Fleiri fréttir

Um 200 manns mótmæla á Austurvelli

Um það bil 200 mótmælendur eru staddir á Austurvelli í tilefni þess að tvö ár eru liðin síðan Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hélt ræðu sína um hrunið sem er stundum kölluð: Guð blessi Ísland-ræðan.

Einum sleppt í fjársvikamálinu

Einn karlmaður, sem sat í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að umfangsmiklu fjársvikamáli, hefur verið látinn laus.

Árni spyr hvort Svandís sé haldin mannvonsku

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra var sökuð á Alþingi í dag um að vera enn að leggja steina í götu framkvæmda. Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, spurði hvort aðgerðir Svandísar byggðust á mannvonsku og mannhatri en fékk ákúrur fyrir ummælin frá öðrum stjórnarandstöðuþingmanni.

Lýst eftir 85 ára gömlum manni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 85 ára gömlum karlmanni sem síðast sást til við Hrafnistu í Hafnarfirði um hádegisbil í dag.

Sendifulltrúi AGS: Almennar afskriftir of dýrar

Sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi segist telja að núverandi skuldaúrræði dugi heimilum í landinu og fólk þurfi að byrja sem fyrst að nýta sér þau úrræði. Almennar afskriftir á skuldum yrðu of þungbærar fyrir Ríkissjóð og lífeyrissjóðina í landinu.

Örmagnaðist við mótmæli

Enn var mótmælt í miðborginni í dag. Samtök sem kalla sig Rauður vettvangur héldu útifund á Lækjartorgi í tilefni þess að í dag eru tvö ár frá því neyðarlögin voru sett sem segja má að marki upphaf íslenska efnahagshrunsins.

Hætt við að bjóða upp heimili á síðustu stundu: „Ég er ekki reið“

Til stóð að selja íbúð þriggja barna einstæðrar móður á nauðungaruppboði í Hafnarfirði í dag. Konan var um tíma í þremur vinnum til að sjá fyrir sér og börnum sínum. Hún beið í angist, inni í húsinu sem hún er að missa, í meira en klukkustund, áður en hún frétti að uppboðið hefði verið afturkallað.

Hjúkrunarfræðingar gagnrýna niðurskurð harðlega

Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) mótmælir harðlega niðurskurði á heilbrigðisstofnunum sem boðaður er í frumvarpi til fjárlaga 2011. Stjórnin varar við þeim alvarlegu afleiðingum sem svo miklar og bráðar breytingar á heilbrigðisþjónustunni munu hafa fyrir alla landsmenn eins og segir í ályktun frá félaginu.

Saksóknari valinn á morgun

Þingmannanefnd Atla Gíslasonar kemur saman til fundar klukkan 10 í fyrramálið. Eina dagskrárefni fundarins er tilnefning saksóknara og varasaksóknara í máli Alþingis gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra.

Bruggstarfsemi náð nýjum hæðum

Svört atvinnustarfsemi og undanskot frá skatti hafa færst í aukana að undanförnu vegna skattahækkana ríkisstjórnarinnar. Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, í utandagskrárumræðum á Alþingi í dag.

Ríflega 21 milljón safnaðist

Ríflega 21 milljón króna safnaðist í „Göngum til góðs" landssöfnun Rauða kross Íslands sem haldin var síðastliðinn laugardag.

Dæmdur í meðferð eftir ítrekuð brot

Karlmaður var, í Héraðsdómi Suðurlands í dag, dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að sækja áfengismeðferð á meðferðarstofnun í allt að eitt ár fyrir ítrekuð áfengislagabrot.

Barnaheill mótmælir skerðingu fæðingarorlofs

Barnaheill - Save the Children á Íslandi mótmæla hugmyndum, sem fram koma í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2011, um niðurskurð á fjárframlögum til Fæðingarorlofssjóðs sem og um styttingu fæðingarorlofsins. Slíkar hugmyndir vinna gegn markmiði laganna sem er meðal annars að tryggja barni samvistir við báða foreldra og brjóta gegn ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Fimmtungur ók of hratt í Mosfellsbænum

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Öldugötu í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Öldugötu í austurátt, á milli Ölduslóðar og Öldutúns.

Mörður spyr forseta Alþingis um níumenningana

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram fyrirspurn til forseta Alþingis um „atvikin í Alþingishúsinu þann 8. desember 2008,“ eins og hann orðar það. Þennan dag áttu sér stað þeir atburðir sem urðu til þess að níumenningarnir svokölluðu voru ákærðir fyrir að ráðast á Alþingi.

Hreyfingin segist ekkert fundarboð hafa fengið

Þingmenn Hreyfingarinnar segjast ekki hafa verið boðuð á fund forsætisráðherra með stjórnarandstöðunni í morgun. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem þeir hafa sent frá sér. Þar segir að þingmenn Hreyfingarinnar, þau Baldvin Jónsson, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari, hafi fullan vilja til samstarfs um raunverulegar lausnir í landinu og blása þau á yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um áhugaleysi stjórnarandstöðunnar.

