Svandís svarar Samtökum atvinnulífsins fullum hálsi 8. október 2010 17:29 Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, gefur lítið fyrir bréf Vilmundar Jósefssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins til forsætisráðherra. Hún segir að Vilmundur verði að sætta sig við að hér sitji lýðræðislega kjörinn þingmeirhluti. Svandís segir þörf á meira skapandi mönnum í forystu Samtaka atvinnulífsins. Vilmundur segir í bréfinu að Svandís hafi stórskaðað endurreisn íslensks atvinnulífs þegar hún synjaði aðalskipulagi Flóahrepps staðfestingar. Hann segir jafnframt að forsætisráðherra hljóti að velta fyrir sér stöðu Svandísar sem ráðherra. Óskýr niðurstaða „Það er misskilningur hjá Vilmundi að Samtök atvinnulífsins stjórni hverjir sitji við ríkisstjórnarborðið," segir Svandís. „Þó að Samtök atvinnulífsins hafi haft sterk ítök í landinu síðustu 18-20 ár þá hefur það breyst. Það er lýðræðislega kjörinn þingmeirihluti hér sem skipar til verka í framkvæmdavaldinu samkvæmt lögum og það er kannski tilhugsun sem þessi ágæti maður þarf að fara að venjast." Svandís segist hafa ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur um skiplagsmál í Flóahreppi þar sem niðurstaða dómsins sé óskýr og lítið rökstudd. Hún segir mikilvægt að Hæstiréttur komist að skýrri niðurstöðu í þessu máli þannig að réttaróvissu verði eytt og réttaröryggi í meðferð skipulags- og byggingarmála verið tryggt.Óábyrgar yfirlýsingar Svandís segir að um kunnuglegar yfirlýsingar sé að ræða. „Það var þannig þegar að ákvörðun um Suðvesturlínu tafðist um nokkrar vikur bar ég ábyrgð á öllu atvinnuleysi á Íslands að sögn Vilhjálms Egilssonar sem er félagi Vilmundar í Samtökum atvinnulífsins. Það er í þessum anda sem þessir menn, Árni Johnsen og Gunnar Birgisson eru að tala. Þannig að það er orðin ágætis sveit manna sem velur þessa aðferð við að greina ástand mála og sætir furðu að þeir skuli gera það með svo óábyrgum hætti." Vilja hengja umhverfisráðherra Þá segir Svandís: „Ef að þeir ætla að leysa þann alvarlega vanda sem upp er komin í íslensku samfélagi með því að hengja einn umhverfisráðherra þá lýsi ég nú eftir meira skapandi mönnum í forystu fyrir Samtök atvinnulífsins."
Tengdar fréttir Svandís áfrýjar dómi vegna óskýrra laga Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem synjun hennar á þeim hluta aðalskipulags Flóahrepps er varðar Urriðafossvirkjun var ógilt. Hún segir ástæðuna vera þá að hún vilji skýrari leiðsögn um það hver megi koma að kostnaði við skipulagsgerð. 8. október 2010 04:15 SA: Svandís hefur stórskaðað endurreisn íslensks atvinnulífs Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka Atvinnulífsins hefur sent Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra bréf þar sem skorað er á hana að sjá til þess að ríkislögmaður falli þegar frá áfrýjun vegna ógildingar héraðsdóms á ákvörðun umhverfisráðherra að synja aðalskipulagi Flóahrepps staðfestingar. Han segir að Svandís Svavarsdóttir hafi með ákvörðun sinni stórskaðað endurreisn íslensks atvinnulífs. 8. október 2010 15:30 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira
Svandís áfrýjar dómi vegna óskýrra laga Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem synjun hennar á þeim hluta aðalskipulags Flóahrepps er varðar Urriðafossvirkjun var ógilt. Hún segir ástæðuna vera þá að hún vilji skýrari leiðsögn um það hver megi koma að kostnaði við skipulagsgerð. 8. október 2010 04:15
SA: Svandís hefur stórskaðað endurreisn íslensks atvinnulífs Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka Atvinnulífsins hefur sent Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra bréf þar sem skorað er á hana að sjá til þess að ríkislögmaður falli þegar frá áfrýjun vegna ógildingar héraðsdóms á ákvörðun umhverfisráðherra að synja aðalskipulagi Flóahrepps staðfestingar. Han segir að Svandís Svavarsdóttir hafi með ákvörðun sinni stórskaðað endurreisn íslensks atvinnulífs. 8. október 2010 15:30