Forseti Alþingis ræddi við mótmælendur - aftur mótmælt Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. október 2010 15:29 Slökkvilið og lögregla stóðu vakt í mótmælunum á mánudag. Mynd/ Valli.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, boðaði fimm konur sem stóðu að baki mótmælunum við setningu Alþingis og við stefnuræðu forsætisráðherra á fund til sín í morgun. Á fundinum var rætt um ástand þinghússins eftir mótmælin. Kostnaður vegna skemmda á húsinu nemur allt að sex milljónum króna. Fjórar kvennanna áttu heimangengt á fundinn. Ásta Hafberg, ein þeirra sem var boðuð á fundinn, segist hafa verið nokkuð ánægð með hann. „Hún hafði samband við mig í gærkvöldi, eða seinni partinn einhvern tímann, og spurði mig hvort við gætum hist í dag. Meira svona í því yfirskini að ræða ástand Alþingishússins og hvernig þessi mótmæli færu með það," segir Ásta Hafberg. Ásta Hafberg segir að þær hafi gert forseta Alþingis ljóst að þær stæðu fyrir friðsamlegum ásláttarmótmælum. „Við höfum reynt að hafa skikk á þeim sem eru á staðnum ef við höfum vitað að það væri eitthvað eggjakast í gangi. En við getum ekki svarað fyrir alla sem koma þarna niðureftir og hvernig fólk fær útrás fyrir sína reiði og sína biturð," segir Ásta Hafberg. Hún segir að þær hafi síðan farið ítarlega yfir ástand þjóðmála með forseta Alþingis. Eftir standi að sér finnist það vera fáránleg staða að þurfa að standa fyrir framan Alþingishúsið og berja tunnur til að einhver hlusti. Ásta Hafberg segir að forseti Alþingis hafi hlustað á þeirra sjónarmið. Ásta Hafberg segir að mótmæli séu fyrirhuguð næsta þriðjudag. Hún er bjartsýn á að mótmælin geti farið vel fram. Tunnuslátturinn hafi gert það að verkum að einhversstaðar sé rödd fólksins farin að heyrast. „Þetta hljómar rosalega klént en þetta er svona," segir Ásta.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira