Innlent

Upprættu kannabisræktun

Lögreglan hefur upprætt fjölmargar kannabisræktanir á síðustu misserum.
Lögreglan hefur upprætt fjölmargar kannabisræktanir á síðustu misserum.
Lögregla stöðvaði kannabisræktun í kjallaraíbúð í austurborginni á föstudag. Í tilkynningu segir að við húsleit hafi fundist tæplega 200 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á ýmsan búnað sem tengist starfsemi sem þessari. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×