Fleiri fréttir

Þjóðernissinnar útiloka ekki framboð

Sigríður Bryndís Baldvinsdóttir er ein þeirra sem mótmælti undir merkjum hvítra þjóðernissinna á mótmælum á Austurvelli í gær og er aðili að samtökunum Blóð og Heiður. Hún sakar mótmælendur sem gerðu aðsúg að fólki með nasistafána eða þjóðernismerki um að vera líkt og hugsanalögregla.

Handtekinn með hníf á Austurvelli

Lögreglan handtók mann á fimmta tímanum í dag. Maðurinn sat á bekk á Austurvelli og neitaði að færa sig og var handtekinn eftir að ljóst var að hann var með hníf innanklæða.

Engin samstaða náðist á fundinum - þjóðstjórn ekki tímabær

Engin samstaða náðist á fyrsta fundi forystumanna ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar um aðgerðir handa skuldsettum heimilum. Forsætisráðherra segir að finna verði lausn á vandanum sem fyrst en telur ekki tímabært að mynda þjóðstjórn.

Verktakar börðust grimmt um Suðurstrandarveg

Fimmtán verktakar börðust grimmt um að fá að leggja síðustu fimmtán kílómetra Suðurstrandarvegar en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag. Lægsta boð, frá Háfelli, hljóðaði upp á 179 milljónir króna og reyndist aðeins 41 prósent af kostnaðaráætlun. Næstlægsta boð átti Suðurverk, upp á 56 prósent af áætlun.

Bjartsýnn um Búðarhálsvirkjun

Lægsta boð í vélbúnað Búðarhálsvirkjunar reyndist 85 prósent af kostnaðaráætlun og kveðst forstjóri Landsvirkjunar nú bjartsýnn á að fjármögnun ljúki á næstu vikum og að framkvæmdir hefjist um áramót.

Prjónaði yfir sig

Ökumaður mótóhjóls prjónaði yfir sig á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar nú á sjötta á tímanum.

Vilja ekki skoða hugmyndir frá stjórnarandstöðu

Fundi leiðtoga stjórnarflokkanna, með forystumönnum stjórnarandstöðunnar, lauk nú rétt fyrir klukkan fimm. Fréttmaður Stöðvar 2 og Vísis ræddi við leiðtoga stjórnarandstöðunnar að fundi loknum og segir að ekki sé að skilja að neinar heildstæðar hugmyndir séu um lausnir á skuldavanda heimila.

Birgitta ber í tunnur

Þingmenn ræða enn fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár en 1. umræða um það hófst klukkan tvö í dag. Það aftrar þó ekki þingkonunni Birgittu Jónsdóttur frá því að taka þátt í mótmælunum en hún hefur staðið á Austurvelli í dag á meðal annarra mótmælenda og barið í tunnur.

Niðurskurði á Austurlandi harðlega mótmælt

Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) mótmælir harðlega niðurskurðaráformum stjórnvalda, er varða Heilbrigðisstofnun Austurlands eins og þau koma fram í framlögðu frumvarpi til fjárlaga 2011.

Austurvöllur í gærkvöldi: „Allir á sama máli“ - myndband

Sjaldan eða aldrei hafa jafn margir mætt á Austurvöll til þess að mótmæla ástandinu í þjóðfélaginu en í gærkvöldi. Talið er að um átta þúsund manns hafi verið á svæðinu þegar mest var og Andri Ólafsson, fréttamaður Stöðvar 2 tók nokkra þeirra tali.

Fámenn en hávær mótmæli

Mótmælin á Austurvelli sem boðað var til klukkan tvö í dag eru fámenn en hávær, segir fréttamaður Stöðvar 2 og Vísis sem staddur er í þinghúsinu. Hún segir að um það bil tíu manns séu á Austurvellli og berji í tunnur. Hávaðinn frá þeim heyrist greinilega inn í Alþingishúsið.

Forsætisráðherra telur að landsdómsmálið spilli ekki samstarfi

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fundar með leiðtogum stjórnarandstöðunnar núna klukkan fjögur um mögulegt samstarf milli stjórnar og stjórnarandstöðu. Jóhanna var spurð að því í dag hvort að hún óttaðist að að landsdómsmálið yrði til þess að spilla samstarfi

Mótmæli ekki ætluð börnum

Það er almennt ekki rétt að börn séu höfð með í mótmælum eins og þau fóru fram í gær. Þó að það sé brýnt að þjálfa börn í lýðræðislegri þátttöku voru aðstæður þetta kvöld ekki við hæfi barna, segir Umboðsmaður barna í pistli á vefsíðu sinni.

