STEF, samtök tónskálda og eigenda flutningsréttar, vilja taka upp sérstakt gjald á internetnotkun til að milda fjárhagslegt högg sitt vegna ólöglegs niðurhals. Talsmaður Símans segir fyrirtækið ekki slá hugmyndina út af borðinu. 8.10.2010 12:15
Bleikur föstudagur í dag Í dag klæðist fólk einhverju bleiku og vefsíður, byggingar og fleira eru skreyttar bleiku til að sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. 8.10.2010 12:09
Salmann Tamimi: Moska verður að vera á íslenskum forsendum Talsmaður Menningaseturs múslíma sem á að vera í Ýmishúsinu í Skógarhlíð segist ekki hafa verið rekinn úr Félagi múslíma eins og formaður þess, Salmann Tamimi, heldur fram. Nú stefnir í að félagið fái lóð undir mosku. 8.10.2010 12:00
Amnesty hvetur Kínverja til að sleppa samviskuföngum Amnesty International hvetur kínversk stjórnvöld til að leysa alla samviskufanga í landinu úr haldi, þeirra á meðal baráttumanninn Liu Xiaobo sem fékk friðarverðlaun Nóbels í morgun. 8.10.2010 11:55
Gleymdu að stimpla sig en vilja samt atvinnuleysisbætur Tvö mál bíða afgreiðslu úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þar sem einstaklingar krefjast þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að hafa staðfest atvinnuleit sína eins og lög gera ráð fyrir. 8.10.2010 11:38
Nauðungarsala blasir við 240 íbúðareigendum Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að flest bendi til þess að um 230 til 240 íbúðir, þar sem eigandi á lögheimili, fari að óbreyttu á lokasölu í október. Ætlunin er að þessir aðilar fái nú flýtimeðferð hjá Umboðsmanni skuldara og embættið fái afdráttarlausar heimildir til að stöðva nauðungarsölur í slíkum tilfellum. Nú er unnið því að hafa samband við þá 230-240 aðila sem standa í þessum sporum og reynt að leita lausna í samráði við þá. 8.10.2010 11:05
Skipt um rúður í Alþingishúsinu Iðnaðarmenn voru í óða önn að skipta um rúður í Alþingishúsinu í morgun. Sjö rúður voru brotnar þar í fyrrinótt og enn fleiri á mánudagskvöldið þegar stefnuræða forsætisráðherra fór fram. 8.10.2010 10:53
Niðurskurði mótmælt á Blönduósi Bæjarráð Blönduósbæjar mótmælir harðlega þeim niðurskurði sem gert er ráð fyrir hjá Heilbrigðiststofnun Blönduóss og birtist í fjárlagafrumvarpi 2011. Bæjarráðið segir að stofnunin hafi á undangegnum árum þurft að sæta miklum niðurskurði og nú sé svo komið að vegið er að grunnþjónustu og velferð íbúa í Austur-Húnavatnssýslu. 8.10.2010 10:36
Ætla að byggja heilsuþorp á Flúðum Sveitastjórn Hrunamannahrepps hefur kynnt umhverfisráðuneytinu áform um fyrirhugaða byggingu heilsuþorps á Flúðum, samkvæmt yfirlýsingu sem send var fjölmiðlum í morgun. 8.10.2010 10:14
Fæðingarþjónusta leggst af í Árborg Bæjarfulltrúar í Árborg mótmæla harðlega þeim niðurskurði sem boðaður er í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2011 á rekstrarframlögum til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. 8.10.2010 10:12
Metfjöldi brautskráðra úr framhaldsskóla Alls brautskráðust 5.689 nemendur af framhaldsskólastigi með 6.404 próf skólaárið 2008-2009. Þetta er fjölgun um 150 nemendur frá fyrra ári, eða 2,7%. 8.10.2010 09:06
