SA: Svandís hefur stórskaðað endurreisn íslensks atvinnulífs 8. október 2010 15:30
Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka Atvinnulífsins hefur sent Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra bréf þar sem skorað er á hana að sjá til þess að ríkislögmaður falli þegar frá áfrýjun vegna ógildingar héraðsdóms á ákvörðun umhverfisráðherra að synja aðalskipulagi Flóahrepps staðfestingar. Hann segir að Svandís Svavarsdóttir hafi með ákvörðun sinni stórskaðað endurreisn íslensks atvinnulífs. Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra um að synja staðfestingar aðalskipulagi Flóahrepps. „Dómurinn vísaði til þess að ekkert í lögum bannaði að framkvæmdaaðili greiddi kostnað við aðal- eða deiliskipulag. Ástæða þess að umhverfisráðherra synjaði skipulaginu staðfestingar var sögð að Landsvirkjun hefði greitt kostnað vegna skipulagsvinnu við fyrirhugaða Urriðafossvirkjun," segir í bréfinu um leið og bent er á að þann 23. september síðastliðinn hafi Alþingi samþykkt ný skipulagslög þar sem sveitarfélögum er sérstaklega heimilað að innheimta kostnað vegna skipulagsvinnu í þágu einstakra framkvæmda. „Hver svo sem niðurstaða Hæstaréttar kann að verða mun áfrýjunin engin áhrif hafa önnur en að tefja framgang við skipulag Flóahrepps. Hæstiréttur mun ekki breyta þeim lögum sem nýlega voru samþykkt," segir Vilmundur einnig. „Því er hér með skorað á yður að sjá til þess að ríkislögmaður falli þegar frá umræddri áfrýjun sem ekki mun hafa neitt í för með sér annað en kostnað fyrir ráðuneyti yðar." Að lokum segir Vilmundur að Samtök Atvinnulífsins álíti að umhverfisráðherra hafi með framferði sínu í þessu máli „sýnt óbilgirni og þjónkun við þrönga pólitíska hagsmuni og þar með stórskaðað endurreisn íslensks atvinnulífs. Slíkt framferði gengur þvert á öll loforð forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar og hlýtur forsætisráðherra að velta fyrir sér stöðu ráðherra sem þannig haga sér." Pistill um málið á heimasíðu SA.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Sjá meira