Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Leiðtogi múslima óttast að öfgaöfl skjóti hér rótum Fjársterkir útlendingar hafa keypt hús í Reykjavík sem á að vera moska múslíma. Formaður Félags múslíma á Íslandi sver hópinn af sér. Hann hefur tilkynnt mennina til lögreglu og segist óttast að öfgaöfl nái að skjóta hér rótum. 7.10.2010 18:30
Fjórir handteknir eftir líkamsárás Karlmaður var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir alvarlega líkamsárás á horni Laugavegar og Vitastígar í dag. Fjórir menn voru handteknir eftir árásina og eru enn í haldi lögreglunnar. Ekki liggur fyrir hve alvarlegir áverkar mannsins sem ráðist var á eru. 7.10.2010 18:21
Sex bíla árekstur við Bústaðaveg Sex bíla árekstur varð á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallarvegar fyrir stundu. Fjórir voru fluttir á slysadeild úr tveimur bílum en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er ekki um alvarleg meiðsl á fólki að ræða. Umferðartafir gætu orðið við gatnamótin fram á sjöunda tímann í kvöld vegna slyssins. 7.10.2010 17:21
Gleymdi potti á eldavélinni Betur fór en á horfðist þegar gleymdist að slökkva á eldavélarhellu í kjallaraíbúð í vesturborginni síðdegis í gær. Þar var ungur maður að sjóða fisk í potti fyrir heimilisköttinn en skrapp frá og gleymdi að slökkva á hellunni. 7.10.2010 17:03
Grunaður um að lemja konu og hrinda fötluðum manni Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag gæsluvarðhald yfir manni sem er grunaður um að hafa lamið fyrrverandi kærustu sína með hnúajárni og stórslasað hana. Maðurinn skal sæta gæsluvarðhaldi til 1. nóvember. 7.10.2010 16:39
Dómur þyngdur yfir ofbeldismanni Hæstiréttur Íslands þyngdi dóm yfir Ólafi Gottskálkssyni í dag en hann hlaut tíu mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að ryðjast inn á heimili manns, misþyrma honum og hafa tölvu á brott með sér. 7.10.2010 16:35
Krefjast þess að niðurskurðurinn verði endurskoðaður Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs mótmælir harðlega boðuðum niðurskurði til Heilbrigðisstofnunar Austurlands sem fram kemur í nýju fjárlagafrumvarpi. Bæjarstjórnin segir einsýnt að niðurskurðurinn leiði af sér fjöldauppsagnir og stórkostlega skerta þjónustu við íbúa fjórðungsins. 7.10.2010 16:25
Borgarstjórinn í bleikum jakkafötum Krabbameinsfélagið hvetur fólk til að klæðast bleiku á morgun til að sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Krabbameinsfélagið gaf Jóni Gnarr borgarstjóra bleik jakkaföt í tilefni dagsins en þau voru sérsniðin á hann af Berglindi Magnúsdóttur í Klæðskerahöllinni og hyggst hann skarta þeim á bleika deginum. 7.10.2010 16:00
Hættir sem aðstoðarmaður Jóns Gnarr Heiða Kristín Helgadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Besta flokksins. Í tilkynningu frá flokknum segir að jafnframt muni hún gegna stöðu framkvæmdastjóra borgarstjórnarflokks Besta flokksins og varaformennsku í flokknum. 7.10.2010 15:55
Engar breytingar á rjúpnaveiðinni Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur ákveðið að fyrirkomulag rjúpnaveiða í haust verði óbreytt frá fyrra ári. Veiðitímabilið hefst föstudaginn 29. október og stendur til og með sunnudeginum 5. desember. Á tímabilinu verður heimilt að stunda veiðar á föstudögum, laugardögum og sunnudögum og verða veiðidagar því átján talsins. 7.10.2010 15:40
