Innlent

Bruggstarfsemi náð nýjum hæðum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gagnrýndi skattastefnu yfirvalda. Mynd/ Valli.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gagnrýndi skattastefnu yfirvalda. Mynd/ Valli.
Svört starfsemi og undanskot frá skatti hafa færst í aukana að undanförnu vegna skattahækkana ríkisstjórnarinnar. Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, í utandagskrárumræðum á Alþingi í dag.

Sigmundur var málshefjandi í umræðum um skattastefnu ríkisstjórnarinnar. Sigmundur Davíð sagði að bruggstarfsemi hefði náð nýjum hæðum að undanförnu því að of langt hafi verið gengið í að skattleggja áfengi. Neyslan hefði ekki minnkað heldur hafi tekjur ríkisins af áfengissölu minnkað vegna stærra neðanjarðarhagkerfis.

Sigmundur sagði að ef það væri óráð að lækka skatta í þenslu eins og Steingrímur J. Sigfússon hafi haldið fram, hlyti að vera óráð að hækka skatta í kreppu. Hann spurði hver stefna ríkisstjórnarinnar í skattamálum væri.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra var til andsvara. Hann sagði að ríkisstjórnin hefði haft það að markmiði að fara blandaða leið tekjuöflunar og sparnaðar í glímunni við ríkisfjármálin. Unnið hafi verið markvisst að því við skipulag í skattakerfinu að hlífa þeim tekjulægri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×