Fjöldi ófeðraðra mynda enn á huldu 8. október 2010 05:00 Myndin í miðjunni er ein fjögurra sem Eygló Sigurðardóttir tók og er í verkinu Cars in Rivers.Mynd/Úr Verki Ólafs Elíassonar „
Þeir eru búnir að viðurkenna þessi mistök og málið er úr sögunni af minni hálfu,“ segir Eygló Sigurðardóttir, sem á fjórar ljósmyndir í 35 mynda verki Ólafs Elíassonar. Myndir Eyglóar eru eins og fleiri í verkinu Cars in Rivers úr albúmum Ferðafélags Íslands í Þórsmörk. Ferðafélagið lét Ólaf hafa myndirnar til að nota í verkið en hvorki félagið né Ólafur könnuðu hverjir væru höfundar þeirra mynda til að fá leyfi fyrir notkun þeirra. Í Fréttablaðinu á miðvikudag kom fram að Sigurður Ó. Sigurðsson á eina mynd í verkinu. Eygló gerði athugasemdir við bæði Ferðafélagið og talsmenn Ólafs Elíassonar og hefur nú fengið útprent af Cars in Rivers áritað af Ólafi Elíassyni. Börkur Arnarsson í I8, sem starfaði með Ólafi að Cars in Rivers, vill ekki svara því hversu mörgum myndanna þeir hafi í raun ekki vitað hverjir voru höfundar að og ekki fengið leyfi þeirra fyrir. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru þær fleiri úr Ferðafélagsalbúminu en áðurnefndar fimm myndir. „Það breytir engu hvað þær eru margar, það er bara á milli okkar og Ferðafélagsins,“ svarar Börkur. Hann vill ekki staðfesta að einhverjir ljósmyndaranna hafi verið beðnir afsökunar. „Mér finnst það ekki skipta máli fyrir lesendur Fréttablaðsins. Það hlýtur að vera prívat á milli þeirra aðila sem málið snýr að. Mér sýnist á öllu að þetta sé allt að leysast á farsælan veg.“ - gar
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira