Kallað eftir nýrri hugsun 6. október 2010 06:45 Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambandsins
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í stefnuræðu sinni á mánudagskvöld að húsnæðis- og skuldamál væru forgangsverkefni. Til þess yrðu allir sem vettlingi geta valdið kallaðir til samráðs og þeirra á meðal aðilar vinnumarkaðarins og Hagsmunasamtök heimilanna. En hvaða hugmyndir koma þessi samtök með að borðinu? Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambandsins, segir augljóst að illa hafi gengið að ráða fram úr skuldamálum heimilanna. Hann tekur undir með forsætisráðherra að þar eigi bankarnir ríka sök. „Við teljum að réttarstaða okkar umbjóðenda og heimilanna í landinu verði treyst. Það tókst að nokkru leyti í vor og samningsstaðan gagnvart bönkunum er traustari til dæmis með embætti Umboðsmanns skuldara. Það liggur jafnframt fyrir að það verður að færa þessar skuldir niður. En við höfum lagt áherslu á að það verði gert á grundvelli eignarstöðu og greiðslugetu.“ Gylfi segir að verkalýðshreyfingin leggi mikla áherslu á að félagslegt íbúðarhúsnæði verði aukið. „Það er ljóst að sífellt fleiri þurfa að fá aðstoð við að búa í húsnæði sem þeir ráða við. Það verður einfaldlega að leggja fjármuni fram sem gerir slíkt mögulegt. Það verður heldur ekki gert á markaðslegum forsendum. Ríkið verður að taka það að sér að greiða niður slíkt húsnæði.“ Samráð hefur mikið verið til umfjöllunar, ekki síst í tengslum við stöðugleikasáttmálann. Gylfi segir það vonbrigði hversu lítil innistæða hefur verið fyrir mörgu sem komið hefur frá stjórnvöldum. „Við sendum öllum þingflokkum og aðilum vinnumarkaðarins tillögur um það í apríl að samráðið yrði breikkað og stjórnarandstaðan kæmi beint að málum. Það er mikilvægt að koma slíku samstarfi á flot og að stjórnarandstaðan axli ábyrgðina á þessu með okkur.“ Marinó G. Njálsson, talsmaður Hagsmunasamtaka heimilanna, er boðaður á fund með forsætisráðherra klukkan tíu. Hann segir að fundarefnið sé einfaldlega hvað hægt sé að gera og hvernig. „Hugmyndir okkar liggja fyrir. Við höfum lagt áherslu á fjögur prósent þak á verðbætur og að gengistryggð lán verði gerð jafngild verðtryggðum lánum frá 1. janúar 2008. Við viljum forsendubrestinn, sem reið yfir þjóðina vegna gjörninga fjármálafyrirtækjanna, leiðréttan.“ Hagsmunasamtökin leggja til að íslensku húsnæðislánakerfi verði breytt. Markmiðið með hinu nýja kerfi er að lán og lánskjör í íslenskum krónum verði samkeppnishæf við þau lönd sem Íslendingar hafa gjarnan borið sig saman við. „Tillagan krefst víðtækrar samvinnu stjórnvalda, fjármálafyrirtækja, fulltrúa neytenda, samtaka atvinnulífs og launþega. Þar sér fólk eignamyndun á sínu húsnæði. Þar geta lánafyrirtæki ekki stuðlað að óstöðugleika til að koma í veg fyrir að fólk eignist húsnæði sitt. Eins og þetta er núna er fólk alltaf að byrja upp á nýtt með hverju nýju verðbólguskoti,“ segir Marinó. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira