Innlent

Tekist á um skattastefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er málshefjandi í umræðu um skattastefnuna í dag. Mynd/ GVA.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er málshefjandi í umræðu um skattastefnuna í dag. Mynd/ GVA.
Þingmenn ræða skattastefnu ríkisstjórnarinnar í utandagskrárumræðum á Alþingi klukkan fjögur í dag.

Bæði beinir skattar og óbeinir skattar hafa hækkað töluvert síðastliðin tvö ár. Þá hafa nýir skattar eins og auðlegðarskattur verið teknir upp. Gert er ráð fyrir því, í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár, að skattahækkanir skili 11 milljörðum í ríkissjóð.

Það er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sem er málshefjandi í umræðunum. Til andsvara er Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×