Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sjálfstæðismenn vilja ræða önnur mál Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sendi Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, bréf í morgun þar ítrekuð var krafa formanns flokksins frá því í gær um að rædd verði áríðandi mál sem brenna á þjóðinni á meðan þingnefndir fjalla um þingsályktanir um málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherrum. Ásta hefur ekki svarað bréfinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum. 23.9.2010 17:27
Barnaníðingur á áttræðisaldri í tveggja ára fangelsi Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag tveggja ára fangelsisdómi yfir Sveinbirni Tryggvasyni fyrir að misnota stúlku frá fjórtán ára aldri til átján ára. 23.9.2010 16:37
Börn náttúrunnar sýnd í Malaví Börn náttúrunnar, kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, verður sýnd á kvikmyndahátíð í Malaví sem er að hefjast. Þetta er önnur kvikmyndahátíðin sem haldin er í landinu. 23.9.2010 16:18
Sjófugli fækkar við Ísland Sjófuglinum stuttnefju hefur fækkað um 44 prósent hér við land frá miðjum níunda áratugnum. Fýl og langvíu hefur á sama tíma fækkað um 30 prósent, álku um 18 prósent og ritu um 16 prósent. 23.9.2010 16:03
Máttu greina frá aksturstíma og ökuleið í rannsóknarskýrslu Íslenska ríkið var sýknað af skaðabótakröfu karlmanns í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 23.9.2010 15:30
Bátur laus af strandstað Bátur með fjóra í áhöfn strandaði í dag rétt sunnan við Raufarhöfn. Björgunarsveitirnar Pólstjarnan frá Raufarhöfn og Hafliði frá Þórshöfn voru kallaðar út auk þess sem björgunarskip Landsbjargar, Gunnbjörg frá Raufarhöfn var á staðnum. 23.9.2010 14:31
Forsetinn fundaði með Putin Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fundaði í dag með Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússlands, í Rússlandi í dag. Þar eru þeir staddir á Alþjóðaþingi um Norðurslóðir sem haldið er í Moskvu. 23.9.2010 14:10
Strandaði nálægt Raufarhöfn Bátur með fjóra í áhöfn strandaði í dag rétt fyrir utan höfnina í Raufarhöfn. Að sögn lögreglu er Landhelgisgæslan í viðbragðsstöðu og lögreglumaður er á leið á vettvang. Að því er fram kemur á mbl.is eru fjórir í áhöfn bátsins. 23.9.2010 13:36
Stígamót þurftu að loka á sex stöðum á landsbyggðinni Konur á landsbyggðinni hafa minni möguleika á að leita sér aðstoðar vegna ofbeldis í nánum samböndum en konur á höfuðborgarsvæðinu. Fjárhagur þeirra félaga sem aðstoða konur sem eru beittar ofbeldi er af mjög skornum skammti og fer minnkandi. 23.9.2010 13:35
Dæmdur fyrir að hóta að skera börn lögreglumanns á háls Tvítugur maður var dæmdur í sjö mánaða fangelsi meðal annars fyrir að hóta að skera börn lögreglumanns á háls. 23.9.2010 13:32
Steingrímur J: Ranghugmyndir hafa litað skattaumræðuna Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir ranghugmyndir hafi litað umræðu um skatta á síðustu misserum. Að hans mati setja ranghugmyndirnar nokkuð mark sitt á tilllögur forsvarsmanna Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs Íslands í skattamálum. 23.9.2010 13:19
Bæjarstjóranum óheimilt að framsenda læknisvottorð starfsmanns Ásgerði Halldórsdóttur, bæjarastjóra Seltjarnarnesbæjar, var ekki heimilt að framsenda læknisvottorð starfsmanns sem sakar hana um einelti, á nokkra lykilstarfsmenn bæjarins að mati Persónuverndar. 23.9.2010 12:59
