Innlent

Lýst eftir 85 ára gömlum manni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 85 ára gömlum karlmanni sem síðast sást til við Hrafnistu í Hafnarfirði um hádegisbil í dag.

Maðurinn, sem er gráhærður og þéttvaxinn og u.þ.b. 182 sm á hæð, er á bifreiðinni NN-507, sem er vínrauð Toyota Corolla.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um manninn eða bílinn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×