Borgarráð stofnar menningarsjóð tengdan friðarsúlunni Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að stofna Menningarsjóðinn Imagine Peace - Reykjavík. Sjóðurinn er stofnaður með það að markmiði að styðja við og styrkja menningarstarf sem endurspeglar á einhvern hátt þau gildi sem IMAGINE PEACE Friðarsúlan í Viðey byggir á. 7.10.2010 15:16
Spyr iðnaðarráðherra um íslensk skúffufyrirtæki Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram fyrirspurn til iðnaðarráðherra um hvort Byggðastofnun sé í raun að lána fé til svokallaðra skúffufyrirtækja. 7.10.2010 15:02
Vill fjölga hæstaréttardómurum Fjölga þarf hæstaréttardómurum að sögn Ögmundar Jónassonar, dómsmálaráðherra. 7.10.2010 14:19
Verjandi Geirs vill að málið verði fellt niður Verjandi Geirs Haarde, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, vill að Alþingi felli niður málshöfðun gegn Geir vegna meintra brota á ráðherraábyrgð. Þetta kemur fram í bréfi Andri Árnason, lögmaður Geirs, sendi forseta Alþingis í fyrradag, samkvæmt heimildum Vísis. 7.10.2010 14:02
Össur við bændur: Enginn er barinn til ásta Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hvetur íslenska bændur til að taka þátt í aðildarviðræðum vegna mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandi og telur að bændur vanmeti samningsstöðu sína. „Staðreyndin er einfaldlega sú, að samningsstaða íslensks landbúnaðar er betri en þeir telja, sem ekki vilja láta á hana reyna," segir Össur í bréfi til Bændasamtakanna. Að hans mati verða fulltrúar bænda að hafa sjálfstraust til að taka þátt í samningaviðræðunum af fullum þrótti til að tryggja hag þeirra sem best. 7.10.2010 14:00
Vill ekki kosningar - Ný stjórn sami grautur með öðrum formerkjum „Við erum ekki hætt,“ segir Ásta Hafberg, ein af þeim sem stóðu að mótmælunum á mánudagskvöldinu en hún segist ekki búast við því að mótmæli verði haldin á þeirra vegum í kvöld. 7.10.2010 13:55
Listamenn kynna störf sín fyrir Ásbirni Ásbjörn Óttarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins, situr nú fund með stjórn Bandalags íslenskra listamanna í Iðnó. Í tilkynningu frá félaginu segir að Ásbirni hafi verið boðið á fund með stjórninni þar sem ekki sé vanþörf á að uppfræða þjóðkjörna fulltrúa um störf og stöðu listamanna. 7.10.2010 13:13
Leggur til að menning og listir verði lagðar niður í sólarhring Hljómplötuútgefandinn Baldvin Esra Einarsson, sem rekur Kimi Records, er kominn með nóg af árlegri umræðu um sóun fjármuna í listir á Íslandi. Hann hvetur Bandalag íslenskra Listamanna (BÍL) til þess að fara í eins dags allsherjarverkfall til þess að minna á mikilvægi listarinnar. 7.10.2010 13:05
Ísland í forgrunni í Frankfurt - ekkert skorið niður Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra var viðstödd blaðamannafund sem haldinn var í Frankfurt í morgun þar sem helstu viðburðir tengdir Íslandi á Bókasýningunni í Frankfurt á næsta ári, en þar skipar Ísland heiðurssess. 7.10.2010 12:14
Ásbjörn biður listamenn afsökunar Ásbjörn Óttarsson, þingmaður sjálfstæðismanna, biðst afsökunar á ummælum sínum á þingi um að listamenn gætu fengið sér vinnu eins og venjulegt fólk. Hann segist þó ekki vera hlynntur listamannalaunum. 7.10.2010 12:14
Allir nema sjálfstæðismenn ræddu skuldavandann Nefnd fimm ráðherra og fulltrúa stjórnarandstöðunnar funduðu í forsætisráðuneytinu í morgun um mögulegar aðgerðir til að létta á skuldavanda heimilanna. Sjálfstæðisflokkurinn var eini flokkurinn sem ekki átti fulltrúa á fundinum. 7.10.2010 12:07