Jón Stóri gæti krafið ríkið um skaðabætur Fari svo að rannsókn á máli gegn Jóni Hilmari Hallgrímssyni, eða Jóni Stóra, verði látið niður falla eða hann sýknaður af ákæru um ofbeldi gegn kúbverskum feðgum getur hann átt skaðabótakröfu á hendur íslenska ríkinu vegna ólögmætrar frelsissviptingar. Jón hefur verið sakaður um að hafa 23.9.2010 11:37
Íslendingar seinir þegar kemur að innleiðingu löggjafar Noregur og Liechtenstein eru á meðal þeirra sem standa sig best EES ríkjanna 30 þegar kemur að því að innleiða löggjöf á efnahagssvæðinu í löggjöf aðildarríkjanna. 23.9.2010 10:44
Smyglaði loftbyssu til Íslands og var rekinn úr skólanum Skoskur menntaskólapiltur er heldur betur í vandræðum eftir að hann flaug til Íslands vopnaður loftbyssu. 23.9.2010 10:24
Skortur á skimun fyrir ofbeldi gegn konum Hvergi í almenna heilbrigðiskerfinu eru spurningar um reynslu af ofbeldi hluti af almennum upplýsingum um skjólstæðinga. Þegar kemur að ákveðnum áhættuhópum, fyrst og fremst fíklum, þá er hins vegar spurt með reglubundnum hætti. Árvekni heilbrigðisstarfsfólks hefur aukist gagnvart öðrum þekktum áhættuhópum svo sem konum af erlendum uppruna. 23.9.2010 10:14
Segir breytingar á skattkerfinu lýsa vanþekkingu á efnahagslífinu Þær breytingar sem ríkisstjórnin hefur gert á skattkerfinu lýsa ótrúlega mikilli vanþekkingu á efnahagslífinu. Skattkerfið hafi verið fært áratugi aftur í tímann, einfaldleika þess og gagnsæi hafi verið fórnað. Þetta kom fram í ræðu Vilmundar Jósefssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins, á opnum fundi samtakanna og Viðskiptaráðs Íslands um skattamál fyrirtækja. 23.9.2010 09:41
Kúbversku feðgarnir koma heim á morgun - þora ekki aftur í íbúðina „Við erum mjög þakklát fyrir þann stuðning sem þjóðin, nágrannar og allir hafa sýnt okkur,“ segir sambýliskona kúbverska föðurins sem flúði land vegna meintra ofsókna þar síðustu helgi. Að hennar sögn snúa þeir feðgar aftur heim á morgun en þeir hafa verið í tæplega hálfan mánuð í útlöndum. 23.9.2010 09:37
Betur verði hugað að umfangi og afrakstri Ríkissaksóknari hefur ritað lögreglustjórum í landinu bréf þar sem hann hvetur þá til að kynna sér nýgengna dóma í Hæstarétti þar sem refsing var þyngd yfir tveimur kannabisræktendum í átta og tólf mánaða óskilorðsbundna fangelsisrefsingu úr þriggja mánaða skilorðsbundinni fangelsisrefsingu. 23.9.2010 06:30
Myllan hækkar brauð um 8,1% Myllan hefur hækkað verð á framleiðsluvörum sínum um 8,1 prósent. Að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu má að stóru leyti rekja hækkunina til uppskerubrests í Rússlandi í kjölfar skógarelda í mestu þurrkatíð í landinu í 130 ár. Þar hafi yfirvöld bannað útflutning á korni. Heimsmarkaðsverð á 23.9.2010 06:00
Safnar áfram tækjum fyrir sjúklinga Samfélagsmál Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) fékk góðar gjafir á dögunum, en Þorbjörg Elín Friðriksdóttir og fjölskylda afhentu stofnuninni ytri öndunarvél, vökvadælu, og tvo hjólastóla. Þessi tæki eru afrakstur söfnunar sem Þorbjörg hefur staðið fyrir, en hún er sjálf sjúklingur á HSS. 23.9.2010 06:00
Kate Winslet stofnar samtök fyrir Sólskinsdrenginn Breska Óskarsverðlaunaleikkonan Kate Winslet í samstarfi við Margréti Dagmar hefur stofnað alþjóðlegu góðgerðasamtökin The Golden Hat Foundation, eða Gullna hattinn, sem eiga að styðja við og styrkja einhverf börn og foreldra þeirra. 23.9.2010 06:00
Bankinn blés lífi í kvikmyndahúsið Nýtt kvikmyndahús Sambíóanna opnar í Egilshöll í Grafarvogi snemma í nóvember. Nokkur ár eru síðan fyrirhugað var að opna dyr kvikmyndahússins en verkið var margsinnis lagt í salt. 23.9.2010 06:00