Greiðslur til feðra dragast saman

Sparnaðaraðgerðir Fæðingarorlofssjóðs hafa bitnað einna mest á meðalútgjöldum til feðra. Munur á greiðslum Fæðingarorlofssjóðs til mæðra og feðra hefur farið minnkandi frá því feðrum var fyrst veitt feðraorlof árið 2001. Meðalútgjöld til feðra voru 82,5 prósentum hærri til feðra en mæðra þetta fyrsta ár sem báðir foreldrar gátu tekið orlof vegna fæðingar. Bráðabirgðatölur ársins 2010 gefa til kynna að bilið milli feðra og mæðra sé enn að minnka og eru meðalútgjöld til feðra samkvæmt þessum tölum 29,1% hærri en útgjöld til mæðra.

Skuldavandi heimila verði strax settur á dagskrá

Aldrei hef ég orðið vitni að slíkum mótmælum og fóru fram í gærkvöldi, sagði Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, við upphaf þingfundar í dag. Hún sagði að þúsundir manna sem væru að missa lífsviðurværi sitt hefðu mótmælt á Austurvelli í gær. Við þessu yrði að bregðast strax og taka tafarlaust á dagskrá Alþingis umræður um skuldavanda heimilanna.

Vill kjósa til Alþingis í vor

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill kjósa til Alþingis í vor. Að hans mati er núverandi ríkisstjórn ekki vaxin þeim vanda sem samfélagið stendur frammi fyrir.

Jóhanna segir þjóðstjórn ekki í myndinni

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að þjóðstjórn sé ekki lausn á þeim vanda sem nú er glímt við. Fyrsta markmiðið er að mati hennar að ná einhverskonar sátt og samstöðu um leiðir til þess að ná utan um skuldavanda heimilanna.

Saksóknari Alþingis kjörinn á morgun

Það ræðst væntanlega ekki fyrr en á morgun hvort að Sigríður Friðjónsdóttir mun taka að sér embætti sérstaks saksóknara í máli Alþingis gegn Geir H.

Hrina mótmæla vegna niðurskurðar á landsbyggðinni

Hávær hrina mótmæla er hafin í þeim byggðum á landsbyggðinni sem þurfa að taka sig stórfelldan niðurskurð í heilbrigðisþjónustu. Á Húsavík er búið að boða til borgarafundar á fimmtudag.

Aftur boðað til mótmæla

Hópurinn sem boðaði til mótmæla gærkvöldsins hvetur fólk til þess að mæta á Austurvöll á ný í dag. Þingfundur hefst klukkan tvö í dag og á Facebook síðu hópsins er bent á að umræðuefni dagsins á þingi sé fjárlagafrumvarpið. „Samkvæmt því er boðaður gífurlegur niðurskurður í heilgbrigðis- og menntamálum. Engar kjarabætur fyrir bótaþega og engar úrbætur fyrir húsnæðislánagreiðendur. Þetta þýðir að við fáum eingöngu meira af því sama þrátt fyrir það að mörg okkar erum þegar komin í þrot," segir á Facebook síðunni.

Nokkrir ófriðarseggir skáru sig úr hópi friðsamra mótmælenda

Stefán Eiríksson lögreglustjóri segist vera afar sáttur við framgöngu lögreglumanna í gærkvöldi. „Aðgerðirnar gengu afar vel upp. Við höfðum góða stjórn á þessu verkefni alveg frá fyrstu mínútu til hinar síðustu,“ segir Stefán í samtali við Vísi.

VÍS er stærsti eigandi Pressunnar

Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) er stærsti eigandi Vefpressunar ehf. með um 33% eignarhlut. Vefpressan rekur vefmiðilinn pressan.is . Aðrir eigendur eru Björn Ingi Hrafnsson (26,37%), Salt Investment (23,08%) og Arnar Ægisson (17,58%).

Bíll Steingríms beyglaður og framrúðan brotin - myndir

Ráðherrabíll Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra er töluvert skemmdur eftir mótmæli gærkvöldsins. Hópur mótmælenda umkringdi ráðherrann þegar hann ók frá Alþingishúsinu að þingfundi loknum.

Fasískir fánar og jarðvegur fyrir lýðskrumara

Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir upplausnarástand ríkja í íslenskum stjórnmálum og bendir á að ríkisstjórnin hefur ekki haft meirihluta fyrir stefnumálum sínum á Alþingi. „Það er líklega það sem mun sprengja þessa ríkisstjórn og enda þessa fyrstu vinstri stjórn landsins. Það er auðvitað svolítið kaldhæðnislegt ef það á að vera vinstri armur Vinstri grænna sem á endanum sprengir fyrstu stjórn landsins," segir hann.

