Innlent

Þakka björgunarsveitarfólki

Andrés Tómasson fannst látinn í bifreið sinni í Kleifarvatni
Andrés Tómasson fannst látinn í bifreið sinni í Kleifarvatni
Ættingjar Andrésar Tómas­sonar, sem fannst látinn í Kleifarvatni í fyrradag, vilja koma á framfæri innilegum þökkum til lögreglu, björgunarsveita og allra þeirra sem tóku þátt í leitinni með einum eða öðrum hætti.

Í þakkarskeyti segja ættingjarnir að þeir hafi gengið í gegnum erfiðan tíma, sérstaklega vegna óvissunnar um afdrif Andrésar. Það hafi því verið mjög styrkjandi og gott að vita af svo mörgu góðu fólki sem lagði sig fram af einlægni og fórnfýsi til að hann mætti finnast og óvissunni yrði létt af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×