Fleiri fréttir

IP-staðlar betri lausn í flugi

Upplýsingatækni Fyrstu raunprófanir heims á notkun internetstaðla (VoIP) í samskiptum flugumferðar­stjórnar við flugvélar áttu sér stað hér á landi í nýliðnum mánuði.

Fimm ættliðir af sex hafa séð Rigoletto

Gissur Ólafur Erlingsson, langafi aðalstjörnu óperunnar Rigoletto, Ólafs Kjartans Sigurðarsonar, mætti á generalprufu sýningarinnar á fimmtudaginn. Ólafur Kjartan sjálfur er nýlega orðinn afi þannig að Gissur er þar með orðinn langalangalangafi en Gissur varð 101 árs í mars síðastliðnum. Rigoletto var frumsýnd á laugardaginn var.

Vert að fylgjast með Rúnu

Rúna Magnúsdóttir, eigandi Connected-Women.com og meðstofnandi BRANDit, komst á lista sem birtur var á heimasíðu viðskiptatímaritsins Forbes yfir tuttugu konur í alþjóða­viðskiptalífinu sem Forbes telur vert að fylgja eftir á samfélagsvefnum Twitter.

Auka öryggi vegfarenda

Landflutningar-Samskip ætla að koma fyrir alsjálfvirkum hjartastuðtækjum í flutningabílum á öllum helstu akstursleiðum félagsins til að auka almennt öryggi vegfarenda.

Vötnin að þorna upp vegna hita og þurrks

„Þessi lága vatnsstaða er nú einfaldlega vegna þess hversu heitt hefur verið í veðri og úrkomulítið,“ segir Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, um óvenjulega lágt yfirborð stöðuvatna á höfuðborgarsvæðinu um þessar mundir.

Bítlafjör í Háskólabíói - Ringo söng með

Bítilinn Ringo Starr, Yoko Ono, Sean Lennon og mæðginin Olivia og Dhani Harrison, ekkja og sonur bítilsins George Harrison, sungu saman lagið Give Peace a Change á tónleikum hljómsveitarinnar Plastic Ono Band í Háskólabíói í gær.

Þeir sem eru flinkir í prófkjöri óttast persónukjör

Formaður allsherjarnefndar Alþingis segir að ekkert standi í vegi fyrir því að frumvarp um persónukjör verði lagt fram á Alþingi í vetur. Hann vísar því á bug að persónukjör dragi úr möguleikum kvenna til að komast á þing.

Um fimmhundruð manns mótmæltu á Egilsstöðum

Um fimmhundruð manns mótmæltu niðurskurðartillögum til heilbrigðisstofnanna á starfssvæði Heilbrigðisstofnunnar Austurlands á borgarafundi á Egilsstöðum í dag. Þar voru tvær ályktanir samþykktar þar sem fram kemur að niðurskurðartillögurnar séu aðför að heilbrigðisþjónustu á starfsvæði HSA.

17 stiga hiti á Þingvöllum

Veðurbliða hefur verið nánast um land allt í dag og víða sést óvenju háar hitatölur, miðað við októbermánuð.

Boðað til svefnmótmæla

Hópur mótmælenda hefur boðað til nokkurskonar svefnmótmæla líkt og í byrjun mánaðarins. Þá munu mótmælendur sofa úti við stjórnarráðshúsið á Lækjargötunni en mótmælin munu fara fram aðfaranótt þriðjudags.

Fjöldi manns mótmælti á Seyðisfirði

Fjöldi manns mætti á samstöðufund við Sjúkrahúsið á Seyðisfirði í dag en þar var ályktun samþykkt. Í henni koma fram efasemdir um að um raunverulegan sparnað sé að ræða í niðurskurðaráætlunum ríkisins. Bent er á mikinn kostnað við flutning sjúklinga.

Rúmlega 1500 manns við tendrun Friðarsúlunnar

Í tilefni af tendrun Friðarsúlunnar á 70 ára fæðingarafmæli John Lennon, bauð Yoko Ono gestum í fríar kvöldsiglingar til Viðeyjar í gærkvöldi. Elding flutti rúmlega 1500 manns yfir sundin en aldrei fyrr hefur Elding flutt jafn marga farþega til Viðeyjar á jafn skömmum tíma.

Telur niðurfærslu skulda mögulega

Dómsmálaráðherra segist hafa efasemdir um að almenn niðurfærsla skulda væri of þungbær fyrir ríkissjóð. Skoða þurfi málið í víðara samhengi. Forsætisráðherra segir að efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gæti þurft að taka breytingum verði ráðist í slíka aðgerð.

Slökktu ljósin og hjólaðu í vinnuna

Í dag eru fleiri en 7000 atburðir í 188 löndum þar sem vakið er athygli á frekar auðveldar leiðir til að draga úr loftslagsvá. Meðal annars í París.

Íslendingar mótmæla í Danmörku

Íslendingar í Danmörku hafa aftur boðið til mótmæla fyrir framan íslenska sendirráðið í Kaupmannahöfn á sama tíma og boðað hefur verið til mótmæla í Reykjavík.

Mótmæli á Egilsstöðum

Boðað hefur verið til mótmælafundar á Egilsstöðum klukkan þrjú í dag vegna boðaðs niðurskurðar á fjárframlögum til Heilbrigðisstofnunar Austurlands.

