Sjálfseignarkerfið að komast á endastöð 8. október 2010 05:30 Langsamlega flestar fjölskyldur hafa á undanförnum árum og áratugum kosið að eignast sitt eigið húsnæði í stað þess að leigja á almennum markaði. Fréttablaðið/Vilhelm
Á síðustu árum og húsnæðisverðiáratugum hafa langflestar fjölskyldur keypt sitt eigið húsnæði, enda fáir aðrir kostir í boði. Þeir sem hafa þurft eða kosið að fara út á leigumarkaðinn hafa oft á tíðum mátt búa við mikla óvissu. Stjórnvöld telja að breyta þurfi húsnæðiskerfinu og gefa fólki aðra valkosti en eigið húsnæði. Með hækkandi , mikilli kaupmáttarrýrnun og takmörkuðu aðgengi að hagstæðum lánum virðist endastöðin ekki langt undan fyrir íslenska húsnæðiskerfið, sem hefur byggt á því að langsamlega flestar fjölskyldur búi í eigin húsnæði. Fyrir þá sem þegið hafa lægstu launin fyrir vinnu sína er þessari endastöð raunar löngu náð. Eins og kannanir sem Efling stéttarfélag hefur gert undanfarin ár leiða í ljós hefur mun lægra hlutfall þeirra sem hafa lágar tekjur átt þess kost að eignast eigið húsnæði á undanförnum árum. Þeir sem ekki hafa viljað kaupa húsnæði hafa átt fáa góða kosti. Flestir hafa þurft að leigja íbúðir á almennum markaði. Þar er vernd leigjenda afar takmörkuð, og flestir sem það hafa reynt kannast eflaust við að þurfa að flytja, jafnvel ítrekað, þar sem leigusalinn ákvað að ráðstafa húsnæðinu með öðrum hætti, eða selja það. „Séreignastefnan sem nánast er eini valkostur fólks hefur að mínu viti runnið sitt skeið og nýtt húsnæðiskerfi, þar sem raunverulegt val getur staðið á milli búsetuforma hlýtur að taka við,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í erindi sínu á fjármálastefnu sveitarfélaganna síðastliðinn föstudag. Jóhanna sagði húsnæðisöryggi fólks ekki eiga að vera „ofurselt duttlungum markaðarins“. Tryggja þurfi virkan leigumarkað, efla búseturéttarformið og „setja bönd á markaðsöflin“ þegar komi að húsnæði fólks.Kaupréttur hjá ÍbúðalánasjóðiMeð lagabreytingu sem gerð var árið 2008 fékk Íbúðalánasjóður heimild til að leigja út íbúðir sem sjóðurinn hefur eignast á uppboðum. Þær munu vera um 1.000 talsins. Sjóðurinn hefur hins vegar ekki viljað fara þessa leið nema í takmörkuðum mæli, auk þess sem sú lausn er hugsuð til skamms tíma þar til sjóðurinn getur selt húsnæðið.Til stendur að breyta þessum lögum þannig að allir leigusamningar verði með kaupréttarákvæði, segir Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra. Frumvarp þessa efnis var lagt fyrir á síðasta þingi en ekki afgreitt. Guðbjartur segir að til standi að leggja frumvarpið fyrir að nýju á næstu dögum, og koma því hratt í gegnum þingið.Guðbjartur segir að hópur fimm ráðherra auk fulltrúa stjórnarandstöðunnar muni fjalla um húsnæðismál á næstunni. Þar verði meðal annars farið yfir þau úrræði sem í boði séu, og hverju þurfi að breyta. Markmiðið sé að tryggja að fólk verði ekki húsnæðislaust, og helst að stöðva uppboð á heimilum meðan verið sé að vinna í úrræðum.„Fólk verður að geta valið sér búsetuform,“ segir Guðbjartur. Hann segist sjá fyrir sér að í framtíðinni verði minni áhersla lögð á að allir geti átt sitt eigið húsnæði. Fólk muni í auknum mæli velja milli þess hvort það vill vera í séreign eða í leiguíbúð.Búseta eða kaupleigukerfiFlestir sem leigt hafa húsnæði til lengri eða skemmri tíma þekkja þá óvissu sem því fylgir að leigja íbúð hér á landi. Uppsagnarfrestur er stuttur, og gjarnan eru eignir aðeins í tímabundinni útleigu áður en þær eru seldar. Guðbjartur segir að þetta sé þekkt vandamál. „Það er alveg augljóst að það þurfa að verða breytingar þarna svo við getum tryggt að fólk geti búið í leiguhúsnæði með öruggum hætti ef það velur þetta búsetuform.“ Þar segist Guðbjartur geta séð fyrir sér einhvers konar búsetuform eða kaupleigu, þar sem leigjandinn geti á endanum eignast húsnæði sitt, og mögulega húsnæðissamvinnufélög sem leigi út húsnæði, eins og þekkt er á hinum Norðurlöndunum.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira