Fleiri fréttir

Fjárdráttur nemur þriðjungi af sóknargjöldum

Fjárdrátturinn í Hvítasunnukirkjunni nemur um þriðjungi af öllum sóknargjöldum sem safnaðarmeðlimir hafa greitt undanfarin sex ár. Fyrrverandi framkvæmdastjóri sem hefur játað fjárdráttinn, segist ekki vita hvort hann geti endurgreitt, en kirkjan krefst bóta. Honum verður fyrirgefið, segir talsmaður Hvítasunnukirkjunnar.

Maður á fertugsaldri í varðhaldi

Þrjátíu og sex ára gamall karlmaður var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við umfangsmikið fjársvikamál sem nú er til rannsóknar hjá lögreglu. Hann hefur tengsl við höfuðpaurinn í málinu sem handtekinn var í Venesúela í lok september. Alls hafa átta manns verið handteknir í tengslum við málið.

Eldsupptök á hjólbarðaverkstæðinu ókunn

Lögregla rannsakar nú eldsupptök í hjólbarðaverstæðinu Pitt-stop við Rauðhellu í Hafnarfirði í nótt, þar sem tuga milljóna króna tjón varð í eldsvoða.

Enn haldið sofandi í öndunarvél

Karlmanni sem missti meðvitund í tanki við Strandgötu um hádegisbilið í gær er enn haldið sofandi. Samkvæmt upplýsingum frá yfirlækni gjörgæslu Landspítalans við Fossvog er líðan mannsins óbreytt.

Bætist í hóp mótmælenda

Um fjörutíu og fimm manns eru nú samankomnir fyrir utan Stjórnarráðshúsið og fer þeim fjölgangi en þar var boðað til tunnumótmæla klukkan tíu í dag.

Fámenn og friðsæl mótmæli

Rúmlega tuttugu manns standa við tunnur fyrir utan Stjórnarráðshúsið og mótmæla. Lögreglan er með nokkurn viðbúnað eftir að skemmdarverk voru unnin á húsinu í nótt af ölvuðum manni.

Lögreglan hefur girt af Stjórnarráðshúsið

Lögreglan hefur girt af Stjórnarráðshúsið með gulum borðum vegna mótmæla sem boðað hefur verið til við húsið nú klukkan tíu. Fáir mótmælendur eru á staðnum en lögreglan er með nokkurn viðbúnað.

Tunnumótmæli að hefjast við Stjórnarráðshúsið

Boðað hefur verið til mótmæla við Stjórnarráðshúsið milli klukkan tíu og tólf undir yfirskriftinni: Tunnum ríkisstjórnina. Nokkur fjöldi mótmælenda svaf úti við Stjórnarráðshúsið í nótt til að vekja athygli á bágri stöðu fjölda fólks.

Brotist inn í Baðhúsið

Brotist var inn í líkamsræktarstöðina Baðhúsið við Brautarholt undir morgun og þaðan meðal annars stolið tölvu úr afgreiðslunni. Einnig var rótað mikið til í leit að verðmætum. Þjófurinn komst inn um glugga á bakhlið og hefur líklega farið þar út líka, en hann er ófundinn.

Mesta jafnréttið er á Íslandi

Ísland heldur efsta sætinu á jafnréttislista World Economic Forum, annað árið í röð. Samkvæmt skýrslunni er Ísland það land í heiminum þar sem mest jafnræði ríkir á milli karla og kvenna.

Árásarmannsins enn leitað

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn að manni, sem réðst á 16 ára stúlku í Laugardalnum í Reykjavík síðdegis í gær og veitti henni áverka með steini.

Síldin gengin inn á Breiðafjörð

Mikið af síld úr íslenska sumargotssíldarstofninum er nú gengin inn á Breiðafjörð og eru stórar torfur undan Grundarfirði og Stykkishólmi.

Braut rúður í Stjórnarráðshúsinu

Tæplega þrítugur karlmaður gekk berserksgang fyrir utan Stjórnarráðshúsið við Lækjargötu um hálftvö leitið í nótt og braut þar átta rúður með barefli.

Gríðarlegt tjón í bruna í Hafnarfirði

Gríðarlegt tjón varð þegar mikill eldur gaus upp í stórum dekkjalager á hjólbarðaverkstæðinu Pit Stop við Rauðhellu, austan við Álverið í Straumsvík laust fyrir klukkan hálf eitt í nótt.

Grunnur lagður að sameiningu fjögurra ríkisháskóla

Svo getur farið að innan nokkurra ára verði fjórir ríkisháskólar sameinaðir í einn. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur sett á fót samstarfsnet skólanna, „með hugsanlega sameiningu í huga“, eins og segir í greinargerð fjárlagafrumvarps næsta árs.

