Innlent

Síldin gengin inn á Breiðafjörð

Mikið af síld úr íslenska sumargotssíldarstofninum er nú gengið inn á Breiðafjörð og eru stórar torfur undan Grundarfirði og Stykkishólmi.

Ekki hefur enn verið gefinn út kvóti á síldina þar sem ekki liggur enn fyrir hvort sídlin er jafn sýkt okg hún hefur verið síðastliðin tvö ár. Hafrannsóknastofnun, í samráði við Landssamband Íslenskar útvegsmanna, mun senda leiðangur á vettvang á næstunni til að kanna málið. Eftir þær athuganir ræðst hvort og þá hversu mikill kvóti verður gefinn út.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×