Þverpólitísk vonbrigði 6. október 2010 06:30 „
Það olli mér vonbrigðum að heyra fulltrúa stjórnarandstöðunnar kalla þennan fund sýndarfund og það ber ekki vott um samstarfsvilja. Mér var full alvara og boðaði til samstarfsins af einlægni."Þetta segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sem ásamt Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra fundaði með fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna síðdegis í gær um samvinnu allra flokka um lausnir á skuldavanda fólks og heimila. „Ég lagði upp með að stjórnarandstöðuflokkarnir ættu hver sinn fulltrúa í nefnd með fimm ráðherrum og það sýnir mikilvægið að fimm ráðherrar skuli sitja í henni. Stjórnarandstaðan átti að fá fulla aðild þar til málið væri til lykta leitt. Þau tóku ekki vel í þetta en ég vil ekki slá þetta út af borðinu." Fundur verður í nefndinni klukkan níu í dag og var stjórnarandstaðan boðuð til hans. „Ég veit ekki hvort þau mæta, það verður að koma í ljós," segir Jóhanna. Klukkan tíu eru Hagsmunasamtök heimilanna boðuð til fundar um málið í Stjórnarráðinu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir boð um samstarf nú í svipuðum dúr og hans flokkur lagði til síðasta vor. Ekkert hafi orðið af því þá. „Það er rætt um mikilvægi samráðs en svo verða engar breytingar. Ríkisstjórnin kemur með sín mál og ætlast til að við styðjum þau, sem við höfum gert í flestum tilfellum. Það sem hefur vantað er að tekið sé tillit til mála sem koma frá stjórnarandstöðunni." Jóhanna hafnar því að vilja aðeins ræða eigin hugmyndir að lausnum. „Ég sagði að ég vildi að allt yrði uppi á borðum. Þetta væri ekki bara okkar mál heldur líka þeirra. Uppboðsmálin eru númer eitt, tvö og þrjú, gengislánamálin koma líka til skoðunar, hugmyndir um niðurfellingu skulda, skattaleg meðferð slíkrar leiðar og margt fleira. Það veldur mér því vonbrigðum að stjórnarandstaðan hafi gengið út með þær yfirlýsingar að þetta hafi verið sýndarmennska af minni hálfu. Menn geta svo velt fyrir sér hvort þjóðstjórn sé skynsamleg lausn þegar þetta eru viðtökurnar þegar boðið er til samstarfs." Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði ríkisstjórnina ekki hafa kynnt neinar aðgerðir til að leysa vandamálin á þessum fundi. Sjálfstæðisflokkurinn hefði lagt fram sínar tillögur árið 2009 þar sem gert væri ráð fyrir að lækka greiðslubyrði um helming og lengja í lánum um þrjú ár. „Við munum aftur koma fram með tillögur í þessa veru í haust." Sigmundur Davíð kveðst, í ljósi reynslunnar, hóflega bjartsýnn á framhald samvinnu stjórnar og stjórnarandstöðu. „En eftir sem áður erum við til í að styðja öll góð mál sem frá ríkisstjórninni koma."- bþs, þj / sjá síðu 8
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla komu á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira