Grunnur lagður að sameiningu fjögurra ríkisháskóla 12. október 2010 06:15 Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Mynd/ Anton.
Svo getur farið að innan nokkurra ára verði fjórir ríkisháskólar sameinaðir í einn. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur sett á fót samstarfsnet skólanna, „með hugsanlega sameiningu í huga", eins og segir í greinargerð fjárlagafrumvarps næsta árs. Skólarnir sem um ræðir eru Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands og Hólaskóli - Háskólinn á Hólum. Til viðbótar þessum eru starfræktir þrír háskólar í landinu. Eignar- og rekstrarform þeirra er með öðrum hætti en ríkisskólanna en samt sem áður njóta þeir talsverðra framlaga úr ríkissjóði. Háskólanetinu er ætlað að bjóða upp á fjölbreytt háskólanám á öllum helstu fræðasviðum. Skipulag náms og rannsókna á að miðast við að háskólarnir vinni náið saman og njóti krafta allra núverandi skóla sem starfi áfram undir eigin nafni. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi aukin tækifæri til samsetningar náms með því að sækja námskeið í fleiri en einum skóla. Nota á fjarkennslu í auknum mæli til að bjóða upp á fjölbreytt nám víða á landinu með samstarfi við þekkingarsetur og símenntunarmiðstöðvar. Verja á samtals 300 milljónum króna til starfsemi samstarfsnetsins á næsta og þar næsta ári, að því er fram kemur í fjárlagafrumvarpinu. Þar segir einnig að samdráttur í framlögum til opinberu háskólanna verði heldur minni en til þeirra háskóla sem eru reknir af öðrum og hafa einnig umtalsverðar tekjur af skólagjöldum. Samhliða stofnun samstarfsnetsins á að breyta lögum um opinbera háskóla svo að þeir starfi allir samkvæmt sömu lögum. Þá á að skipuleggja stjórnsýslu og stoðþjónustu skólanna sem eina heild þótt starfsmenn verði staðsettir víða. Hluti af viðfangsefnum sameiginlegrar stjórnsýslu verður skipulag kennslu og rannsókna og verkaskipting skólanna. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira