Innlent

Sjaldgæft að menn séu dæmdir í áfengismeðferð

Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir ekki algengt að dómstólar dæmi menn í áfengismeðferð en sér ekkert því til fyrirstöðu.

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt heimilislausan karlmann til áfengismeðferðar eftir að hann gerðist sekur um óspektir á almannafæri undir áhrifum áfengis. Maðurinn er dæmdur í skilorðsbundið fangelsi til tveggja mánaða en skilorðið er háð því að hann sé edrú og gangist undir dvöl á hæli í allt að eitt ár þar sem hann fer í meðferð vegna neyslu áfengis og deyfilyfja.

Þórarinn tekur fram að dómari hafi væntanlega tekið ákvörðun um að dæma á þennan hátt eftir að hann hafi í samskiptum sínum við sakborning talið hann tilbúinn til að hætta neyslu áfengis og deyfilyfja.

Maðurinn játaði öll brot sín en hann var meðal annars dæmdur fyrir að hafa ölvaður valdið hneykslan í verslun Samkaupa á Selfossi þegar hann datt utan í hillur verslunarinnar vegna ástands síns og valdið starfsfólki og viðskiptavinum verslunarinnar ónæði.

Þá olli hann einnig ónæði, óspektum og hneykslan fyrir utan fjölbýlishús á Selfossi þar sem hann var drukkinn að trufla íbúa með því að hringja dyrabjöllum þeirra.

Maðurinn viðurkenndi einnig að hafa ölvaður viðhaft óspektir, hneykslan og hættu þegar hann missti stjórn á skapi sínu í verslun Krónunnar á Selfossi. Þangað mætti hann eftir drykkju og hóf að grýta vörum að viðskiptavinum og starfsfólki.

Sakborningur játaði ennfremur að hafa í heimildarleysi dvalist í sorpgeymslu fjölbýlishúss á Selfossi og þar ölvaðir viðhaft hárreysti og óspektir á almannafæri og þannig raskað næturró íbúa hússins og valdið þeim ónæði.

Auk þessa gerði hann sig heimkominn í hitakompu í heimildarleysi, sparkaði í lögreglumann og lagðist til svefns fyrir utan matvöruverslun eftir að hafa setið við drykkju.










Tengdar fréttir

Dæmdur í meðferð eftir ítrekuð brot

Karlmaður var, í Héraðsdómi Suðurlands í dag, dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að sækja áfengismeðferð á meðferðarstofnun í allt að eitt ár fyrir ítrekuð áfengislagabrot.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×