Marinó: Hugmyndir okkar fengu góðan hljómgrunn

Það stefnir í að 73 þúsund heimili, eða flestallar íslenskar fjölskyldur, verði eignalausar að ári, að mati Hagsmunasamtaka heimilanna. Eiginfjárhlutfall þessara fjölskyldna var 54% í byrjun 2008, lækkaði í 40% í árslok 2008 og lauslega áætlað, verður eiginfjárhlutfall þessara heimila uppurið í árslok 2011 miðað við spá um verðbólgu og fasteignaverð á næsta ári.

Íslensk þjóð ekki reiðubúin fyrir blessun Guðs

„Það er þannig með Drottinlega blessun að maður verður að þiggja hana standandi. Íslensk þjóð er ekki risin á fætur," segir sr. Bjarni Karlsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, aðspurður um það hvort Guð hafi blessað Ísland.

Bleikur föstudagur

Starfsfólk Krabbameinsfélags Íslands hvetur fyrirtæki til að sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameini hjá konum og hafa „Bleikan föstudag." Krabbameinsfélagið mælist því til þess að starfsfólk mæti til vinnu á föstudag í bleikri flík eða með bleikan fylgihlut.

Hvers vegna er verið að styrkja listamenn?

Alþingismenn tókust á um áherslur í fjárlagafrumvarpinu á þingi í gær. Þar sagðist Ásbjörn Óttarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins til dæmis ekki skilja hvers vegna verið er að styrkja listamenn. Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og verðandi formaður fjárlaganefndar, segir að það verði að koma í veg fyrir að niðurskurðurinn bitni á byggðum landsins.

Skynsamleg stefnumörkun á landsbyggðinni, segir fjármálaráðherra

Mótmælin halda áfram að hellast inn af landsbyggðinni vegna niðurskurðar á sjúkrahússþjónustu. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra varði niðurskurðinn í fjárlagaræðu sinni í gær með því að nauðsynlegt væri að bæta nýtingu opinberra fjármuna og að sú faglega stefnumörkun heilbrigðisyfirvalda, sem með þessu væri boðuð, væri á margan hátt skynsamleg.

Óður hrafn drepinn á Akranesi

Árásargjarn hrafn réðst á barn og hund á Akranesi í gær. Hann var aflífaður í viðurvist lögreglumanna eftir árásina, segir á fréttavefnum Skessuhorni.

Lesblindir ánægðir með Snilldarlausnir Marel

Snævar Ívarsson, starfsmaður Félags lesblindra á Íslandi, segir það sérstakt fagnaðarefni fyrir lesblinda að hugmyndum í samkeppnina Snilldarlausnir Marel skuli skilað inn á myndbandi. „Það vakti strax áhuga minn að þeir biðja um að fá hugmyndirnar á myndbandi og hvað þetta verkefni er því aðgengilegt fyrir okkar skjólstæðinga, þá sem eru lesblindir," segir hann.

Stjórnarandstaðan mætti ekki á fund ráðherra

Enginn fulltrúi stjórnarandstöðunnar á Alþingi mætti á fund með fimm ráðherrum í morgun þar sem átti að ræða aðgerðir til þess að koma til móts við skuldavanda heimilanna. Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekkert fundarboð hafa fengið. Hrannar B. Arnarson aðstoðarmaður forsætisráðherra segir hinsvegar að stjórnarandstaðan hafi verið boðuð á fundinn að loknum fyrsta fundi hópsins sem haldinn var í gær.

Gerir ekki lengur kröfu um arf Fischers

Aðild Marilyn Felonia Young að máli vegna arfs eftir skákmeistarann Bobby Fischer hefur verið felld niður. Young gerði kröfu í arfinn fyrir hönd dóttur sinnar, Jinky Young, sem hún sagði að væri dóttir Fischers. Niðurstöður DNA-rannsókna í haust leiddu hins vegar í ljós að svo var ekki.

Tvö ár frá því að Geir bað guð um að blessa Ísland

Tvö ár eru í dag síðan að neyðarlög vegna bankahrunsins, sem þá var yfirvofandi, voru sett. Geir Haarde forsætisráðherra flutti sjónvarpsávarp eftir hádegi þann daginn og klykkti út með því að biðja guð um að blessa Ísland. Hann mælti svo fyrir frumvarpi að lögunum á þingfundi. Frumvarpið var svo samþykkt seint um kvöldið.

Kjalnesingagoði: Þjóðernissinnar misnota sólkrossinn

Jóhönnu Harðardóttur, Kjalnesingagoða Ásatrúarfélagsins, var brugðið þegar hún komst að því að svokallaðir þjóðernissinnar notuðu fána með sólkrossinum í mótmælunum við Alþingishúsið á mánudag.

Leita allra leiða vegna fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar

Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í gær létu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar bóka að skýrt komi fram í lögum að þegar sveitarfélög geta ekki lengur staðið í skilum skuli leita aðstoðar sveitastjórnarráðuneytisins sem getur heimilað jöfnunarsjóði sveitarfélaga að veita bæjarstjóði styrk eða lán.