Lóðin fyrir PrimaCare til reiðu Samningar um lóð í Sólvallalandi í Mosfellsbæ fyrir einkasjúkrahús og hótel PrimaCare ehf. verða undirritaðir á næstu vikum, að sögn Gunnars Ármannssonar, framkvæmdastjóra félagsins. 23.9.2010 05:30
Átakið framlengt til áramóta Ferðamenn Markaðsátakið Inspired by Iceland virðist hafa borið nokkurn árangur í því að bæta ímynd Íslands á erlendri grundu, að því er fram kemur í tilkynningu frá framkvæmdanefnd átaksins. Vísað er til nýlegrar könnunar MMR sem mældi viðhorf til Íslands í Bretlandi, Þýskalandi og Danmörku. 23.9.2010 05:00
Fjölskyldan úr Múlakaffi í Hörpuna „Þetta er hápunkturinn á mínum ferli,“ segir Jóhannes Stefánsson, veitingamaður í Múlakaffi, sem varð hlutskarpastur í útboði á veitingaþjónustu í tónlistarhúsinu Hörpunni. 23.9.2010 04:30
Ákært fyrir amfetamínafbrigði sem olli vanda Ríkissaksóknari hefur ákært tvo karlmenn fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Þeim er gefið að sök að hafa staðið að ólögmætum innflutningi á tæpum fjórum kílóum af svokölluðu 4-flúoroamfetamíni frá Hollandi hingað til lands. 23.9.2010 04:00
Ekki er útlit fyrir heilsutjón vegna gossins Gosið í Eyjafjallajökli kemur ekki til með að hafa mikil áhrif á heilsu Íslendinga. Kemur þetta fram í nýrri, breskri rannsókn sem gerð var á vegum Durham-háskóla sem sérhæfir sig í rannsóknum og greiningu á hættu í umhverfinu. 23.9.2010 03:30
Auðlindir þarf að skoða heildstætt Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir að verja þurfi sameiginlegt eignarhald þjóðarinnar á auðlindum og tryggja áhrif ríkisins á hvernig orkunni sé ráðstafað. Þetta sagði hún á málþingi um orkumál í gær, en það var haldið af stýrihópi ráðuneytisins um mótun heildstæðrar orkustefnu. Ráðherra sagði að skoða þyrfti auðlindamál heildstætt þar sem tekið væri jafnt á orkumálum sem og fiskistofnum og olíuvinnslu. 23.9.2010 03:15
Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhald Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskruð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir einum þeirra sex sem handteknir voru í tengslum við rannsókn lögreglu á fjársvikamálinu svokallaða. Heima hjá manninum fundust tólf kíló af hassi þegar lögregla gerði þar húsleit. 22.9.2010 19:06
Eitt stærsta hrossabú landsins í vestfirskum afdal Á sama tíma og hefðbundin sveitabyggð er brostin við norðanverðan Arnarfjörð hefur í einum afskekktasta dal landsins, lengst vestur á Vestfjörðum, byggst upp eitt veglegasta hrossabú landsins, með reiðhöll, skeiðvelli og öðru sem tilheyrir. Eigandinn, sem er líka með einkasundlaug og hefur svín á beit útí haga, segist vera að fjárfesta í skemmtilegum stundum og minningum. 22.9.2010 18:46
Nafn mannsins sem lést Karlmaðurinn sem lést í vinnuslysi á Grænlandi í gærkvöldi hét Árni Þór Steinarsson. Hann var fæddur 1984 og var ókvæntur og barnlaus. Hann starfaði hjá Ístaki. 22.9.2010 18:37
Lokakaflinn að klárast Síðasti kafli Suðurstrandarvegar, milli Þorlákshafnar og Grindavíkur, hefur verið boðinn út og sér nú loks fyrir endann á verkefni, sem kallað hefur verið margsvikna kosningaloforðið 22.9.2010 19:43
Pilturinn kominn með fósturfjölskyldu Búið er að finna drengnum, sem var laumufarþegi í Norrænu, fósturfjölskyldu. Forstöðumaður hælissviðs Útlendingastofnunar segir hann með yngstu börnum sem hingað hafa komið einsömul og leitað hælis. Nokkur hundruð vegalaus börn leita til Noregs ár hvert 22.9.2010 18:52
