Innlent

Ekið á mann við Selfoss

Ungur maður varð fyrir bifreið á Suðurlandsvegi við Selfoss aðfararnótt sunnudags og lýsir lögregla eftir ökumanni bílsins.

Ekið var á manninn á vegarkaflanum sem liggur frá hringtorgi við Toyotaumboðið og að Biskupstungnabraut. Atvikið átti sér stað milli kl. 04:15 og 04:30 aðfaranótt sunnudags

Maðurinn var á gangi í vegkantinum og ætlaði að „húkka" far til Reykjavíkur. Hann sá bifreið nálgast og fannst sem ökumaður ætlaði að stöðva. Ungi maðurinn gekk út á veginn með þeim afleiðingum að hann lenti utan í hægra frambretti bifreiðarinnar. Við það kastaðist hann aftur fyrir sig í götuna en bifreiðin hélt áfram og hvarf sjónum mannsins.

Sá sem fyrir bifreiðinni varð stóð upp og gekk inn í miðbæ Selfoss um tveggja kílómetra leið. Þar náði hann sambandi við mann sem hafði samband við Neyðarlínuna. Maðurinn reyndist óbrotinn en eitthvað hruflaður. Þar sem atvikið átti sér stað er góð götulýsing. Ekki tókst unga manninum að sjá skráningarnúmer bifreiðarinnar né greina tegund hennar en hún var grá eða silfurlituð.

Ökumaður bifreiðarinnar er beðinn að hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 480 1010










Fleiri fréttir

Sjá meira


×