Enn einn handtekinn vegna fjársvikamáls

Karlmaður var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fjársvikamáli. Maðurinn er talinn tengjast málinu sem snýst um svik á virðisaukaskatti, þar sem sviknar voru út um 270 milljónir króna.

Réðust inn á heimili í Hveragerði

Fjórar manneskjur í annarlegu ástandi vegna fíkniefnaneyslu, frömdu húsbrot í Hveragerði í nótt. Fólkið ruddist þar inn á heimili sambýlisfólks um fimmtugt, hafði í hótunum og þóttist vera að innheimta einhverja skuld.

Fjölgað um 35% á vanskilaskrá

Íslendingum sem eru í svo miklum skuldakröggum að þeir eru komnir á vanskilaskrá hefur fjölgað um 35 prósent á tveimur árum. Um 22 þúsund Íslendingar eru með skuldir sem komnar eru í löginnheimtu, þar sem hefðbundnum lögfræðilegum innheimtuaðgerðum er beitt við innheimtu kröfunnar, og þar með á vanskilaskrá.

Rannsaka síðustu daga Sigurplasts

Grunur leikur á að gögn hafi verið fjarlægð úr bókhaldi iðnfyrirtækisins Sigurplasts í Mosfellsbæ þegar fyrri eigendur fóru frá og áður en nýr framkvæmdastjóri á vegum Arion banka tók við því fyrir um hálfum mánuði. Þá hefur tölvukerfi fyrirtækisins legið niðri frá sama tíma. Ekki er vitað hvað var gert við það, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Ríkisendurskoðandi hafnar bullbrigslum

Sveinn Arason ríkisendurskoðandi gerir athugasemdir við ummæli Álfheiðar Ingadóttur, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, í Fréttablaðinu á laugardag. Þar lýsti Álfheiður ummælum Ríkisendurskoðunar í skýrslu um framkvæmd fjárlaga yfirstandi árs sem „bulli“.

Sæstrengur fyrir umframorku

Raforkuframleiðsla Kárahnjúkavirkjunar hefur að meðal­tali verið á bilinu þrjú til fjögur prósent umfram áætlanir á ári frá því að virkjunin var tekin í notkun.

Vill atkvæðagreiðslu um kattahald

Jón Gnarr borgarstjóri vill atkvæðagreiðslu um kattahald í Reykjavík. S. Björn Blöndal, aðstoðarmaður borgarstjóra, segir að ekkert sé búið að ákveða um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar en málið sé í skoðun.

Þorgerður Katrín vill fund vegna St. Jósefsspítala

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur óskað eftir fundi þingmanna Suðvesturkjördæmis vegna St. Jósefsspítala/Sólvangs og boðaðs niðurskurðar í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011. Þorgerður vill að á fundinn verði boðaðir allir þingmenn suðvesturkjördæmis, sveitarstjórnmenn í Hafnarfirði, framkvæmdastjóri spítalans, forystumenn áhugahóps um framtíð St. Jósefsspítala/Sólvangs og heilbrigðisráðherra.

Hvetur Kínverja til að taka þátt í baráttunni fyrir mannréttindum

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ítrekar fyrri hvatningar sínar til kínverskra ráðamanna og beinir því til alþjóðasamfélagsins að það sameinist í baráttunni fyrir mannréttindum svo að málfrelsi verði hvarvetna virt og engir séu hnepptir í fangelsi vegna skoðana sinna.

Össur hvetur Kínverja til að sleppa Liu Xiaobo

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hvetur kínversk stjórnvöld til að sleppa Liu Xiaobo, handhafa friðarverðlauna Nóbels í ár, úr haldi. Segir ráðherra engan eiga að sitja í fangelsi fyrir skoðanir sínar.

Fólk nýti bílastæði við Laugardalsvöll

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim góðfúslegu tilmælum til ökumanna sem eiga leið um Laugardalinn að nýta þau bílastæði sem þar eru í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur á svæðinu.

Árásarmanns enn leitað

Mannsins, sem réðst á stúlku í Reykjavík í dag,. er enn leitað. Samkvæmt lýsingu lögreglu er hann um 170 sentimetrar á hæð, skolhærður og meðalmaður að vexti. Hann var í dökkum jakka eða dökkri peysu, í hvítum skóm með rauðum röndum.

Óskað eftir vitnum að slysi í Kópavogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Reykjanesbraut í Kópavogi, sunnan Smáralindar síðastliðinn fimmtudag. Slysið varð á milli kl. 14 og 14.30 þegar rauðri bifreið, trúlega af gerðinni Nissan Sunny, var ekið í veg fyrir svart bifhjól af gerðinni Kawasaki NNJA á fyrrnefndum stað en ökutækin voru á norðurleið.

Ráðist á unga konu - árásarmanns leitað

Ung stúlka, 16 til 17 ára gömul, var flutt á slysadeild á fjórða tímanum í dag eftir að á hana var ráðist. Að sögn lögreglu var um grófa árás að ræða og er árásarmannsins leitað. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild er stúlkan í skoðun og frekari upplýsingar eru ekki gefnar að svo stöddu.

