Borgin leggur þrjár milljónir í menningarsjóð Lennon Erla Hlynsdóttir skrifar 11. október 2010 10:39
Reykjavíkurborg hefur lagt þrjár milljónir króna í menningarsjóðinn Imagine Peace - Reykjavík og mun árlega leggja honum til eina milljón króna á næstu þremur árum. Borgin stofnaði sjóðinn í samstarfi við Yoko Ono, ekkju Johns Lennon, en hún hefur enn ekki lagt fé í sjóðinn. Hún mun styrkja sjóðinn með beinu fjárframlagi en upphæðin hefur ekki verið gerð opinber. Yoko Ono er ekki formlegur aðili að sjóðnum en hann er stofnaður með hennar stuðningi. Borgarráð samþykkti stofnun sjóðsins á fundi sínum í liðinni viku en hann var formlega stofnaður á 70 ára fæðingarafmæli Lennon á föstudag þegar kveikt var á friðarsúlunni í Viðey. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, staðfestir að enn hafi ekkert fé komið frá Yoko í sjóðinn. Það standi hins vegar til að hún leggi honum lið fjárhagslega. Gert er ráð fyrir að fé í sjóðinn komi að stærstum hluta frá sölu minjagripa og viðburðum tengdum friðarsúlunni. Þegar er hafin sala á stuttermabolum og plakötum frá 66°norður sem tileinkaður eru verkefninu og mun ágóðinn af sölu þeirra renna í sjóðinn.Varið höfundarrétti Friðarsúlan er höfundarréttarvarið verk Yoko Ono og þurfa þeir sem nota verkið á einn eða annan hátt að fá leyfi hennar. Allur ágóði sem verður til af sölu minjagripa tengdum friðarsúlunni rennur í styrktarsjóðinn. Markmið sjóðsins er að styðja við og styrkja menningarverkefni tengd börnum, ungmennum, grænum gildum og hreinni orku og verkefnum sem stuðla að eflingu mannréttinda og friðarstarfs.Stjórn skipuð síðar Stjórn styrktarsjóðsins mun taka ákvarðanir um þau verkefni sem sjóðurinn tekur þátt í og er framhaldið því í höndum hans. Stjórn sjóðsins hefur enn ekki verið skipuð en hún mun samanstanda af fulltrúa Reykjavíkurborgar sem einnig verður formaður, fulltrúa Yoko Ono og þriðja fulltrúanum sem er þekktur af störfum sínum við mennningar- og mannúðarmál. „Markmið sjóðsins er að styðja við og styrkja menningarverkefni tengd börnum, ungmennum, grænum gildum og hreinni orku og verkefnum sem stuðla að eflingu mannréttinda og friðarstarfs. Það verður vart betra," segir í bókun borgarráðs vegna stofnun sjóðsins.Völdu Reykjavík Dagur er afar ánægður með sjóðinn. „Okkur líst geisilega vel á þetta og það er mikill heiður fyrir borgina að standa að þessu," segir hann. Að sögn Dags hafa allir fjölmiðlar heimsins verið fullir af fréttum um tendrun friðarsúlunnar og því sé þátttaka borgarinnar í verkefninu ákaflega góð landkynning. Honum finnst einnig merkilegt að þau feðgin, Yoko Ono og Sean Ono Lennon, hafi einmitt valið að vera í Reykjavík á fæðingarafmæli Johns Lennon því nærveru þeirra hafi sannarlega verið óskað víða um heim á þessum merku tímamótum.
Tengdar fréttir Rúmlega 1500 manns við tendrun Friðarsúlunnar Í tilefni af tendrun Friðarsúlunnar á 70 ára fæðingarafmæli John Lennon, bauð Yoko Ono gestum í fríar kvöldsiglingar til Viðeyjar í gærkvöldi. Elding flutti rúmlega 1500 manns yfir sundin en aldrei fyrr hefur Elding flutt jafn marga farþega til Viðeyjar á jafn skömmum tíma. 10. október 2010 14:27 John Lennon sjötugur í dag Tónlistarmaðurinn John Winston Lennon, sem seinna kastaði millinafninu og tók upp nafnið John Ono Lennon, hefði orðið sjötugur í dag hefði hann lifað. 9. október 2010 10:06 Einkaviðtal við Yoko Ono Hin heimsþekkta listakona og friðarsinni, Yoko Ono, afhenti viðurkenningar úr LennonOno-friðarsjóðnum við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. 9. október 2010 19:39 John Lennon hefði orðið framúrstefnurokkari og aðgerðarsinni Yoko Ono segir tímann líða undarlega hratt og þykir ótrúlegt að John Lennon hefði orðið sjötugur í dag. Hefði hann lifað, væri hann aðgerðarsinni og framúrstefnurokkari, segir ekkjan. Ringo Starr, annar tveggja eftirlifandi Bítla, er á landinu og verður á tónleikum Plastic Ono Band í kvöld. 9. október 2010 19:21 Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira
Rúmlega 1500 manns við tendrun Friðarsúlunnar Í tilefni af tendrun Friðarsúlunnar á 70 ára fæðingarafmæli John Lennon, bauð Yoko Ono gestum í fríar kvöldsiglingar til Viðeyjar í gærkvöldi. Elding flutti rúmlega 1500 manns yfir sundin en aldrei fyrr hefur Elding flutt jafn marga farþega til Viðeyjar á jafn skömmum tíma. 10. október 2010 14:27
John Lennon sjötugur í dag Tónlistarmaðurinn John Winston Lennon, sem seinna kastaði millinafninu og tók upp nafnið John Ono Lennon, hefði orðið sjötugur í dag hefði hann lifað. 9. október 2010 10:06
Einkaviðtal við Yoko Ono Hin heimsþekkta listakona og friðarsinni, Yoko Ono, afhenti viðurkenningar úr LennonOno-friðarsjóðnum við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. 9. október 2010 19:39
John Lennon hefði orðið framúrstefnurokkari og aðgerðarsinni Yoko Ono segir tímann líða undarlega hratt og þykir ótrúlegt að John Lennon hefði orðið sjötugur í dag. Hefði hann lifað, væri hann aðgerðarsinni og framúrstefnurokkari, segir ekkjan. Ringo Starr, annar tveggja eftirlifandi Bítla, er á landinu og verður á tónleikum Plastic Ono Band í kvöld. 9. október 2010 19:21