Google hannar sjálfakandi bíl

Verkfræðingar Google fyrirtækisins hafa hannað sjálfkeyrandi bíl, og ekið honum þúsndir kílómetra án óhappa.

Einn handtekinn fyrir líkamsárás

Einn karlmaður var handtekinn á Akureyri í nótt fyrir líkamsárás. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni náðist árásarmaðurinn og er hann í haldi. Hann verður yfirheyrður þegar hann vaknar.

Róttæk öfl sögð á bak við menningarsetur múslima

Einn þeirra sem fjármagnaði kaup á húsi undir menningarmiðstöð múslima hér á landi tengist róttækum öflum í Sádí Arabíu. Talsmaður menningarmiðstöðvarinnar, sem verður opnuð eftir áramót, segir manninn eingöngu leggja til fjármagn og muni ekki koma að starfseminni að öðru leyti.

Eldur í rútu

Eldur kviknaði í rútu fyrir stundu í Hafnarfirði. Eldurinn blossaði upp undir rútunni en enginn farþegi var í bifreiðinni þegar eldurinn kviknaði.

Viðbragðsáætlun sett fram vegna niðurskurðar

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur sett fram viðbragðsáætlun vegna þess mikla niðurskurðar sem boðaður hefur verið á heilbrigðisstofnunum landsins og fjöldauppsagna sem reikna má með að gripið verði til, ef fjárlagafrumvarpið verður að lögum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Útflutningur á hrossum hafinn á nýjan leik

Útflutningur á hrossum er hafinn að nýju eftir langt hlé vegna hrossapestarinnar. Hrossaræktendur segjast bjartsýnir, en brýnt er að engin sýkt hross fari úr landi, það gæti haft alvarlegar afleiðingar.

Spáð bongóblíðu um helgina

Ekkert lát virðist vera á einhverju lengsta og hlýjasta sumri hérlendis í manna minnum og lofar veðurspá helgarinnar góðu. Þannig spáir Veðurstofan allt að 13-14 stiga hita í dag, bæði sunnan- og vestanlands, og einnig á Mið-Norðurlandi.

Yrsa og Nóbelskáld hjá sama risaforlaginu

Bandaríska risaforlagið Macmillan tryggði sér í gær á bókamessunni í Frankfurt útgáfuréttinn á Ösku eftir Yrsu Sigurðardóttur. Á sýningunni náðust einnig samningar við Quetzal Editores um útgáfu á bókinni í Portúgal.

John Lennon sjötugur í dag

Tónlistarmaðurinn John Winston Lennon, sem seinna kastaði millinafninu og tók upp nafnið John Ono Lennon, hefði orðið sjötugur í dag hefði hann lifað.

Gistu í fangageymslum - á sitthvorum forsendunum þó

Þrír ungir menn fengu að gista fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt. Mennirnir voru mjög ölvaðir og tóku ekki tiltali lögreglunnar að sögn varðstjóra lögreglunnar á Akureyri. Þar að auki höfðu þeir lent í stympingum fyrr um kvöldið.

Læknar sprengdu fjárlögin

Kostnaður Sjúkratrygginga Íslands vegna sérfræðilækna stefnir í að vera 37 prósentum hærri í ár en fjárlög gera ráð fyrir. Munurinn er 1.600 milljónir króna.

Segir Evu Joly hafa spillt Exeter-málinu

Lögmaður fyrrverandi forstjóra MP banka segir Evu Joly hafa mælt fyrir um óhefðbundnar rannsóknaraðgerðir í svokölluðu Exeter-máli og þær hafi í ýmsum tilvikum leitt til ólögmætra aðgerða við rannsóknina. Vísa beri málinu frá vegna þess að sérstakur saksóknari hafi ekki haft lögbundið sjálfstæði í störfum sínum. Hann hefur sent ráðherrum bréf vegna málsins.

Ómar gæti verið á leið í dýrlingatölu

Það að fæðingardagur Ómars Ragnarssonar hafi verið valinn sem Dagur íslenskrar náttúru er gott dæmi um að það er að mörgu leyti pólitískt fremur en náttúrulegt fyrirbrigði þegar einstaklingar eru gerðir að þjóðardýrlingum, segir Jón Karl Helgason, bókmenntafræðingur og dósent við Háskóla Íslands.

Innleiðingu þriðja dómstigsins flýtt

Eining var meðal dómara og lögmanna á málþingi í gær um að koma beri á þriðja dómstiginu hið fyrsta. Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra segir málið komið á ákvörðunarstig.

Óvissa ríkir um störf hjá E.C.A

Óvissa er um hversu mörg störf myndu skapast ef hollenska hernaðarfyrirtækið E.C.A fengi að flytja hingað óvopnaðar herþotur til útleigu. Þetta kemur fram í bréfi sem Flugmálastjórn hefur sent samgönguráðherra um málið.

Starfsfólk hannaði brospinna

Starfsfólk á geðsviði Landspítala hefur hannað brospinna sem seldir verða í þágu geðdeilda spítalans. Fyrstu pinnarnir voru afhentir Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur forseta Alþingis og Jóni Gnarr borgar­stjóra í gær.

Svínaflensan kemur þegar líður á vetur

„Það má heita nokkuð víst að svínaflensan sé að taka völdin og að það verði hún sem kemur í vetur.“ Þetta segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir. Senn verður boðið upp á hefðbundna flensusprautu fyrir veturinn.

Sjá næstu 50 fréttir