Innlent

Girtu fyrir bein átök við Alþingishúsið

Fjölgun lögreglumanna á vakt, fleiri lögreglubílar í notkun og ýmislegt fleira hefur í för með sér mikinn kostnaðarauka fyrir lögregluna, þegar mótmæli eiga sér stað.
Fjölgun lögreglumanna á vakt, fleiri lögreglubílar í notkun og ýmislegt fleira hefur í för með sér mikinn kostnaðarauka fyrir lögregluna, þegar mótmæli eiga sér stað.
 „Þetta var eitt af stærstu verkefnunum sem við höfum tekist á við og það gekk bara býsna vel.“Þetta segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, um aðgerðir lögreglu vegna hinna fjölmennu mótmæla við Alþingishúsið í fyrrakvöld.

„Ég get ekki nákvæmlega skotið á þann aukakostnað lögreglu sem slík mótmæli hafa í för með sér, en kostnaðurinn við mótmælin í fyrrakvöld er að minnsta kosti þrjár til fjórar milljónir,“ segir Stefán. Hann segir hægt að miða við heildarkostnað búsáhaldabyltingarinnar í janúar 2009. Heildarkostnaður við hana hafi numið vel yfir 50 milljónum króna.

„Dýrustu kvöldin voru jafnvel að hlaupa á milljónum,“ útskýrir Stefán. Hann segir að aukið sé við fjölda lögreglumanna á vakt og menn í rannsóknar- og tæknideildum séu lengur á vakt þannig að þeir séu tiltækir þurfi á að halda. Þetta fái menn greitt í aukavinnu. Í gær hafði á annað hundrað lögreglumanna komið að mótmælunum, þar af um tuttugu úr sérsveit ríkislögreglustjóra.

„Girðingin sem sett var í kringum Alþingishúsið sannaði gildi sitt við þessar aðstæður og hreinlega kom í veg fyrir bein átök við mótmælendur. Þau atvik þar sem lögregla var í beinum tengslum við ólátabelgina í hópnum voru mjög fá og enduðu farsællega. Það er þessari girðingu að þakka.“

Lögreglustjórinn á höfuðborgar­svæðinu og ríkislögreglustjóri lögðu fram fjármuni til smíði girðingarinnar í kjölfar búsáhaldabyltingarinnar. Stefán segir hana ekki einungis til að auka öryggi lögreglumanna heldur annarra á svæðinu.

„Auk hennar var bætt við öryggisbúnað lögreglumanna,“ bætir hann við. Spurður um notkun lögreglumanna á gasgrímum frá 1950 segir Stefán að slík eintök sé vissulega enn að finna í búnaði lögreglumanna, sem og gamla hjálma.

Þrír lögreglumenn meiddust í mótmælunum í fyrrakvöld, að sögn Stefáns. Í öllum tilvikum var einhverju kastað í þá, þar með talið grjóti og flöskum.

Spurður hvort lögreglan hafi mannafla, fjármuni og þanþol í aðra búsáhaldabyltingu segir Stefán sína menn tilbúna í það sem koma kunni.

„Við tökumst á við þetta verkefni, undirbúum það vel og tökum á því af þeirri alvöru sem því sæmir,“ segir Stefán. „Það ber árangur.“jss@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×