Undrast hve langan tíma Svandís tók til lýsa sig vanhæfa Ráðamenn Ölfuss undrast að nærri hálft ár skyldi líða frá því þeir sendu inn aðalskipulag sveitarfélagsins til staðfestingar þar til umhverfisráðherra lýsti sig vanhæfan í málinu. Þeir segja að þetta muni meðal annars tefja tvöföldun Suðurlandsvegar. 7.10.2010 12:00
Skólabörn gengu við trommuslátt í rigningunni Nemendur og starfsfólk Grunnskólans á Hólmavík fóru í sameiginlega gönguferð um bæinn í tilefni af alþjóðlega Göngum í skólann-dagsins sem var í gær. Nemendurnir gengu við fjörugan trommuslátt og sungu hin ýmsu lög í rigningunni. 7.10.2010 11:48
Færri ríkisstofnanir reknar með halla Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga fyrstu átta mánuði þessa árs kemur fram að tekjur ríkisins á tímabilinu voru 13 milljarða króna yfir áætlun. Skýringin er eingöngu sú að sala eigna skilaði meiri tekjum en reiknað var með. Tekjur af sköttum voru hins vegar í heild minni en áætlað var. Gjöld ríkisins voru 25 milljarða undir áætlun og munar þar mestu um að rekstrargjöld stofnana voru minni en reiknað var með. Afkoma ríkissjóðs var því 38 milljónum króna betri á tímabilinu en búist var við í upphafi ársins. Engu að síður varð 52 milljóna k´rona halli á rekstrinum. Að mati Ríkisendurskoðunar þarf að draga útgjöld verulega saman og/eða auka tekjur á næsta ári eigi markmið stjórnvalda um að rekstur ríkissjóðs skili afgangi árið 2013 að nást. 7.10.2010 11:39
Sjálfstæðismenn gengu út af nefndarfundi Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins gengu út af fundi þingmannanefndar Atla Gíslasonar sem haldinn var í morgun, samkvæmt heimildum Vísis. 7.10.2010 11:09
Karlmenn á háum hælum ganga gegn ofbeldi Tveir karlmenn hafa tekið sig saman og ætla að ganga á háum hælum til að vekja athygli á ofbeldi gegn konum. Þeir eru bjartsýnir á að góður hópur karlmanna verði með þeim og þegar hefur ein kona sem notar stóra skó boðist til að lána þá til karlanna. 7.10.2010 11:09
Jóhanna nýtur lögregluverndar en Steingrímur ekki Lögreglumaður á vegum Ríkislögreglustjórans fylgir Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra hvert fótmál og hefur gert síðan mótmælin hófust samkvæmt heimildum Vísis. 7.10.2010 10:45
Sigríður og Helgi Magnús verða saksóknarar Sigríður J. Friðjónsdóttir verður tilnefnd sem saksóknari Alþingis og Helgi Magnús Gunnarsson verður tilnefndur sem varasaksóknari í málinu gegn Geir Haarde fyrrverandi forsætisráðherra, samkvæmt heimildum fréttastofu. 7.10.2010 09:42
Sruli sýknaður af því að flytja inn hnúajárn „Ég var sýknaður og fæ regnhlífarnar til baka,“ segir hönnuðurinn Sruli Recht, en hann var ákærður fyrir að flytja inn fjögur hnúajárn. Dómarinn sýknaði hann í morgunn á þeim forsendum að hnúajárnin væru ekki vopn þegar þau voru fest við regnhlíf. 7.10.2010 09:30
Hrafnistumenn etja kappi við bæjarfulltrúa Bæjarstjórinn og nokkrir bæjarfulltrúar í Hafnarfirði mæta galvaskir á Hrafnistu í Hafnarfirði í dag til að etja kappi við heimilismenn í árlegri púttkeppni á vellinum við heimilið. 7.10.2010 09:24
Fremstu vefhönnuðir heims til landsins „Ísland, Sílíkondalur norðursins, er meðal mest spennandi staða í tæknibransanum um þessar mundir. Hér er nóg af góðum hugmyndum, flottum nýsköpunarfyrirtækjum og umhverfisvænum orkuskýjum.“ 7.10.2010 09:00