Fæðingamet slegið á Akranesi

Fæðingamet, sem sett var á síðasta ári, hefur þegar verið slegið á Sjúkrahúsinu á Akranesi þrátt fyrir að október sé aðeins skammt á veg kominn.

Stuðningsfulltrúar gagnrýna norræna velferðarstjórn

Stjórn félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa mótmælir harðlega niðurskurði í heilbrigðisþjónustu og velferðarmálum. „Samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi ætlar norræna velferðarstjórnin í stórfelldan og sársaukafullan niðurskurð sem mun bitna alvarlega á heilbrigðisþjónustu og velferð, og koma verst niður á byggðum utan höfuðborgarsvæðisins. Í þessum niðurskurði felst líka mikil fækkun starfsfólks við heilbrigðisstofnanir og við velferðarþjónustu. Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa mótmælir þessari ráðagerð hástöfum!,“ segir í tilkynningu sem stjórn félagsins hefur sent frá sér.

Heitavatnsþörf Siglfirðinga fullnægt

Borun vinnsluholu á Skarðdal fyrir Hitaveitu RARIK á Siglufirði lauk þann 25. september með góðum árangri. Jarðhitasvæðið í Skútudal sem hefur þjónað Siglufirði undanfarna ártugi hefur gefið nokkuð eftir að undanförnu og ekki liggur fyrir niðurstaða rannsókna á því hvað veldur. Svæðið uppfyllir ekki lengur þörfina fyrir heitt vatn á Siglufirði.

Bjarni var víst boðaður á fundinn

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var víst boðaður á fund í samráðshópi ráðherra og stjórnarandstöðunnar um skuldavanda heimilanna í morgun. Þetta segir Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra. Hann hefur sent fréttastofu afrit af fundarboðinu þessu til staðfestningar.

Ekið á mann við Selfoss

Ungur maður varð fyrir bifreið á Suðurlandsvegi við Selfoss aðfararnótt sunnudags og lýsir lögregla eftir ökumanni bílsins. Ekið var á manninn á vegarkaflanum sem liggur frá hringtorgi við Toyotaumboðið og að Biskupstungnabraut. Atvikið átti sér stað milli kl. 04:15 og 04:30 aðfaranótt sunnudags

Reyna að plástra mein Samfylkingarinnar

Samfylkingarfélagið á Fljótsdalshéraði vill að svonefnd Umbótanefnd Samfylkingarinnar taki til starfa sem fyrst til að leiða í ljós hvort hægt sé að plástra þau mein, sem hrjá Samfylkinguna um þessar mundir.

Vanþekking einkennir niðurskurðarhugmyndir

Virðingarleysi, skortur á samráði og vanþekking á staðháttum er rauði þráðurinn í mótmælum, sem nú dynja á stjórnvöldum vegna fyrirhugaðs niðurskurðar í heilbrigðismálum, sem verður lang mestur á landsbyggðinni.

Bjarni fékk ekkert fundarboð

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk ekkert fundarboð á fund ríkisstjórninnar með stjórnarandstöðunni í morgun. Hann segist tilbúinn í samstarf við ríkisstjórnina en segist ekki tilbúinn að taka þátt í einhverju sýndarsamráði.

Borgin leggur þrjár milljónir í menningarsjóð Lennon

Reykjavíkurborg hefur lagt þrjár milljónir króna í menningarsjóðinn Imagine Peace - Reykjavík og mun árlega leggja honum til eina milljón króna á næstu þremur árum. Borgin stofnaði sjóðinn í samstarfi við Yoko Ono, ekkju Johns Lennon, en hún hefur enn ekki lagt fé í sjóðinn. Hún mun styrkja sjóðinn með beinu fjárframlagi en upphæðin hefur ekki verið gerð opinber. Yoko Ono er ekki formlegur aðili að sjóðnum en hann er stofnaður með hennar stuðningi.

Fulltrúar Hreyfingar og Framsóknar mættu á fundinn

Reglulegum fundarhöldum um skuldavanda heimilanna var fram haldið í morgun klukkan tíu en sérstökum hópi hefur verið komið á laggirnar og er stefnt að því að funda daglega uns niðurstaða fæst í málið. Hópinn skipa fimm ráðherrar, forsætis-, fjármála-, dóms-, félags- og viðskiptaráðherra ásamt fulltrúum stjórnarandstöðunnar.

Upprættu kannabisræktun

Lögregla stöðvaði kannabisræktun í kjallaraíbúð í austurborginni á föstudag. Í tilkynningu segir að við húsleit hafi fundist tæplega 200 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á ýmsan búnað sem tengist starfsemi sem þessari. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu.

Sjá næstu 50 fréttir