Safna fyrir hjólastólarampi handa fötluðum dreng Ragnar Emil Hallgrímsson er þriggja ára drengur sem aðeins nokkurra mánaða gamall greindist með alvarlegan hrörnunarsjúkdóm. Vegna veikinda sinna þarf Ragnar Emil að nota öndunarvél og fer ferða sinna í rafmagnshjólastól. 8.10.2010 09:01
Nær fjögur þúsund mótmæla niðurskurði víða um land Hátt í fjögur þúsund manns,samtals, mótmæltu niðurskurði í heilbrigðisþjónustunni á borgarafundum á Húsavík, Ísafirði og í Reykjanesbæ í gærkvöldi og mótmælaaðgerðir eru fyrirhugaðar í Vestmannaeyjum í dag. 8.10.2010 07:44
Enn í haldi eftir líkamsárás í gærkvöldi Karlmaður á þrítugsaldri er enn í haldi lögreglu, vegna rannsóknar á líkamsárás þrigga manna á ungan mann af erlendum uppruna á mótum laugavegar og Vitastígs í Reykjavík á sjötta tímanum í gærkvöldi. 8.10.2010 07:25
Sextán ára stúlka velti bil á miklum hraða Sextán ára stúlka og 19 ára piltur voru flutt á slysadeild Landsspítalans eftir að bíll, sem stúlkan ók, fór út af Vatnsleysustrandarvegi laust fyrir miðnætti, valt þar nokkrar veltur og gjör eyðilagðist. 8.10.2010 07:23
Framlengja frest á nauðungarsölum um fimm mánuði Ríkisstjórnin hefur ákveðið að framlengja heimild til frestunar á loka nauðungarsölum á íbúðarhúsnæði um fimm mánuði, eða til mars loka á næsta ári. 8.10.2010 07:21
Eftirlýstir af Interpol fyrir glæpi hérlendis Fjórir erlendir karlmenn eru eftirlýstir af alþjóðalögreglunni Interpol fyrir alvarleg brot sem þeir hafa framið hér á landi. Hinn fimmti, sem eftirlýstur var til skamms tíma, hefur nú verið handtekinn og situr í fangelsi í Líbanon. 8.10.2010 05:30
Sjálfseignarkerfið að komast á endastöð Á síðustu árum og húsnæðisverðiáratugum hafa langflestar fjölskyldur keypt sitt eigið húsnæði, enda fáir aðrir kostir í boði. Þeir sem hafa þurft eða kosið að fara út á leigumarkaðinn hafa oft á tíðum mátt búa við mikla óvissu. Stjórnvöld telja að breyta þurfi húsnæðiskerfinu og gefa fólki aðra valkosti en eigið húsnæði. 8.10.2010 05:30
Fjöldi ófeðraðra mynda enn á huldu „Þeir eru búnir að viðurkenna þessi mistök og málið er úr sögunni af minni hálfu,“ segir Eygló Sigurðardóttir, sem á fjórar ljósmyndir í 35 mynda verki Ólafs Elíassonar. 8.10.2010 05:00
Bíður tillagna forstöðumanna „Það eru sívaxandi kröfur um ákveðna tækni og ákveðna færni og kunnáttu í læknisþjónustu en það er ekki hægt að dreifa þessu um allt land heldur verður að koma henni fyrir á fáum stöðum, til dæmis höfuðborgarsvæðinu og Akureyri,“ segir Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra. 8.10.2010 05:00
Gat ekki fallist á ályktunina Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vildi ekki standa að ályktun sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins, sem hélt sinn fyrsta fund á þriðjudag. 8.10.2010 04:30
Svandís áfrýjar dómi vegna óskýrra laga Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem synjun hennar á þeim hluta aðalskipulags Flóahrepps er varðar Urriðafossvirkjun var ógilt. Hún segir ástæðuna vera þá að hún vilji skýrari leiðsögn um það hver megi koma að kostnaði við skipulagsgerð. 8.10.2010 04:15
Mikill vilji hjá skipulagsráði Mikill vilji er hjá skipulagsráði Reykjavíkur að ganga frá úthlutun lóðar undir mosku og menningarsetur Félags íslenskra múslima. Það segir Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs, í samtali við Fréttablaðið. 8.10.2010 04:00