Líknandi meðferð deyjandi sjúklinga flutt frá Suðurnesjum Hjúkrunarráð Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja lýsir yfir verulegum áhyggjum vegna 25 prósenta niðurskurðar á fjárlögum 2011. „Að óbreyttu hefur þetta í för með sér gífurlega skerðingu á þjónustu við íbúa svæðisins. Sýnt er að fæðingaþjónusta, þjónusta við hjarta og lungnasjúklinga, endurhæfing, þjónusta við langveika og krabbameinssjúklinga og líknandi meðferð deyjandi sjúklinga svo eitthvað sé nefnt mun flytjast til Reykjavíkur,“ segir í tilkynningu frá hjúkrunarráðinu. 7.10.2010 08:37
Efnt til mótmæla á nokkrum stöðum á landsbyggðinni Mótmælafundir og aðgerðir hafa verið boðuð á nokkrum stöðum á landsbyggðinni í dag til að mótmæla fyrirhuguðum niðruskurði í heilbrigðisþjónustu á svæðunum. 7.10.2010 07:30
Slóðaskapur kostaði útkall Óttast var um afdrif dragnótabáts með sjö manna áhöfn um miðnætti í gærkvöldi og var björgunarskip frá Vestmananeyjum kallað út. 7.10.2010 07:20
Innbrot í Hveragerði Brotist var inn í íbúðarhús í Hveragerði í nótt og þaðan stolið fartölvu og farsíma og fleiru smálegu. 7.10.2010 07:17
Bjarni Benediktsson átti einkafund með David Cameron Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins átti síðdegis á þriðjudaginn einkafund með David Cameron forsætisráðherra Bretlands og leiðtoga breska Íhaldsflokksins. Fundur Bjarna og Cameron fór fram í Birmingham en þar stendur yfir flokksþing breska Íhaldsflokksins. 7.10.2010 07:16
Vill ekki einkavæða auðlindir „Maður heyrir að fólki finnist að sérstaklega núna í kreppunni höfum við ekki efni á að hlífa náttúrunni,“ segir Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. 7.10.2010 06:00
Flöt afskrift er vond hugmynd segir AGS Að mati AGS er ástæðulaust að afskrifa skuldir eignafólks. Sjóðurinn hefur frá upphafi verið á móti hugmyndum sem viðraðar hafa verið um flata skuldaafskrift. Efnahagsáætlun stjórnarinnar byggir á því að hjálpa þar sem þörf er á. 7.10.2010 06:00
Aftengd vatnslögn til borgarlögmanns Borgarlögmaður skoðar nú mál fjölskyldunnar sem Orkuveitan aftengdi kalda vatnið hjá í síðustu viku. 7.10.2010 06:00
Sakborningar í Exeter-máli vísa ábyrgð hver á annan Sakborningarnir þrír í svokölluðu Exeter-máli sérstaks saksóknara vísa hver á annan um ábyrgð á veigamiklum atriðum í málinu. Enginn þeirra telur þó að nokkur lög hafi verið brotin. 7.10.2010 06:00
Þingið svipti flesta brotaþola bótunum Lagabreyting frá síðasta ári gerir það að verkum að sárafá fórnarlömb afbrota fá nokkru sinni bætur sem þeim eru dæmdar fyrir tjónið. Breytingin á að spara ríkinu um 60 milljónir á ári. 7.10.2010 06:00
Ísland og ESB munu helst deila um fisk Mikið var rætt um sjávarútvegsmál á fundi sameiginlegrar þingnefndar Alþingis og Evrópuþingsins í Þjóðmenningarhúsinu á þriðjudag. Fulltrúar Íslands og ESB telja að einna erfiðast verði að ná samkomulagi um sjávarútvegsmál í aðildarviðræðum. 7.10.2010 05:30
Tilboð langt undir áætlun Verktakafyrirtækið Háfell átti lægsta tilboð, eða tæplega 179 milljónir króna, í seinni áfanga Suðurstrandavegar sem er um 41% af áætluðum kostnaði, 433 milljónum króna. 7.10.2010 05:30
Ákærðu benda hver á annan Sakborningarnir þrír í svokölluðu Exeter-máli sérstaks saksóknara vísa hver á annan um ábyrgð á veigamiklum atriðum í málinu. Þetta kemur fram í greinargerðum verjenda sem Fréttablaðið hefur undir höndum. Enginn þeirra telur þó að lög hafi verið brotin í viðskiptunum. 7.10.2010 05:00
Gekkst undir lífsýnatöku Karlmaður sem grunaður er um að hafa ráðist á konu í Hveragerði í lok síðasta mánaðar og slasað hana alvarlega hefur undirgengist lífsýnatöku eftir úrskurð Héraðsdómur Suðurlands þar að lútandi. 7.10.2010 04:45