Kom að innbrotsþjófi inni á stofugólfi

Innbrotsþjófar voru á ferð í Garðabæ í nótt. Í Brekkubyggð vaknaði maður upp við það klukkan kortér í fjögur að einhver var að reyna að opna svalahurðina hjá honum.

Skýr skilaboð til stjórnmálanna

„Ég held að það séu fólgin sterk skilaboð í þessum mótmælum, og þessari stemningu í samfélaginu, til okkar allra,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon. Þau beindust að þinginu, ríkisstjórn og stjórnmálahefðinni í landinu. Stjórnmálamenn þyrftu að nálgast þau skilaboð af auðmýkt.

Hentu grjóti í Alþingishúsið

Um tuttugu til þrjátíu manns stóðu í gærkvöldi fyrir framan Alþingishúsið og börðu á tunnur í friðsamlegum mótmælum. Mótmælin stóðu til að ganga ellefu í gærkvöldi og að sögn lögreglu þurfti engin afskipti að hafa af þeim sem börðu tunnurnar.

Kallað eftir nýrri hugsun

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í stefnuræðu sinni á mánudagskvöld að húsnæðis- og skuldamál væru forgangsverkefni. Til þess yrðu allir sem vettlingi geta valdið kallaðir til samráðs og þeirra á meðal aðilar vinnumarkaðarins og Hagsmunasamtök heimilanna. En hvaða hugmyndir koma þessi samtök með að borðinu?

Þverpólitísk vonbrigði

„Það olli mér vonbrigðum að heyra fulltrúa stjórnarandstöðunnar kalla þennan fund sýndarfund og það ber ekki vott um samstarfsvilja. Mér var full alvara og boðaði til samstarfsins af einlægni.“Þetta segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sem ásamt Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra fundaði með fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna síð­degis í gær um samvinnu allra flokka um lausnir á skuldavanda fólks og heimila.

Persónugervingar á ferð

Allmargir þættir þurfa að koma saman við hönnun farartækja, að því er fram kom í máli Chris Bangle, fyrrverandi aðalhönnuðar BMW-bílaframleiðandans, á Driving Sustainability ráðstefnunni í Reykjavík. Hönnuðir þurfa að horfa til þess hvaða þætti verði að hafa með, hvað sé hægt að gera, hvað þeir vilji gera og sé skynsamlegt að gera. „Til dæmis er skynsamlegt að hafa bollastatíf, þau eru nú meðal þess sem fólk býst við að sé í bílum,“ sagði hann.

Girtu fyrir bein átök við Alþingishúsið

„Þetta var eitt af stærstu verkefnunum sem við höfum tekist á við og það gekk bara býsna vel.“Þetta segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, um aðgerðir lögreglu vegna hinna fjölmennu mótmæla við Alþingishúsið í fyrrakvöld.

Slagurinn tapast eða vinnst í borgunum Kína

Með fyrri orkuskiptum þar sem hætt var að nota olíu og kol til húshitunar og jarðvarmi tók við hafa Íslendingar sýnt heiminum að slíkar umbreytingar eru færar, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á alþjóðlegu ráðstefnunni Driving Sustainability sem fram fór í Reykjvík í september. Hann segir raunhæfan möguleika á að Reykjavík gæti með orkuskiptum í samgöngum orðið fyrsta borg í heimi til þess að reiða sig að fullu á visthæfa orku.

Fáir fá sértæka skuldaaðlögun

Eingöngu 128 einstaklingar hafa gengið frá endanlegum samningum um sértæka skuldaaðlögun og 51 fyrirtæki í farið í gegnum fjárhagslega endur­skipulagningu.

Treystir á víðtækt samstarf um úrlausnir

Ríkisstjórnin treystir á samvinnu við stjórnarandstöðuna, hagsmunasamtök heimilanna, aðila vinnumarkaðarins og bankana um lausnir á skuldamálum heimila og fyrirtækja.

Þakka björgunarsveitarfólki

Ættingjar Andrésar Tómas­sonar, sem fannst látinn í Kleifarvatni í fyrradag, vilja koma á framfæri innilegum þökkum til lögreglu, björgunarsveita og allra þeirra sem tóku þátt í leitinni með einum eða öðrum hætti.

Sýnir og gefur myndir án leyfis höfundanna

Ljósmyndir eftir tvo myndasmiði sem eru í verki Ólafs Elíassonar, Cars in Rivers, eru notaðar án heimildar höfundanna. Þær myndir eru úr albúmi sem skálaverðir Ferðafélags Íslands í Langadal í Þórsmörk settu saman.

Oddný stýrir fjárlaganefnd fyrst kvenna

Oddný G. Harðardóttir, Samfylkingunni, verður kosin nýr formaður fjárlaganefndar á fundi hennar á föstudag, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Eftir því sem blaðið kemst næst hefur kona aldrei fyrr gegnt formennsku í nefndinni.

Sjá næstu 50 fréttir