Innlent

Gríðarlegt tjón í bruna í Hafnarfirði

Gríðarlegt tjón varð þegar mikill eldur gaus upp í stórum dekkjalager á hjólbarðaverkstæðinu Pit Stop við Rauðhellu, austan við Álverið í Straumsvík laust fyrir klukkan hálf eitt í nótt.

Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu auk tiltækra slökkviliðsmanna á frívakt, voru send á staðinn á fimm slökkviliðsbílum og var eldhafið mikið þegar að var komið. Strax var lögð áhersla á að verja nálæg hús og önnur bil í húsinu sjálfu, en það er hólfað niður með eldvarnarveggjum.

Eftir rúma klukkustund náðust tök á eldinum og um hálf fjögur leitið var farið að fækka í liðinu á vettvangi.

Þar eru þó enn nokkrir slökkviliðsmenn , sem róta með vinnuvél í rústunum til að slökkva í glæðum. Þegar eldurinn var hvað magnaðastur sást hann víða að og lagði mikinn reykjarmökk upp af staðnum. Engan sakaði og eldsupptök eru ókunn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×