Hreinsunarstarf fór fram í nótt - myndir

Hreinsunarstarfsmenn eru langt komnir með að hreinsa Alþingishúsið og Austurvöll en þeir hafa verið að í níu klukkustundir. Einn þeirra sagði í samtali við ljósmyndara Fréttablaðsins að hann hefði aldrei séð annað eins.

Allar innkaupakerrur í notkun í Nettó

Langar biðraðir voru við alla innganga verslunar Nettó í Mjóddinni þegar hún opnaði í gærmorgun og fljótlega varð að grípa til þess ráðs að hleypa fólki inn í hópum. Það var bæði vegna þess að verslunin var að fyllast af fólki og eins vegna þess að allar innkaupakerrurnar voru komnar í notkun.

BHM mótmælir skerðingu fæðingarorlofs

BHM mun ekki taka þátt í framlengingu stöðugleikasáttmála á grundvelli boðaðrar láglaunastefnu eins og hún birtist í fjárlagafrumvarpi ársins 2011. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu þar sem afstaða þess til mála er varða kjör háskólamanna á vinnumarkaði er ítrekuð.

Ljósastaur fauk á mannlausan bíl

Bál hvasst hefur verið í vindhviðum á höfuðborgarsvæðinu undir morgun og fauk ljósastaur um koll á Bergstaðastræti í Reykjavík. Hann lenti ofan á mannlausum bíl og skemmdi hann nokkuð.

Þyrla sótti sjúkling á Snæfellsnes

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gærkvöldi til að koma til móts við sjúkrabíl, sem sendur hafði verið af stað frá Stykkishólmi með sjúkling, sem hafði fengið alvarlega kransæðastíflu.

Bílvelta á Þrengslaveginum

Bíll valt á Þrengslaveginum til Þorlákshafnar á sjötta tímanum í morgun og var ökumaðurinn fastur í bílnum eftir slysið.

Þrír lögreglumenn meiddust og yfir 30 rúður brotnar

Yfir þrjátíu rúður voru brotnar í Alþingishúsinu og það atað matarslettum og málningu, þegar um átta þúsund manns mótmæltu aðgerðarleysi Alþingis í málefnum almennings á Ausutrvelli í gærkvöldi. Þá var rúða brotin í Dómkirkjunni.

Bankastjóri vísar gagnrýni á bug

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir það mikla einföldun hjá forsætisráðherra að benda bara á bankana þegar kemur að meintu aðgerðarleysi í skuldavanda heimilanna.

Úrskurðar um varðhald í dag

Dómari í Héraðsdómi Suðurlands tók sér frest í gær til að taka afstöðu til kröfu lögreglustjórans á Selfossi um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem réðst á unga konu í Hveragerði fyrir um það bil viku. Búist er við ákvörðun dómara fyrir hádegi í dag.

Enn alllangt í land í Icesave-deilunni

Sendinefnd AGS býst enn við að Icesave-deilunni verði lokið með samningum. Þetta kemur fram í skýrslu nefndarinnar í tengslum við þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands.

Tekur við Íslandi

Mark Flanagan hefur gegnt starfi yfirmanns sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í tæp tvö ár, en viðtekin venja er hjá sjóðnum að skipta um fólk í slíkum stöðum á tveggja til þriggja ára fresti. Við starfi hans tekur nú Julie Kozack, með aðsetur í Washington í Bandaríkjunum. Hún er væntanleg hingað til lands í tengslum við fjórðu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands.

Sameiginleg nefnd stofnuð

Sameiginleg þingmannanefnd Íslands og ESB verður formlega stofnuð í dag í Þjóðmenningarhúsinu. Við það tækifæri verður rætt um samskipti Íslands og ESB, um stöðu efnahagsmála á Íslandi og sjávarútvegsstefnur Íslands og ESB. Einnig um Norðurslóðir og orkumál. Ályktað verður um aðildarviðræður Íslands og ESB í lok fundar.

Lífeyrisþegar hjá TR axli sjálfir ábyrgð

Vonast er til að draga muni úr röngum greiðslum til lífeyrisþega Tryggingastofnunar ríkisins á næstu árum að sögn Þorgerðar Ragnarsdóttur, framkvæmdastjóra þjónustu- og kynningarsviðs stofnunarinnar.

Sjá næstu 50 fréttir