Innlent

Oddný stýrir fjárlaganefnd fyrst kvenna

Oddný G. harðardóttir
Oddný G. harðardóttir
 Oddný G. Harðardóttir, Samfylkingunni, verður kosin nýr formaður fjárlaganefndar á fundi hennar á föstudag, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Eftir því sem blaðið kemst næst hefur kona aldrei fyrr gegnt formennsku í nefndinni.

Fyrri formaður, Guðbjartur Hannes­son, hefur tekið við embætti heilbrigðis-, félags- og tryggingamálaráðherra og á því ekki sæti í þingnefndum.

Sæti Guðbjarts í nefndinni tekur Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra. Hann hefur tekið sæti á þingi á ný eftir leyfi sem hann tók sér í kjölfar útkomu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. - sh



Fleiri fréttir

Sjá meira


×