Þrír Íslendingar með gervifætur í haldi í Ísrael Þrír Íslendingar og einn Suður-Afríkumaður eru í haldi í Ísrael en þeir voru stöðvaðir á flugvellinum í Tel Aviv í dag. Þeim hefur ekki enn verið hleypt inn í landið. Þetta kom fram í sex fréttum RÚV. Þeir munu vera á leið með gervifætur á Gasa-svæðið. 22.9.2010 18:00
Medvedev vill til Íslands Dmitry Medvedev forseti hefur áhuga á að heimsækja Ísland, meðal annars til að kynna sér árangur Íslendinga við að nýta hreina orku. Þetta kom fram á fundi Medvedevs með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands í dag. 22.9.2010 16:53
Mjög viðkvæmt verkefni framundan Ekki liggur fyrir hvort 2,8 milljarða gat í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár verður brúað með niðurskurði í rekstri borgarinnar eða auknum álögum á borgarbúa, segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, í samtali við Vísi. 22.9.2010 16:45
Allsherjarnefnd gefur Atlanefndinni umsögn Allsherjarnefnd mun fá þingsályktunartillögur um ákærur gegn ráðherrunum fjórum til umsagnar. Samkvæmt heimildum Vísis verður fyrsti fundur í nefndinni klukkan fjögur í dag. 22.9.2010 15:47
Jóhanna lagði áherslu á réttindi kvenna og barna Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lagði áherslu á réttindi kvenna og barna í ræðu sinni á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um þúsaldarmarkmiðin svokölluðu í dag. Í ræðunni sagði Jóhanna meðal annars að jafnrétti kynjanna væri einn lykillinn að markmiðunum. Tryggja yrði börnum viðunandi menntun, aðbúnað og skilyrði til vaxtar. 22.9.2010 16:05
Sökuð um ólöglega hundaræktun á Akranesi „Hann er algjörlega geðveikur þessi hundaeftirlitsmaður. Hann leggur mann í einelti,“ segir Margrét Tómasdóttir, formaður hundaræktunarfélagsins Íshunda, en hún gerði athugasemdir við störf hundaeftirlitsmanns á Akranesi á dögunum. 22.9.2010 15:59
Ráðið frá sjósundi vegna hættu á saurgerlamengun Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ráðleggur sjósundsfólki að fara ekki í sund í Nauthólsvík dagana 27.- 29. september. Ástæðan er möguleg saurgerlamengun vegna viðgerða á dælustöð fráveitukerfisins við Hafnarbraut í Kópavogi. 22.9.2010 15:59
Tvöföldun Suðurlandsvegar hafin Ögmundur Jónasson samgönguráðherra tók fyrstu skóflustunguna að tvöföldun Suðurlandsvegar við hátíðlega athöfn klukkan þrjú í dag. Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag var um að ræða kaflann Fossvellir - Draugahlíðar. Auk Ögmundar var Hreinn Haraldsson vegamálastjóri viðstaddur við þetta tækifæri. 22.9.2010 15:31
Stefán Sölvi fjórði sterkasti maður heims Sterkasti maður Íslands, aflraunamaðurinn Stefán Sölvi Pétursson, hafnaði í fjórða sæti í keppninni Sterkasti maður heims 2010. Keppnin var haldin í borginni Sun City í Suður-Afríku. 22.9.2010 14:33
Önnur mál ekki til umræðu á Alþingi Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fór í dag fram á það að umræður um brýn hagsmunamál þjóðarinnar færu fram á þingi á meðan þingmannanefnd Atla Gíslasonar fjallar um ákærur gegn fyrrverandi ráðherrum. Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum kemur fram að beiðninni hafi verið hafnað. 22.9.2010 14:11
Georg Bjarnfreðarson sverti ímynd hjólreiða Jón Gnarr borgarstjóri hefur beðist afsökunar á þeim ímyndarskaða sem hjólreiðar kunna að hafa orðið fyrir þegar Jón ákvað að láta Georg Bjarnfreðarson fara leiða sinna á reiðhjóli. 22.9.2010 14:07